Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Qupperneq 27
20.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Cardrona-skíðasvæðið er það
vinsælasta á Nýja-Sjálandi og
trekkir að skíðafólk á öllum
stigum íþróttarinnar.
Svæðið er rétt hjá Queens-
town og Wanaka og því stutt á
vetrarleikvöll Nýsjálendinga
þaðan. Þar er hægt að skíða frá
júní og fram í október en þá er
vetur á Nýja-Sjálandi og besta
skíðatímabilið.
Cardrona býður upp á eitt-
hvað við allra hæfi; alls kyns
brekkur og brettagarða, auk
ótroðinna leiða.
Á haustin og veturna er hægt
að njóta dásamlegrar náttúru-
fegurðar en við bæinn Wanaka
má finna fallegt stöðuvatn.
Þarna er líka tilvalið að stunda
annars konar útivist á öðrum
tímum ársins en svæðið býður
upp á margar fallegar göngu-
leiðir.
CARDRONA, NÝJA-SJÁLANDI
Vetrarleikvöllur
á sumrin
Zermatt er oft talinn fallegasti skíðastaðurinn í
Ölpunum en hann státar af hæstu fjöllum í
Sviss. Hann er í dag vinsælasti skíðastaður
Sviss. Þangað koma árlega tvær milljónir
manna víða að til þess að skíða og njóta sólar-
innar. Hæstu tindar ná 3.883 metrum, enda til-
heyrir staðurinn Matterhorn-skíðasvæðinu.
Vegna þess er hægt að skíða þarna nánast árið
um kring.
Á þessu svæði eru 20% af brekkunum svartar
(erfiðastar) og margar þeirra utan alfaraleiðar
og henta aðeins þeim reyndustu. Byrjendur
ættu ef til vill að byrja á léttari brekkum annars
staðar þótt vafalaust megi finna þarna brekkur
við allra hæfi.
Einnig er hægt að skíða 15 kílómetra leið frá
toppi Matterhorns og niður í þorpið. Það er
ógleymanleg skíðaferð að sögn þeirra sem það
hafa reynt.
ZERMATT, SVISS
Hæstu fjöllin
Í bænum Niseko á japönsku eyj-
unni Hokkaido er að finna frá-
bært skíðasvæði þekkt fyrir
mikla lausamjöll. Meðalsnjó-
koma þar árlega er 15 metrar!
Þarna mætast í raun fjögur
skíðasvæði og eru þetta vinsæl-
ustu skíðastaðir Japans.
Í Niseko má finna bæði breið-
ar og langar brekkur sem liðast
niður skógivaxnar hlíðar; allt
brekkur á heimsmælikvarða.
Í fjallinu, sem er eldfjall, má
finna svæði við allra hæfi en þar
eru til dæmis brettagarðar fyrir
brettafólkið. Einnig er hægt að
fara úr alfaraleið og skíða á
ótroðnum slóðum, í orðsins
fyllstu merkingu.
Nauðsynlegt er fyrir ferða-
langa að stoppa á Rakuichi-
veitingastaðnum og fá sér soba-
núðlur.
NISEKO, JAPAN
Lausamjöll í Japan Vail hefur verið vinsæll skíðastaður í Colorado síðan á sjöunda áratugsíðustu aldar. Er skíðasvæðið með því stærsta sem gerist í heiminum
og hentar skíðafólki á öllum stigum íþróttarinnar.
Í Vail má finna úrval brekkna sem eru bæði langar og fínar og þeim
er vel við haldið. Þær liggja niður í fallegan bæ þar sem lúxus hótel og
frábærir veitingastaðir eru á hverju horni, ásamt fjölda verslana.
Vail er ekki aðeins þekkt fyrir stærð svæðisins, með 31 skíðalyftu,
heldur einnig fyrir fjölbreytni í landslagi og brekkum. Fyrir þá sem
vilja púðursnjó er hægt að skíða úr alfaraleið.
Hæsti tindur fjallsins er 3.527 metrar. Þar skín sólin yfir 300 daga á
ári og þar er ávallt nógur snjór, sem gerir staðinn einstaka skíða-
paradís.
VAIL, USA
Mögnuð skíðaparadís
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.