Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 16

Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar- ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGAR MIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna- yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd- aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava Vínarborg og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga- rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason Ágúst Ingi Jónsson Loðnubresturinn er mikið áfall fyrir einstök sjávarútvegs- og þjónustu- fyrirtæki og samfélögin sem þau starfa í. Sjómenn á uppsjávarskipum verða launalitlir í sjö mánuði og eng- in uppgrip verða hjá starfsfólki loðnubræðslnanna og uppsjávar- frystihúsanna þetta árið. Það áfall sem fyrirtækin og starfsfólkið verð- ur fyrir smitast út í samfélögin og hefur áhrif á flesta íbúa þeirra þegar upp verður staðið. Stjórnendur sveitarfélaga sem eiga hagsmuna að gæta í veiðum og vinnslu loðnu eru að taka saman upp- lýsingar um áhrif loðnubrests á byggðarlögin. Eftir að tilkynnt var um að Hafrannsóknastofnun myndi ekki standa fyrir frekari leit að loðnu á þessari vertíð og þar með ljóst að ekki verður neinn loðnukvóti gefinn út hafa stjórnendur sjávarútvegsfyr- irtækjanna sest yfir reksturinn. Það sama á við um fyrirtæki sem þjóna veiðum og vinnslu á loðnu. Gríðarlegt áfall Góðar loðnuvertíðir árin 2012 og 2013 skiluðu 30-34 milljörðum króna í útflutningsverðmætum, á verðlagi hvers árs. Undanfarin 3 ár hefur loðnan skilað um 18 milljörðum á ári, samkvæmt upplýsingum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Frá árinu 2000 hafa loðnuafurðir skilað að með- altali 9% af verðmæti sjávarafurða. „Þetta er gríðarlega mikið áfall fyrir fyrirtækin og samfélögin. Einn- ig fyrir þjónustufyrirtækin sem hafa verið að þjónusta greinina svo sem við löndun, brettasmíði og fleiru. Ég geri ráð fyrir að nú sitji hver og einn stjórnandi og fari yfir stöðu síns fyrirtækis og reikni,“ segir Jens Garðar Helgason, formaður Sam- taka fyrirtækja í sjávarútvegi. Hann segir að loðnubresturinn sé einnig mikið högg fyrir þjóðarbúið þar sem ríkissjóður verði af að minnsta kosti 4 milljörðum króna í tekjur, ef miðað er við vertíð eins og var í fyrra sem þó hafi ekki verið neitt sérstök. Fyrirtæki í Fjarðabyggð eru með mesta loðnukvótann og þar komu á land um 47% aflans á síðasta ári. Fyrirtækin þar verða því af miklum tekjum, eða um 10 milljörðum ef tekið er mið af síðasta ári. Fjármála- stjóri bæjarins hefur reiknað út að launatekjur starfsmanna sjávarút- vegsfyrirtækja í Fjarðabyggð af veiðum og vinnslu loðnu hafi numið einum milljarði á árinu 2018. Mun loðnubresturinn lækka laun starfs- manna um 13%. Að auki er gert ráð fyrir að samdráttur í launatekjum starfsmanna í þjónustufyrirtækjum nemi um 250 milljonum króna. Í heild muni launatekjur íbúa í Fjarðabyggð dragast saman um að minnsta kosti 5% á milli ára. Fram kom hjá fjármálastjóra bæjarins að 15 starfsmönnum hafi verið sagt upp störfum vegna óviss- unnar. Þar mun aðallega vera um að ræða starfsmenn Tandrabergs sem vinna við löndun og smíði frysti- bretta. Bæjarsjóður Fjarðabyggðar og hafnasjóður verða af um 260 millj- óna króna tekjum og hefur bæjarráð óskað eftir því að forstöðumenn stofnana undirbúi sparnaðaraðgerð- ir. Gunnþór Ingvason, fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, sagði í samtali við mbl. í fyrradag, að vitað væri að loðnustofninn væri að endurnýja sig. „[...Þ]að er enginn afkomubrest- ur í hrygningarstofni. Við þurfum bara að setja þessa vertíð aftur fyrir okkur og draga saman seglin og mæta því og horfa svo bara bjartsýn inn í framtíðina.“ Hann lagði áherslu á að sett yrði aukið afl í rannsóknir. Afla þekkingar um það hvað væri að gerast og hvernig loðnan hegðaði sér, svo að hægt verði að nýta hana með sjálfbærum hætti. Mál okkar allra „Eins og staðan er núna verða engar loðnuveiðar í ár. Enn er ekki hægt að fullyrða hver áhrifin verða,“ segir Hrafn Sævaldsson, nýsköpun- ar- og þróunarstjóri Þekkingarset- urs Vestmannaeyja, sem vinnur að því með stjórnendum bæjarins og fyrirtækjanna að undirbúa opinn fund með bæjarbúum til að fara yfir stöðu mála. Á vegum bæjarins er verið að taka sama upplýsingar um áhrif loðnubrestsins í Eyjum og verður hún lögð fyrir bæjarráð ein- hvern næstu daga. Ljóst er að áhrifin verða mikil í Vestmannaeyjum. Nærri þriðjung- ur loðnukvótans er vistaður á skip- um þar þótt hluta aflans sé landað á Þórshöfn. Um þriðjungur af þeim útflutningstekjum sem tapast bitnar því á fyrirtækjum, starfsfólki og sveitar- og hafnarsjóðum. „Þótt við séum ekki lengur í efsta sæti yfir þau sveitarfélög þar sem hæst hlut- fall tekna er af sjávarútvegi erum við alveg við toppinn. Við erum uppsjávarveiðasamfélag og áhrifin af svona höggi verða mikil,“ segir Hrafn. Hann bendir á að áhrifin verði mikil á sjómenn á skipum sem eru á uppsjávarveiðum. Þeir hafi lokið síldveiðum í lok nóvember og verði tekjulitlir fram í júlí þegar reiknað er með að makrílveiðar hefjist. Ein- hverjir túrar á kolmunna breyti ekki miklu um það. Minni vinna verði í frystihúsum og fiskimjölsverksmiðj- um. Ekki komi inn tekjur á skip, fiski- mjölsverksmiðjur og ný uppsjávar- frystihús sjávarútvegsfyrirtækj- anna. Þjónustufyrirtæki við sjávarútveginn muni finna fyrir áhrifunum því loðnufyrirtækin muni ekki þurfa á nema lágmarks þjón- ustu að halda. Þá verði sveitarfélagið af miklum tekjum. „Áhrif samdráttar á veiðar og vinnslu, tekjur og laun er hægt að reikna út. Síðan eru matskenndir þættir sem hafa einnig áhrif. Þegar minni peningar koma inn í hagkerfið eyðir fólk minna og það hefur áhrif út um allt samfélagið þótt erfitt sé að mæla það,“ segir Hrafn. Hann veltir því fyrir sér hvort hægt sé að grípa til mótvægisað- gerða til að deyfa áhrifin. Fordæmi séu fyrir því. Segir Hrafn að þessa umræðu þurfi að taka. „Sjómenn og fiskverkafólk er ekki eitt í þessu. Þetta er mál okkar allra,“ segir hann. Skoða hagræðingu Bein áhrif loðnubrestsins koma fram í Vestmannaeyjum með því að Ísfélag Vestmannaeyja hefur aug- lýst uppsjávarskipið Álsey til sölu og sagt upp hluta áhafnar þess. Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri fé- lagsins, sagði við mbl.is að horfur væru á minnkandi verkefnum, með- al annars vegna þess að ekki hefðu tekist samningar við Færeyingar um veiðar á kolmunna og útlit fyrir minnkandi kvóta í makríl og norsk- íslenskri síld í framtíðinni. „Hvar eiga þau að skera niður?“ spurði Gunnþór Ingason blaðamann mbl.is. Hann sagði að einhver hag- ræðing yrði í rekstri Síldarvinnsl- unnar en ekki væri tímabært að gefa út með hvaða hætti brugðist yrði við. Jens Garðar Helgason segir ekki hægt að segja til um það hvort fyrir- tækin muni selja frá sér fleiri skip. Spurður um hugsanlegar uppsagnir sjómanna og fiskverkafólks segist Jens Garðar vonast til að ekki þurfi að koma til þess. „Ég geri ráð fyrir að stjórnendur fyrirtækjanna séu nú að fara yfir stöðuna. Það er algert neyðarbrauð að segja upp fólki. Ef til þess kemur vona ég að það verði í algeru lágmarki,“ segir hann. Engin uppgrip á sjó eða landi  Loðnubresturinn er mikill áfall fyrir sjávarútvegs- og þjónustufyrirtækin og samfélög þeirra  Sjómenn verða launalitlir í marga mánuði  Ríkið verður af um fjórum milljörðum í skatttekjum Morgunblaðið/Kristinn Neskaupstaður Fjarðabyggð er það sveitarfélag landsins sem mest á undir loðnuveiðum og vinnslu. Tæpur helmingur loðnuaflans barst á land þar á síðasta ári. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vestmannaeyjar Loðnubresturinn hefur víðtæk áhrif í Vestmannaeyjum, eins og öðrum bæjum sem hafa treyst á loðnuna, og hríslast út um allt samfélagið. Allir bæjarbúar finna fyrir honum. Ljóst er að loðnubrestur og litlar veiðar á humri í ár munu hafa veru- leg áhrif á Hornafirði. Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri á Höfn, segir stöðuna varðandi loðnuna speglast í samþykkt bæjarráðs 4. mars síðastliðinn. Þar var fjármálastjóra falið „að meta hvort loðnubrestur valdi forsendu- bresti í tekjuáætlun fjárhagsáætl- unar sveitarfélagsins“. Matthildur segir að unnið sé að þessu mati og það verði væntan- lega lagt fram á fundi bæjarráðs næsta mánudag. Það sé hins vegar alveg ljóst að loðnubrestur og lítill humarafli, þó svo að þar sé enn óvissa með aflaheimildir, muni hafa áhrif á útsvarsgreiðslur til sveitar- félagsins og tekjur hafnarsjóðs. Skinney-Þinganes sé einn stærsti vinnuveitandinn á staðnum og þessi áföll muni hafa áhrif víða í samfélaginu. Hins vegar hafi fjölmörg störf verið í boði á Höfn í tengslum við ferðaþjónustuna og í raun verið slegist um hverja hönd, sem hafi verið á lausu. Á síðasta ári hafi orð- ið meiri fjölgun ferðamanna á Höfn heldur en var á landsvísu. Mesta aukning hafi verið yfir vetrartímann og góður gangur hafi verið í þessari starfsemi undanfarið. Þetta sé mik- ill styrkur þegar bjáti á í sjávar- útvegi og mörg önnur sveitarfélög geti ekki reitt sig á slíkt. „Eigi að síður höfum við miklar áhyggjur af stöðunni,“ sagði Matt- hildur. Miklar áhyggjur af stöðunni VERULEG ÁHRIF Á HÖFN Í HORNAFIRÐI Ljósmynd/Börkur Kjartansson Loðnuvertíð Jóna Eðvalds frá Höfn á loðnumiðunum veturinn 2016. Loðnubrestur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.