Morgunblaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2019
SÉRBLAÐ
Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun, hárgreiðsla,
brúðkaupsferðin, veislumatur, veislusalir og
brúðargjafir eru meðal efnis í blaðinu.
Brúðkaups
blað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 5. apríl
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir föstudaginn 29.mars.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú munt rekast óvænt á mann sem
kennir þér ýmislegt um virðingu. Talaðu skýrt
þegar þú segir öðrum skoðanir þínar.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú stendur eins og klettur í öllu því róti
sem í kringum þig er. Farðu yfir eignir og
skuldir og taktu svo ákvörðun um fram-
haldið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
tekur ákvörðun sem snertir menntun og
framtíð þína. Hinir hæfileikaríku, áköfu og
skrýtnu í vinahópnum þínum hafa góð áhrif á
þig núna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu ekki að slá ryki í augu ann-
arra. Þér eru allir vegir færir ef þú bara trúir
því. Þú færð fréttir sem hræra upp í tilfinn-
ingunum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Maður er manns gaman segir máltækið
og það á alltaf við. Fólk veit ekki alveg hvar
það hefur þig þessa dagana, þú ýmis kyssir
það eða hvæsir á það, hvað er að angra þig?
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ef þú átt þér draum og trúir nógu
mikið á hann er líklegt að hann rætist einn
góðan veðurdag. Sumt er þannig að þú verð-
ur að hrökkva eða stökkva.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu að skipuleggja þig áður en þú
gerir áætlanir fyrir kvöldið. Næstu fjórar til
sex vikurnar henta vel til einveru og íhug-
unar. Hugaðu að heilsunni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér finnst mikið hvíla á þér og
þú hefur áhyggjur af fjárhagnum. Um leið og
þú nýtur þess að klára hluti nagar þú negl-
urnar yfir yfirvofandi verkefnum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sumar hugmyndir þínar sem
hafa fengið að dúsa í rykugu horna heilabús-
ins, eru enn góðar og gildar. Hvettu ástvini til
þess að styðja þig með því að veita þér svig-
rúm.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér þykir vænt um vini þína og og
veitir þeim þá athygli semþeir þarfnast.
Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila
og að sættir byggjast á málamiðlun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt auðvelt með að fá þá sam-
vinnu sem þú sækist eftir í dag. Hugsun þín
er skörp og þú ert í góðu jafnvægi um þessar
mundir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Staðreyndin er að fjármál þín eru ekki
eins og þú vilt hafa þau. Það er óvænt frí
framundan hjá þér og í því muntu hitta fram-
tíðarmakann.
Gunnar J. Straumland segir áBoðnarmiði: „Tíðindi úr Hval-
fjarðarsveit. – Nú virðast æ fleiri
fiðraðir einstaklingar velja það
hlutskipti að hafa hér vetursetu, –
sem er misjafnlega gáfuleg ákvörð-
un:“
Skjálfandi og staurfrosinn starri
stendur á haus útí kjarri
því síðustu nótt
næddi svo ótt
norðan og norðaustan garri.
Þá birtist hér, kjökrandi og kaldur,
krókloppinn, þunglyndur tjaldur.
„Í þessu frosti
ég er bara í losti,“
hann stamaði og stytti sér aldur.
Guðmundur Arnfinnsson lét ekki
sitt eftir liggja og orti „Fuglalimr-
ur“:
Þreytir mig þessi garri
kvað þröstur, sem skalf út’ í kjarri
og vindbarin lóa,
sem varp út’ í móa
og krókloppinn rjúpukarri.
Með röddina háa og hvella
heyra má spóann vella
í mýri og mó,
en mörgum finnst þó
sá kveðskapur dæmalaus della.
Anton Helgi Jónsson kemur úr
annarri átt, – „blendin fagn-
aðarlæti úr gömlu limrukveri“:
Þegar ég rímurnar rappaði
með rytmanum salurinn stappaði
og barfólkið kátt
það blístraði hátt
en bara sá einhenti klappaði.
Helgi R. Einarsson leyfði þessari
limru sem hann kallar „Draumóra“
að fljóta með lausn sinni á gátunni á
laugardag:
Gott er í leti að liggja,
að litlu’ eða engu að hyggja,
hugsa’ út í eitt
um alls ekki neitt
og draumaborgir að byggja.
Indriði Aðalsteinsson yrkir um
breytta bændaforystu:
Okkar bænda er mæðan mörg
og mjög svo þrotinn kraftur.
Sindri gekk í bankabjörg
og birtist varla aftur.
Úr því hann er fallinn frá
og fleiri liggja í roti,
góðar óskir gef ég þá
Gunnu í Svartárkoti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fuglalimrur og
fleira flýtur með
„GLATAÐ, GAUR – ÞAÐ ER KOMIN
FJARA.” „VIÐ AUGLÝSTUM EFTIR ÖKUMANNI.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að rista brauðið eftir
hennar óskum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVAÐ ÆTLI SÉ Á
SEYÐI Í DAG? ÁI!
ANNAÐ EN
HÁLSRÍGUR
KÓLFUR ER VIÐKUNNANLEGUR, EN HANN ER
HRÆÐILEGUR VÍKINGUR … VIÐ VERÐUM AÐ
LOSA OKKUR VIÐ HANN!
ÉG FÆ MIG EKKI TIL
AÐ REKA HANN …
SENDU HANN Á
VÍGVÖLLINN!
ANDVARP …
Engin vá steðjar að þótt eitthvaðhægi á mikilli fjölgun erlendra
ferðamanna sem koma til landsins.
Þvert á móti er ágætt að mati Vík-
verja að jafnvægi komist á mál og
munum að allar veislur og vaxtar-
skeið taka enda um síðir. Engin
ástæða er fyrir þeirri örvæntingu
sem virðist svo víða gæta því hrun í
túrismanum er alls ekki í spilunum.
Ísland verður væntanlega áfram vin-
sæll áfangastaður ferðamanna víða að
úr veröldinni og ferðaþjónustan mik-
ilvæg stoð í atvinnulífi þjóðarinnar.
x x x
Hitt er þó athyglisvert, hversu tak-markaða athygli virkilega við-
sjárverð tíðindi vekja, það er að engin
veiðist loðnan. Tekjutap af þeim sök-
um verður, að fróðra manna mati, um
20 milljarðar króna; peningar sem
hefðu svo streymt út um allan þjóð-
arlíkamannn. Að loðna bregðist er
áhyggjuefni fyrir þjóðfélag sem lengi
hefur byggt afkomu sína á sjávar-
útvegi.
x x x
Fróðir menn telja að hlýnun and-rúmsloftsins sé meðal orsaka
þess að loðnan finnst ekki. Stundum
þarf háska og hörmungar til að vekja
fólk til umhugsunar um hlutina og
víst er að æ meiri þungi er í allri um-
ræðu um loftslagsbreytingar. Sann-
arlega hefur sitthvað verið gert til
þess að snúa þróun mála við en meira
þarf til. Þar hljóta frekari takmark-
anir á útblæstri mengunar frá stór-
iðju og útgerð að vera efstar á blaði.
x x x
Á síðustu árum hafa komið frammargar ágætar hugmyndir um
hvernig almenningur getur með
breytingum á daglegri neyslu sinni
haft áhrif til umhverfisbóta. Margar
af þeim tillögum eru þó aðeins smá-
skammtalækningar sem duga
skammt þegar veröldin er í vanda,
svo sem aðgerðir gegn matarsóun, að
tína vörurnar í versluninni í tau- en
ekki plastpoka, að hjóla og ganga
frekar en aka bíl og svo framvegis.
Allt er þetta gott og blessað en gerir
samt ekki útslagið. Sumt er raunar
helst í líkingu við sölu aflátsbréfa, hé-
gilju sem átti að færa iðrandi fólki frið
í sálina. vikverji@mbl.is
Víkverji
Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég
gangi í sannleika þínum, gef mér heilt
hjarta, að ég tigni nafn þitt.
(Sálm: 86.11)