Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2019 VETTVANGUR Þegar Karl K. Kristinsson, yfir-læknir Sýkladeildar Land-spítalans fékk það í andlitið að hann gengi erinda einhverra ótiltek- inna aðila þegar hann varaði við inn- flutningi á hráu kjöti til Íslands og vakti jafnframt athygli okkar á þeirri vá sem stafaði af kjöti sem gæti borið fjölónæma sýkla, þá svaraði hann því til að þetta mætti til sanns vegar færa. Hann teldi sig skuldbundinn börn- um sínum og barnabörnum að segja blákaldan sannleikann og ekkert nema sannleikann um heilnæmi mat- vöru. Ekki vildi hann á gamalsaldri sitja uppi með þá ásökun að hafa ekki komið á framfæri sannindum sem byggðust á rannsóknum vísindanna. Á þetta mætti vissulega líta sem hagsmunagæslu en hún væri hins vegar annars eðlis en varðstaðan um veski þeirra sem hefðu persónulegan hag af því að hafa vísindin að engu. Ásökunin á hendur Karli kom úr talsvert stóru glerhúsi, nefnilega því húsi sem innflutningskaupmenn hafa reist sér. Þaðan var stýrt málsókn í Brussel á hendur Íslandi fyrir að vilja sporna gegn innflutningi á lyfja- kjöti. Evrópukerfið var sjálfu sér trútt og dæmdi verslunarhags- munum í hag, að ólöglegt væri að standa vörð um hagsmuni barna- barna Karls K. Kristinssonar. Á heimasíðu Fé- lags íslenskra at- vinnurekenda í september var lýst yfir því sigri hrósandi að lög- fræðingar fé- lagsins hefðu „endurheimt um þrjá milljarða króna í of- greidda skatta fyrir fyrirtæki í innflutningi“. En hvert skyldu þessir peningar skatt- greiðenda hafa farið? Sigur inn- flutningskaupmanna var í því fólginn að okkur skattgreiðendum var gert að greiða þeim þessa fáránlegu og siðlausu sekt fyrir að verja matarör- yggi Íslendinga. En bíðum nú við? Voru það ekki neytendur sem höfðu greitt í vöru- verðinu við búðarkassann hinar meintu „ofteknu“ álögur? Er það þá ekki þessi sami almenningur sem bæði hefur borgað fyrir tollaálög- urnar og er nú látinn borga í vasa verslunarinnar með sköttum sínum? Eru það þá ekki almennir neytendur sem urðu fyrir hinum meinta skaða? Nú þarf að fá greiningu á því hvað hvert fyrirtæki fékk í sinn hlut. Við erum að tala um milljarða sem al- menningur tvígreiðir við sigurhróp innflutningsverslunarinnar! Millj- arða í skaðabætur til þeirra sem fyrir engum skaða urðu. Svo er þetta rekið sem eitthvert stórkostlegt réttlætis- mál! Hvar eru eftirlitsaðilarnir? Neyt- endasamtökin, hvar er Alþingi? Ef til vill er ég að hafa einhverja alþingis- menn fyrir rangri sök en ég man ekki eftir neinum alþingismanni sem hef- ur hreyft þessu máli öðrum en Ásmundi Friðrikssyni. Hafi hann þökk fyrir! En vel á minnst, Alþingi og hags- mungæslan. Það er verðugt um- ræðuefni. Alþingi á að gæta hags- muna almennings, ekki síst þeirra sem standa á einhvern hátt höllum fæti gagnvart ágengum fjárgróða- öflum. En til að verða trúverðugt í hagsmunagæslu fyrir almenning þarf þingið að byrja á sjálfu sér, en samt á annan hátt en nú tíðkast. Í tímans rás hefur oft verið um það rætt að styrkja Alþingi sem löggjafar-, aðhalds- og eftir- litsstofnun. Í því efni hefur löngum verið tekist á um tvær leiðir. Ann- ars vegar að efla sjálft Alþingi sem faglegan bakhjarl allra þingmanna óháð flokkum og hins vegar að styrkja flokkana og þeirra starf innan þingsins. Síðari leiðin hefur nú heldur betur orðið ofan á í mikilli þverpólitískri og þögulli sátt. Það þarf meiri pólitík – til dæmis varð- andi matvælaöryggi – inn í sali Al- þingis en sú pólitík á að koma frá þingmönnum sjálfum en ekki starfs- liðinu. Alþingismenn mættu bregða upp sjálfskoðunarspegli og spyrja hvað valdi þögn og doða á Alþingi þegar um lífshagsmunamál þjóðar- innar er að tefla. Þannig er þessu farið með hags- munagæsluna. Hún er góð eða slæm eftir atvikum, hverjir hagsmunirnir eru og hvernig á er haldið. Hagsmunagæsla fyrir gráðug inn- flutningsfyrirtæki og hvers kyns sjálfsdekur er slæm. En lofsverð er hins vegar varðstaðan fyrir barna- börn Karls K. Kristinssonar. Af henni munu öll barnabörn Íslands njóta góðs inn í framtíðina. Hagsmunagæsla – góð eða slæm? ’Nú þarf að fá grein-ingu á því hvað hvertfyrirtæki fékk í sinn hlut.Við erum að tala um millj- arða sem almenningur tví- greiðir við sigurhróp inn- flutningsverslunarinnar! Milljarða í skaðabætur til þeirra sem fyrir engum skaða urðu. Svo er þetta rekið sem eitthvert stór- kostlegt réttlætismál! Hvar eru eftirlitsaðilarnir? Neytendasamtökin, hvar er Alþingi? Morgunblaðið/Ómar Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Haukur Bragason tjáði sig um mögulega breytingu klukkunnar á Twitter: „Fólk sem vill ekki breyta klukkunni því það vill komast út að gera eitthvað í birtu eftir vinnu: Það sem þið viljið er ekki að halda í klukku sem passar ekki við hnatt- stöðu landsins, það sem þið viljið er stytting vinnuvikunnar.“ Helgi Sæ- mundur Guð- mundsson tísti líka um klukkuna: „Ég vil bara hafa klukkuna þannig að NBA byrji fyrr.“ Haukur Viðar Alfreðsson tísti: „Pælið í því að borga 19 þúsund kall fyrir að sitja og hlusta á einhverja píu lesa upphátt af vegglím- miðum í þrjá tíma.“ Iris Edda Nowenstein spáði í sama mál: „Rauður þráður í gervi- vísindum: Flókin og margþætt vandamál einföld- uð, töfralausn sett fram og ábyrgð- inni miskunnar- laust varpað yfir á einstaklinginn. Ef vandamál þín hverfa ekki er það því þú leggur þig ekki nóg fram, ekki því töfralausnin er kjaftæði.“ Sævar Helgi Bragason skrif- aði á sama miðil: „Gleðiefni að sí- fellt fleiri velti loftslags- og um- hverfismálum fyrir sér. Í mars hefst tíu þátta röð frá Saga- film á RÚV um loftslagsmál þar sem yours truly er umsjónarmaður. Allt það helsta tekið fyrir, s.s. neysla, landbúnaður, bílar, flug, jöklar og súrnun sjávar #loftslag.“ AF NETINU Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk | S. 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Traust og fagleg starfsmannaveita sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir -1° 6 -1° 4 -1° 6 -4° 14 -2° 4 -3° 8 -3° 5 -4° 9 -6° 5 -7° 10 -4° 9 -6° 7 -4° 10 0° 5 -1° 12 0° 12 -4° 3 -3° 8 -6° 7 -4° 8 nesdekk.is / 561 4200 REYKJAVÍK | GARÐABÆR | REYKJANESBÆR | AKUREYRI Skiptu núna!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.