Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2019
VETTVANGUR
Þegar Karl K. Kristinsson, yfir-læknir Sýkladeildar Land-spítalans fékk það í andlitið að
hann gengi erinda einhverra ótiltek-
inna aðila þegar hann varaði við inn-
flutningi á hráu kjöti til Íslands og
vakti jafnframt athygli okkar á þeirri
vá sem stafaði af kjöti sem gæti borið
fjölónæma sýkla, þá svaraði hann því
til að þetta mætti til sanns vegar
færa.
Hann teldi sig skuldbundinn börn-
um sínum og barnabörnum að segja
blákaldan sannleikann og ekkert
nema sannleikann um heilnæmi mat-
vöru. Ekki vildi hann á gamalsaldri
sitja uppi með þá ásökun að hafa ekki
komið á framfæri sannindum sem
byggðust á rannsóknum vísindanna.
Á þetta mætti vissulega líta sem
hagsmunagæslu en hún væri hins
vegar annars eðlis en varðstaðan um
veski þeirra sem hefðu persónulegan
hag af því að hafa vísindin að engu.
Ásökunin á hendur Karli kom úr
talsvert stóru glerhúsi, nefnilega því
húsi sem innflutningskaupmenn hafa
reist sér. Þaðan var stýrt málsókn í
Brussel á hendur Íslandi fyrir að
vilja sporna gegn innflutningi á lyfja-
kjöti. Evrópukerfið var sjálfu sér
trútt og dæmdi verslunarhags-
munum í hag, að ólöglegt væri að
standa vörð um hagsmuni barna-
barna Karls K. Kristinssonar. Á
heimasíðu Fé-
lags íslenskra at-
vinnurekenda í
september var
lýst yfir því sigri
hrósandi að lög-
fræðingar fé-
lagsins hefðu
„endurheimt um
þrjá milljarða
króna í of-
greidda skatta
fyrir fyrirtæki í
innflutningi“.
En hvert
skyldu þessir
peningar skatt-
greiðenda hafa
farið?
Sigur inn-
flutningskaupmanna var í því fólginn
að okkur skattgreiðendum var gert
að greiða þeim þessa fáránlegu og
siðlausu sekt fyrir að verja matarör-
yggi Íslendinga.
En bíðum nú við? Voru það ekki
neytendur sem höfðu greitt í vöru-
verðinu við búðarkassann hinar
meintu „ofteknu“ álögur? Er það þá
ekki þessi sami almenningur sem
bæði hefur borgað fyrir tollaálög-
urnar og er nú látinn borga í vasa
verslunarinnar með sköttum sínum?
Eru það þá ekki almennir neytendur
sem urðu fyrir hinum meinta skaða?
Nú þarf að fá greiningu á því hvað
hvert fyrirtæki fékk í sinn hlut. Við
erum að tala um milljarða sem al-
menningur tvígreiðir við sigurhróp
innflutningsverslunarinnar! Millj-
arða í skaðabætur til þeirra sem fyrir
engum skaða urðu. Svo er þetta rekið
sem eitthvert stórkostlegt réttlætis-
mál!
Hvar eru eftirlitsaðilarnir? Neyt-
endasamtökin, hvar er Alþingi? Ef til
vill er ég að hafa einhverja alþingis-
menn fyrir rangri sök en ég man ekki
eftir neinum alþingismanni sem hef-
ur hreyft þessu máli öðrum en
Ásmundi Friðrikssyni. Hafi hann
þökk fyrir!
En vel á minnst, Alþingi og hags-
mungæslan. Það er verðugt um-
ræðuefni. Alþingi á að gæta hags-
muna almennings, ekki síst þeirra
sem standa á einhvern hátt höllum
fæti gagnvart ágengum fjárgróða-
öflum. En til að verða trúverðugt í
hagsmunagæslu fyrir almenning
þarf þingið að byrja á sjálfu sér, en
samt á annan hátt en nú tíðkast.
Í tímans rás
hefur oft verið
um það rætt að
styrkja Alþingi
sem löggjafar-,
aðhalds- og eftir-
litsstofnun. Í því
efni hefur löngum
verið tekist á um
tvær leiðir. Ann-
ars vegar að efla
sjálft Alþingi sem
faglegan bakhjarl
allra þingmanna
óháð flokkum og
hins vegar að
styrkja flokkana
og þeirra starf
innan þingsins.
Síðari leiðin hefur
nú heldur betur orðið ofan á í mikilli
þverpólitískri og þögulli sátt. Það
þarf meiri pólitík – til dæmis varð-
andi matvælaöryggi – inn í sali Al-
þingis en sú pólitík á að koma frá
þingmönnum sjálfum en ekki starfs-
liðinu. Alþingismenn mættu bregða
upp sjálfskoðunarspegli og spyrja
hvað valdi þögn og doða á Alþingi
þegar um lífshagsmunamál þjóðar-
innar er að tefla.
Þannig er þessu farið með hags-
munagæsluna. Hún er góð eða slæm
eftir atvikum, hverjir hagsmunirnir
eru og hvernig á er haldið.
Hagsmunagæsla fyrir gráðug inn-
flutningsfyrirtæki og hvers kyns
sjálfsdekur er slæm. En lofsverð er
hins vegar varðstaðan fyrir barna-
börn Karls K. Kristinssonar. Af
henni munu öll barnabörn Íslands
njóta góðs inn í framtíðina.
Hagsmunagæsla – góð eða slæm?
’Nú þarf að fá grein-ingu á því hvað hvertfyrirtæki fékk í sinn hlut.Við erum að tala um millj-
arða sem almenningur tví-
greiðir við sigurhróp inn-
flutningsverslunarinnar!
Milljarða í skaðabætur til
þeirra sem fyrir engum
skaða urðu. Svo er þetta
rekið sem eitthvert stór-
kostlegt réttlætismál! Hvar
eru eftirlitsaðilarnir?
Neytendasamtökin, hvar
er Alþingi?
Morgunblaðið/Ómar
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Haukur Bragason tjáði sig um
mögulega breytingu klukkunnar á
Twitter: „Fólk sem vill ekki breyta
klukkunni því það
vill komast út að
gera eitthvað í
birtu eftir vinnu:
Það sem þið viljið
er ekki að halda í
klukku sem passar ekki við hnatt-
stöðu landsins, það sem þið viljið
er stytting vinnuvikunnar.“
Helgi Sæ-
mundur Guð-
mundsson tísti
líka um klukkuna:
„Ég vil bara hafa
klukkuna þannig
að NBA byrji fyrr.“
Haukur Viðar Alfreðsson tísti:
„Pælið í því að borga
19 þúsund kall fyrir
að sitja og hlusta á
einhverja píu lesa
upphátt af vegglím-
miðum í þrjá tíma.“
Iris Edda Nowenstein spáði í
sama mál: „Rauður þráður í gervi-
vísindum: Flókin
og margþætt
vandamál einföld-
uð, töfralausn sett
fram og ábyrgð-
inni miskunnar-
laust varpað yfir á
einstaklinginn. Ef vandamál þín
hverfa ekki er það því þú leggur þig
ekki nóg fram, ekki því töfralausnin
er kjaftæði.“
Sævar Helgi Bragason skrif-
aði á sama miðil: „Gleðiefni að sí-
fellt fleiri velti loftslags- og um-
hverfismálum fyrir
sér. Í mars hefst tíu
þátta röð frá Saga-
film á RÚV um
loftslagsmál þar
sem yours truly er
umsjónarmaður. Allt það helsta
tekið fyrir, s.s. neysla, landbúnaður,
bílar, flug, jöklar og súrnun sjávar
#loftslag.“
AF NETINU
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk | S. 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Við útvegum hæfa starfskrafta
í flestar greinar atvinnulífsins
Traust og fagleg starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir
-1°
6 -1°
4 -1°
6
-4°
14
-2°
4
-3°
8
-3°
5
-4°
9
-6°
5
-7°
10
-4°
9 -6°
7
-4°
10
0°
5
-1°
12
0°
12
-4°
3
-3°
8
-6°
7
-4°
8
nesdekk.is / 561 4200
REYKJAVÍK | GARÐABÆR | REYKJANESBÆR | AKUREYRI
Skiptu núna!