Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Frá kr. 89.995 Mílanó Páskaferð 16. apríl í 6 nætur. Morgunverður innifalinn Flug frá kr. 39.900 Ámann báðar leiðir m/tösku og handfarangri Veður víða um heim 10.3., kl. 18.00 Reykjavík 1 skýjað Hólar í Dýrafirði -1 léttskýjað Akureyri -2 alskýjað Egilsstaðir 2 skýjað Vatnsskarðshólar 2 léttskýjað Nuuk -6 skýjað Þórshöfn 2 skýjað Ósló 0 rigning Kaupmannahöfn 3 skýjað Stokkhólmur -1 snjóél Helsinki -2 skúrir Lúxemborg 8 skúrir Brussel 7 rigning Dublin 3 skúrir Glasgow 3 rigning London 8 rigning París 11 rigning Amsterdam 4 skúrir Hamborg 6 skúrir Berlín 6 rigning Vín 13 rigning Moskva 3 heiðskírt Algarve 21 heiðskírt Madríd 22 heiðskírt Barcelona 18 heiðskírt Mallorca 17 heiðskírt Róm 13 rigning Aþena 19 heiðskírt Winnipeg -10 léttskýjað Montreal -1 snjókoma New York 3 rigning Chicago 1 rigning Orlando 26 skýjað  11. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:01 19:16 ÍSAFJÖRÐUR 8:08 19:18 SIGLUFJÖRÐUR 7:51 19:01 DJÚPIVOGUR 7:31 18:44 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á þriðjudag Norðaustan 15-23 m/s. Rigning suð- austantil, él nyrðra, en þurrt suðvestantil. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu þegar líður á dag- inn. Hiti 1 til 6 stig syðra, annars kringum frostmark. Vaxandi austlæg átt, allvíða hvassviðri en stormur eða rok sunnantil í kvöld og nótt. Dálítil él eystra, rigning eða slydda syðra, en yfirleitt þurrt norðan- og vestanlands. Snorri Másson snorrim@mbl.is „Ég skil ekki hvað þessi börn eru að gráta,“ sagði Ásdís Jóhannesdóttir og hló við eftir að plásturinn var settur á hana að lokinni bólusetn- ingu gegn mislingum á heilsugæslu- stöðinni Sólvangi í Hafnarfirði í gær. Hún er dagmóðir í Hafnarfirði og sagði eftir bólusetninguna að sér væri létt að hafa tekið af öll tvímæli um hvort hún væri ónæm og sagði upplýsingarnar um það hafa verið á reiki. Hún er frá Fáskrúðsfirði og gögn fundust ekki þar um þær sprautur sem hún fékk sem barn. Talsvert var um grátandi börn og þakkláta foreldra á Sólvangi um helgina, sem var ein af þeim 19 heilsugæslu- stöðvum á höfuð- borgarsvæðinu sem buðu upp á bólusetningar eftir hádegi laug- ardag og sunnu- dag. „Það er rosa- gott að fá þessa þjónustu um helgi,“ sagði Ásdís. „Þegar maður er dagmamma stekk- ur maður ekkert í burtu um miðjan virkan dag.“ Herramaðurinn næstur í stólinn hjá hjúkrunarfræðingum var Dagur Rafn Andrason, 15 mánaða. Granda- lausum brá honum allverulega við nálarstunguna og ekki var laust við grátstafi í kjölfar hennar. Honum voru þó umsvifalaust fluttar þær fréttir að „allt“ væri „bú“ og tók hann þá gleði sína á ný. Steinunn Guðmundsdóttir, móðir drengsins og jafnframt talsmaður hans, sagði illu best aflokið. Meirihluti árgangs bólusettur Fólk á öllum aldri sótti sér þessa þjónustu á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu um helgina, þar sem 2.500-2.600 manns voru bólusettir fyrir mislingum. Aðgerð- irnar gengu eins vel og menn þorðu að vona, að sögn Óskars Reykdals- sonar, setts forstjóra Heilsugæsl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, sem jafnframt verður umdæmislæknir sóttvarna þegar svona stendur á. Fimm mislingasmit eru staðfest á landinu, í Reykjavík og á Austur- landi, það fyrsta var staðfest 18. febrúar. Talað hefur verið um „lítinn faraldur“ en talið er að enginn þeirra sem smituðust sé í bráðri hættu. Forgangshóparnir um helgina voru börn á aldrinum 6-18 mánaða en almennt eru börn bólusett fyrir mislingum 18 mánaða. Fullorðnir fæddir eftir 1970 voru þó líka kall- aðir í bólusetningu, ýmist þeir sem höfðu ekki verið bólusettir eða þeir sem höfðu ekki fullvissu um að hafa verið það. Á bilinu 3.500-4.000 börn eru á aldrinum 6-18 mánaða á land- inu öllu. Með þessum aðgerðum er því afgreiddur stór hluti þess hóps, að viðbættum fjöldanum sem var bólusettur á Austurlandi. Óskar segir aðgerðirnar um helgina draga verulega úr líkunum á því að úr þessu verði faraldur sem erfitt verði að ráða við. Hann er ánægður með mætinguna á heilsu- gæslustöðvarnar og þakkar það tækni og nýjum tímum í upplýsinga- gjöf, og sömuleiðis árvekni lands- manna almennt. Hann segir að nú ættu allflestir að hafa verið bólusett- ir sem á annað borð þurfa á því að halda. Skutlast með bóluefni Bóluefni kláraðist á mörgum heilsugæslustöðvum um helgina og þurfti fólk þá að leita í nærliggjandi hverfi til að fá sprautu. Á Sólvangi þurftu starfsmenn að sækja meira bóluefni fyrst í Fjörðinn heilsugæslu og svo Garðabæ. Þar voru 109 sprautaðir á laugardaginn og annar eins fjöldi í gær. Óskar segir að bólu- efnið hafi dugað fyrir flesta í þessari lotu og dreifingaraðilar ráði nú ráð- um sínum til þess að hafa birgðir fyr- ir komandi daga. Um sinn er ennþá til nokkurt bóluefni. Á Austurlandi er einnig til nægt bóluefni. Þar voru 500 bólusettir um helgina. Bólusett var á Egilsstöðum og Eskifirði. Hlé var gert á bólusetn- ingum í gær en þær halda áfram í dag og út vikuna. Til viðbótar við Egilsstaði og Eskifjörð verður einn- ig bólusett á Vopnafirði, en þangað fór bóluefni um helgina, og Djúpa- vogi. Fyrst var bólusett gegn misling- um árið 1976. Fyrir þann tíma veikt- ust flestir af mislingum sem börn. Margir urðu mjög veikir en þó gerð- ist það ekki nema í undantekning- artilvikum að fólk lenti í lífshættu eða missti heyrn, sem getur verið af- leiðing alvarlegs mislingasmits. Ósk- ar segir það hafa þekkst hér á árum áður að börn dæju úr mislingum, m.a. í mislingafaröldrum sem gengu yfir landið á 6. og 7. áratugnum. Óskar segir framfarirnar tölu- verðar. Hann segir árangurinn síð- ustu daga dæmi þess „hve vel getur gengið þegar fólk tekur höndum saman“. Um 3.000 fengu mislingasprautu  Svo til heill árgangur var bólusettur  Talsverður viðbúnaður á heilsugæslustöðvum á höfuðborgar- svæðinu um helgina  Fimm tilfelli staðfest  Óviðráðanlegur faraldur er sagður ólíklegur úr þessu Morgunblaðið/Hari Bólusetning Meðal þeirra sem voru bólusettir gegn mislingum um helgina var Dagur Rafn Andrason, 15 mánaða. Honum brá nokkuð við nálarstunguna, en tók gleði sína fljótt á ný. Fjöldi ungra barna fékk bólusetningu. Á heilsugæslu Ásdís Jóhannesdóttir var ein þeirra sem fengu bólusetningu um helgina, en hún var ekki viss um hvort hún hefði verið bólusett áður. Óskar Reykdalsson Svandís Svav- arsdóttir heilbrigðis- ráðherra segir misl- ingasmitin að undan- förnu hafa verið áfall sem þó sýni hversu sterkt íslenskt heilbrigðiskerfi stendur þegar í harðbakkann slær. Hún segir þessa at- burðarás áminningu til allra landsmanna um að sinna bólusetningum vel. „Mér finnst gott að sjá hvað við höfum sterka innviði í íslenska heilbrigðiskerfinu til að bregðast við uppákomum af þessu tagi,“ segir Svandís í samtali við Morgunblaðið. „Þessi lota hefur sýnt okkur að við höfum traust og gott kerfi.“ Sömuleiðis ítrekar hún mik- ilvægi þess að heilbrigðisgögn séu aðgengileg almenningi. Hún segir algert forgangsmál að halda traustar sjúkraskrár. „Fólk þarf að geta fylgst með samskiptum sínum við heil- brigðisstofnanir og þannig fylgst betur með eigin heilsu,“ segir Svandís. Borið hefur á því að fólk finni engar upplýsingar um hvort það hafi verið bólusett á sínum tíma. Slíkt á ekki að gerast, að mati Svandísar. Sýnir traust og gott kerfi HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Svandís Svavarsdóttir Allt búið Bóluefni gegn mislingum kláraðist víða um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.