Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Arvada flísjakki • 100% prjónað pólýester • Einstaklega þægilegir og flottir flísjakkar með hettu og vösum • Til í gulum og bláum lit • Stærðir: XS - 3XL Vnr: 1899 312 Verð: 8.900 kr. Bambus sokkar • 80% bambus/17% pólýamíð/3% teygju- efni, mjög þægilegir og mjúkir • Draga úr ólykt og þú svitnar mun minna • 5 pör í pakka • Stærðir: 39 - 42 og 43 - 46 Vnr: M451 044 Verð: 4.990 kr. (5 pör í pakka) Ég ætla að njóta dagsins í botn. Það er búið að bjóða mér út aðborða í hádeginu og svo stendur til að gera eitthvað skemmti-legt með vinum og börnunum um kvöldið. Afmælisdagar eiga að vera skemmtilegir,“ segir Friðbert G. Gunnarsson sem er 46 ára í dag. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og starfar við lífeyris- og sparnaðarráðgjöf hjá Landsbankanum í Reykjavík. Hefur starfað í bankanum frá 2005 að frátöldum námsárunum í Danmörku, 2011 til 2015. Friðgeir býr á Selfossi og fer þaðan daglega til vinnu í Reykjavík. „Nei, mér finnast þessi ferðalög ekkert tiltökumál. Á heimleiðinni gefst oft góður tími til þess að kúpla sig út eftir vinnudaginn, sem oft er annasamur og úrlausnarefnin mörg. Mér finnst líka alveg bráð- nauðsynlegt að hreyfa mig; reyni að gera eitthvað fyrir skrokkinn á degi hverjum. Fer þá í ræktina, sundlaugina eða út að skokka. Það er mjög misjafnt hve langan spotta ég hleyp hverju sinni, þar ræður dagsformið og áhuginn. Best er samt alltaf að upplifa sig að hlaupi loknu sem alveg endurnýjaðan mann og hafa komið ró á hugann,“ segir Friðbert sem er faðir þriggja barna sem eru Lilja Ísey 19 ára, Einar Ísak 17 ára og Axel Ívan 11 ára. „Já, mér finnst gaman að ferðast. Í fyrra fór ég með strákunum mínum í fínt frí í Torrevieja á Spáni. Við munum sjálfsagt gera og fara eitthvað annað skemmtilegt á þessu ári; þó ákvörðunarstaðurinn sé enn óákveðinn.“ sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfyssingur Upplifir sig sem endurnýjaðan mann, segir Friðbert. Afmælisdagarnir séu skemmtilegir Friðbert G. Gunnarsson er 46 ára í dag A ðalsteinn Rafn Richter fæddist 11. mars 1969 í Reykjavík en ólst upp í Garðabæ. Hann æfði handbolta og fótbolta með Stjörnunni upp yngri flokkana. „Ég var tvö sumur í sveit hjá Hólm- fríði Ásgeirsdóttur móðursystur minni og Guðmundi Helga Haralds- syni á Hallandi við Eyjafjörð.“ Aðalsteinn gekk í Flataskóla, Garðaskóla, varð stúdent í Fjölbraut við Ármúla og fór síðan í Tækniskóla Íslands þaðan sem hann útskrifaðist sem iðnrekstrarfræðingur árið 1993. „Þá fór ég beint að vinna í fjöl- skyldufyrirtækinu K. Richter sem foreldrar mínir stofnuðu árið 1970. Ég tók svo endanlega við fyrir- tækinu um mitt árið 2007.“ K. Richter hf. er einn stærsti seljandi hér á landi á hvers kyns þéttilistum fyrir húsaþéttingar bæði fyrir gler- og gluggaísetningar, hurðaþéttingar, þakþéttingar og fleira. Einnig selur fyrirtækið mikið úrval af eldvarn- arþéttingum. Fyrirtækið er einnig leiðandi seljandi á sviði verkfæra og fylgihluta fyrir byggingariðnaðinn, jafnt trésmiði, múrara og málara. Aðalsteinn R. Richter framkvæmdastjóri – 50 ára Á ferðalagi Kolbrún og Aðalsteinn stödd í Ríga, en þau eru núna á skíðaferðalagi í Madonna di campiglio á Ítalíu. Áhugamálin mörg og líklegast dellumaður Parið Statt við Como-vatn. Stykkishólmur Eyrún Nadía Hafþórsdóttir Hjaltalín fæddist 28. júní 2018. Hún vó 3.068 g og var 49 cm. For- eldrar hennar eru Arna Dögg Hjaltalín og Hafþór Ingi Þorgrímsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.