Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Síða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Síða 40
SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2019 Alls hefur verið horft yfir 40 milljón sinnum á myndband með gólfæfingum bandarísku fimleikakonunnar Katelyn Ohashi sem deilt var á Twitter-síðu UCLA Gymnastics síðastliðinn mánudag. Hún fékk 10 í einkunn fyrir æfing- arnar og gleði hennar á gólfinu er smitandi. Katelyn Ohashi hefur vakið athygli fyrir að ræða opin- skátt um líkamssmánun sem hún hefur orðið fyrir frá því hún var unglingur, en hún hefur ósjaldan fengið að heyra að hún sé „of stór“. Hún ræddi þá pressu sem íþróttakon- ur eru undir í viðtali við þáttinn Good Morning America í vikunni. „Í fimleikasalnum, utan salarins, á netinu. Þetta er eitthvað sem er alls staðar og þú getur aldrei flúið. Það var erfitt að höndla þetta þegar ég var 14 ára,“ sagði Ohashi sem nú er 21 árs, um gagnrýni á líkamslögun sína. Þrátt fyrir stórkostlegan árangur og einstaka útgeislun á gólfinu virðast ekki allir geta stillt sig um að benda á að hún sé með kvenlegar línur og telja sig þess umkomna að setjast í dómarasæti yfir afturhluta hennar, mjöðmum, lærum og fleiri líkamshlutum sem taldir eru of stórir. Hún hefur nú fundið leið til að takast á við þetta; ljóð. Ohashi semur ljóð og notar þannig uppbyggjandi orð til að berjast gegn niðurrifi, enda segir hún að þessi gagnrýni hafi haft slæm áhrif á sig og stuðlað að sjálfshatri, sem hún hefur nú sagt stríð á hendur með ljóðliðstina að vopni. Vill smánunina burt Bandarísk fimleikastjarna berst við netníðinga og niðurrif með ljóðlist „Á laugardagskvöld snæddu dansmeyjar frá frægasta nætur- klúbb Parísar kvöldverð á Reykjavíkurflugvelli. Þær voru á vegum Loftleiða, komu með „Sögu“ til Reykjavíkur á leið til Bandaríkjanna, þar sem þær munu dansa (m.a. „nektar- dansa“) í Las Vegas í 10 vikur.“ Með þessum orðum hófst frétt undir þriggja dálka mynd á blaðsíðu 2 í Morgunblaðinu þriðjudaginn 20. janúar 1959. Svo miklum tíðindum sætti þessi heimsókn að blaðamaður var gerður út á laugardagskvöldi til að hitta hópinn og leggja mat á hann. Komst hann að eftirfar- andi niðurstöðu: „Ekki þótti blaðamanni Mbl. hópur þessi eins föngulegur og hann hafði búizt við, en þó var fallegt kvenfólk innan um. – Stúlkurnar eru frá Frakklandi, Hollandi, Bretlandi, Ástralíu og víðar. Hinar yngstu voru 16 eða 17 ára.“ Á sömu blaðsíðu kom fram að Friðrik Ólafsson hefði farið með sigur af hólmi á skákmótinu í Beverwijk í Hollandi. Hann hlaut 7½ vinning, tveimur meira en stórmeistarinn Erich Eliskases. GAMLA FRÉTTIN Dansmeyj- ar snæða í Reykjavík „Á myndinni má sjá þær, sem vöktu einna helzt athygli ljósmyndara Mbl,“ sagði í fréttinni og fram kom að sú í miðið væri ensk en hinar tvær franskar. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Alfred E. Neumann forsíðudrengur Mad-tímaritsins Jógvan Hansen söngvari Brad Pitt leikari • Pokagormakerfi • Hægindalag í yfirdýnu • Bómullar áklæði • Sterkur botn • Steyptur svampur í köntum Stærð í cm Fullt verð Útsöluverð 120x200 125.900 kr. 82.740 kr. 140x200 139.900 kr. 91.940 kr. 160x200 159.900 kr. 104.940 kr. 180x200 179.900 kr. 117.940 kr. 192x203 194.900 kr. 127.940 kr. Nature’s SUPREME heilsurúm með Classic botni Aðeins 68.925 kr. NATURE’S SUPREME Stærð 90 x 200 cm Fullt verð 89.900 kr. • Svæðaskipt pokagormakerfi • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar á m2 • Vandaðar kantstyrkingar 25% AFSLÁTTUR ÚTSALA af Surpreme 90 x 200 20% af botni Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á Classic botni. Aukahlutir á mynd: Koddar og gafl www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN Janúar útsalan í fullum gangi ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR 40% AFSLÁTTUR ÚTSALA af Excellent dýnu 20% af botni Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á Classic botni. Aukahlutir á mynd: Púðar og teppi Afgreiðslutími Rvk Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum) Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi) Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði SPRING AIR EXCELLENT Endurnýjanleg hráefni Aloe VeraBambus trefjar Open cell structure Memory foam SHAPE B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G 30% AFSLÁTTUR ÚTSALA af Shape dýnum og 20% af botni Stærð cm Fullt verð Útsöluverð 80x200 72.900 kr. 53.830 kr. 90x200 79.900 kr. 58.930 kr. 90x210 89.900 kr. 66.130 kr. 120x200 109.900 kr. 80.530 kr. Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á Classic botni. Aukahlutir á mynd: Koddar og teppi • Lagar sig fullkom lega að líkama þínum • Aloe Vera áklæði sem gefur silki mjúka áferð. • Ofnæmisprófuð • 5 ára ábyrgð! Spring Air EXCELLENT heilsurúm með Classic botni SHAPE heilsurúm með Classic botni OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.