Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Page 10
VIÐTAL
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2019
Þ
að er ekki amalegt útsýnið úr stof-
unni hjá Hjördísi Árnadóttur í
Breiðholtinu; borgin í vetrar-
hamnum, Faxaflóinn, Esjan,
Keflavík og nefndu það bara.
„Þegar ég kom hérna fyrst var ég í hjólastól og
fyrir vikið gerði útsýnið heilmikið fyrir mig,“
útskýrir Hjördís. „Það er svo mikið líf þarna
úti; bílaumferð, gangandi vegfarendur, fugl-
arnir og flugvélarnar – alltaf líf og fjör. Það
skipti miklu máli fyrir mig á þeim tíma að geta
dreift huganum og þess vegna hentaði þessi
íbúð mér sérlega vel.“
Hjördís vekur líka stolt athygli mína á svölum
íbúðarinnar. Hún er með græna fingur, eins og
sagt er, og úr því hún er ekki með eiginlegan
garð breytti hún bara svölunum í lítinn aldin-
garð. Iðjagrænt gervigrasið færir manni ósvik-
inn yl í kropinn á þessu svellkalda vetrarsíðdegi.
Og fjölær blómin bíða sumarsins með óþreyju.
Líf Hjördísar, garðyrkjufræðings og
þriggja barna einstæðrar móður, tók óvænta
stefnu á sjálfan þjóðhátíðardaginn 2011. „Ég
ætlaði að fara með börnin í bæinn en var orðin
lasin, þannig að pabbi og systir mín fóru með
þau í staðinn en ég bjó á þessum tíma tíma-
bundið heima hjá foreldrum mínum. Mér
hrakaði jafnt og þétt yfir daginn, var orðin
mjög máttfarin og þegar ég gat ekki einu sinni
haldið á brauðsneið um kvöldið tók faðir minn
af skarið og hringdi á sjúkrabíl.“
Hjördís var með fullri meðvitund en man
eigi að síður ekkert eftir þessum degi sem er
væntanlega afleiðing af svæfingunni sem hún
fékk á spítalanum. Hún getur haft afturvirk
áhrif. Fyrir lá að Hjördís var fárveik og útlitið
var raunar svo slæmt að foreldrar hennar og
systkini fengu símtal um nóttina þess efnis að
þau ættu að drífa sig upp á spítala til að kveðja
hana. „Ekki var ljóst hvort ég myndi lifa en
kæmi ég aftur vissu læknarnir ekki hversu
mikið yrði eftir af mér,“ segir Hjördís.
Leiddi til sýklasóttarlosts
Um hádegi daginn eftir fannst loksins meinið,
heiftarleg sýking í öðrum eggjastokknum sem
hafði leitt til svæsinnar sýklasóttar sem hér
um bil dró Hjördísi til dauða. Eggjastokkurinn
var fjarlægður þegar í stað. Hjördísi var haldið
sofandi í öndunarvél í um tvær vikur. Það
hjálpaði til að Hjördís var í góðu líkamlegu
formi, þannig að líkaminn hafði „nóg að éta“,
eins og hún orðar það sjálf. „Ég man vitaskuld
ekki neitt frá þessum tíma en löngu seinna
fékk ég minningu um að ég hefði dáið og ekki
komist út úr líkamanum. Það var mikið sjokk.
Svona ferðalag er fullt af litbrigðum.“
Hjördís vaknaði með sýklasóttarlost og gat
sig hvergi hrært; reyndi að tjá sig en kom ekki
upp orði, svo máttfarin var hún. Öll vöðva-
starfsemi lá niðri, auk þess sem drep var kom-
ið í fingur, tær og nef. Allt var þetta biksvart á
litinn og óhugnanlegt á að líta. Þess utan var
Hjördís lengi að jafna sig eftir öndunarvélina.
„Ég var lengi að vinna úr þessu,“ segir hún.
„Þegar ég loksins náði
áttum leið mér eins og
ég væri 170 ára gömul.
Var ekki lengur sama
manneskjan. Eftir þetta
skil ég vel hvernig það
er að vera ósjálfbjarga
gamalmenni og upp á aðra komin.“
Ekki bætti úr skák að Hjördís var með
mikla spítala- og stofnanafóbíu og það að
liggja inni var áfall út af fyrir sig – fyrir utan
allt annað. „Þetta hefur á allan hátt verið galið
ferðalag,“ segir hún og hristir höfuðið.
Hélt hún myndi halda fótunum
Fingur og nef jöfnuðu sig en tærnar voru dán-
ar og fyrir lá að þær yrði að fjarlægja. Til að
byrja með voru læknar þó bjartsýnir á að
Hjördís myndi halda fótunum að öðru leyti.
Fyrst var talað um að skrapa iljarnar og hæl-
ana en þegar á reyndi voru dauðir vefir ofar og
á endanum þurfti að fjarlæga báða fætur
hennar frá miðjum sköflungi. Það var gert um
tveimur mánuðum eftir að hún veiktist. „Mér
brá auðvitað þegar mér var sagt að taka hefði
þurft meira af fótunum en til stóð í upphafi en
áfallið kom þó ekki fyrr en löngu seinna. Ég
var ennþá svo máttfarin og utan við sjálfa mig
að ég gat ekki melt þessar upplýsingar að
neinu gagni. Ég fékk smá sjokk en síðan fór
allt í sama farið. Það var eiginlega ekki fyrr en
síðasta haust að upp fyrir mér rann ljós: Djös,
ég er búin að missa báða fæturna!“
Hún þagnar um stund.
„Líf mitt á þessum tíma stýrðist af kvíða, fé-
lagsfælni og áfallastreituröskun á háu stigi.
Ég var lengi að vinna mig út úr þessu öllu sam-
an og það var í raun ekki fyrr en síðasta haust
að ég var orðin eðlileg á ný. Áfallið háir mér
ekki lengur; ég kemst loksins aftur út úr húsi
og er farin að taka þátt í samfélaginu. Er aftur
lifandi.“
Hjördís var í þrjár vikur á gjörgæslu og lá
samtals í sex mánuði á spítala. Smám saman
hjarnaði líkaminn við. Hjördís líkir þessu við
að vöðvarnir hafi verið frosnir og hún hafi
hreinlega þurft að finna
þá á ný. Til að bæta gráu
ofan á svart urðu nýrun
um tíma óstarfhæf og
hún þurfti að fara í blóð-
skilun. Sem betur fer
gekk það til baka. Þá
þurfti hún í aðra aðgerð á vinstra fæti vorið
2012.
Hefði getað farið verr
„Þetta hefði getað farið verr; ég hefði getað
misst fingurna og jafnvel nefið og það var alls
ekki sjálfgefið að nýrun færu að starfa á ný.
Margir sem veikjast svona alvarlega hreinlega
deyja, þannig að ég er mjög þakklát fyrir að
hafa komist í gegnum þessi veikindi án meiri
varanlegs skaða. Eftir á að hyggja má segja að
ég hafi verið heppin – en auðvitað leið mér ekki
þannig meðan ég var að ná vopnum mínum á
ný á spítalanum. Það var ofboðslega erfiður
tími.“
Líkaminn er eitt, sálin annað, og Hjördís
viðurkennir að hafa gengið í gegnum sterkar
tilfinningar. Spurð hvort hún hafi verið lokuð
manneskja fyrir áfallið svarar hún: „Já, frekar.
Erum við það ekki öll, Íslendingar? Við erum
ekki gefin fyrir að tala mikið um tilfinningar
okkar.“
Hún brosir.
„Auk þess að vera frekar lokuð að upplagi
hef ég alltaf annað slagið þjáðst af kvíða og
félagsfælni. Ég segi ekki að það hafi verið
stórt vandamál fyrir en þetta magnaðist allt
upp eftir veikindin. Svona mikið kraftleysi
kemur niður á manni, að ekki sé talað um óör-
yggið sem fylgir því að geta ekki lengur stigið
fram úr rúminu. Ég datt einu sinni inni á baði
á spítalanum og komst ekki upp aftur. Ég var
ekki með bjöllu, eins og við rúmið, og það
nægði til þess að ég fór í panikástand. Það var
ekki fyrr en ég áttaði mig á því að ég gæti
hringt úr farsímanum mínum að ég gat greitt
úr flækjunni. Ég get brosað að þessu í dag en
þetta var hræðileg tilfinning þegar það gerð-
ist.“
Erfitt að treysta öðrum
Raunar leið henni löngum stundum eins og að
hún væri föst í eigin líkama og átti erfitt með
að treysta sjálfri sér, eins og hún var orðin, og
öðrum, sem þó voru allir af vilja gerðir til að
hjálpa henni. „Ég var með mikla innilokunar-
kennd til að byrja með. Það lagaðist smám
saman; því betri sem líkaminn varð, þeim mun
brattari varð hugurinn.“
Eins góð og aðhlynningin var líkamlega var
minna unnið með andlega þáttinn á spítal-
anum. Hjördísi var boðin sálfræðiaðstoð en
fann fljótt að það virkaði ekki fyrir hana. Hins
vegar talaði hún við Rósu Kristjánsdóttur,
djákna og hjúkrunarfræðing, og hafði mun
meira gagn af þeim samtölum. „Við Rósa töl-
uðum saman reglulega í um tvö ár og það
hjálpaði mér mjög mikið. Hún hjálpaði mér til
dæmis að tala við börnin mín þegar fæturnir
voru teknir af mér. Dásamleg kona, Rósa.“
Það var ekki bara Hjördís sjálf. Fjölskyldan
öll var í áfalli, börnin Ástrós Helga, Ragnheið-
ur Ír og Mikael Árni, sem voru ellefu, sex og
fjögurra ára á þessum tíma, foreldrar hennar,
Árni Steingrímsson og Steinunn Sigurðar-
dóttir, systkinin þrjú, Sigurður Ragnar, Auður
Morgunblaðið/Hari
Heimt
úr helju
Hjördís Árnadóttir vaknaði slöpp að morgni 17. júní
2011 og um kvöldið var henni vart hugað líf. Meinið
var svæsin sýklasótt út frá sýkingu í eggjastokk sem
þurfti að fjarlægja. Leiðin til heilsu var löng og ströng
og tveimur mánuðum eftir áfallið þurfti að fjarlægja
báða fætur Hjördísar neðan við miðjan sköflung
vegna dreps. Við henni blasti nýtt líf og það er fyrst
núna í vetur að Hjördís hefur náð að vinna að mestu
úr áfallinu og getur farið að horfa fram á veginn.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
’Ekki var ljóst hvort égmyndi lifa en kæmi ég aftur vissu læknarnir ekkihversu mikið yrði eftir af mér.