Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 31
FRÉTTIR 31Bílaíþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
að endurreisa gamalt topplið sem
hefur verið langt undir getu und-
anfarin ár. Hann rak smiðshöggið
á síðasta degi vetraræfinganna í
Barcelona með því að ná mestum
hraða í hring þann daginn. Spurn-
ing er hvort það sé vísbending um
betri daga fyrir McLaren.
„Sértu í vafa, aktu í botni“
George Russel hefur þótt af-
burðaefnilegur en fyrir utan titil
ökumanna í formúlu-2 í fyrra varð
hann einnig heimsmeistari öku-
manna í GP3-formúlunni 2017. Gef-
ur hann aldrei neitt eftir eins og
einkennisorð hans sýna: „sértu í
vafa, aktu í botni“. Eins og Norris
keppir Russell með gömlu stórliði
sem hefur ekki náð fótfestu í form-
úlunni um árabil. Spurning er
hvort þeim Kubica takist að reisa
Williams úr öskustónni.
Russell varð Bretlandsmeistari í
körtukappakstri 2009 og vakti síð-
ar áhuga Mercedes sem tók hann
upp á arma sína og réði hann í
þróunarskóla sinn 2017. Í skólun
hans fólst meðal annars reynslu-
akstur á stöku kappaksturshelgum
með Force India, liði sem nú hefur
fengið nýtt nafn, Racing Point.
Russell sem er 21 árs er lýst sem
lítillátum og greindum. „Ég veit
hvers ég er megnugur og ég veit
hvað mig dreymir um, en mikil-
vægt er að ég missi ekki stjórn á
sjálfum mér,“ sagði hann.
Hinn 22 ára gamli Alexander
Albon er mikill vinur Russells og
fylgir þeim Norris inn í formúlu-1
úr formúlu-2 sem fóðrað hefur
margan ökumanninn upp í aðal-
greinina. Orð fór af framúrtökum
hans en hann var einnig liðsfélagi
Charles Leclerc hjá franska liðinu
ART í GP3-formúlunni 2016. Það
ár urðu þeir í tveimur efstu sætum
í keppni ökumanna í greininni.
Albon er fæddur í London, á
breskan föður og taílenska móður.
Aðeins einu sinni áður hefur Taí-
land átt fulltrúa í formúlu-1 en það
var Birabongse Bhanudej Bhanu-
bandh prins, eða „B Bira“ á sjötta
áratrug síðustu aldar. Tólf ára
gamlan tók Red Bull hann upp á
arma sína 2012 og hann klifraði
hægt og bítandi upp metorðastig-
ann uns hann varð þriðji í form-
úlu-2 í fyrra á eftir Russell og
Norris. Hjá Toro Rosso-liðinu
kemur Albon í stað Pierre Gasly,
sem fékk stöðuhækkun er hann var
ráðinn til að keppa fyrir Red Bull.
Fyrsti Ítalinn í átta ár
Antonio Giovinassi er aldurs-
forseti nýliðanna, 25 ára gamall.
Hann er þó ekki algjörlega óþekkt-
ur á rásmarkinu þar sem hann
hljóp árið 2017 í skarð hins slasaða
Pascals Wehrlein hjá Sauber. Stóð
hann sig vel með tólfta sætinu í
Melbourne en í næsta móti, í Kína,
flaug hann á öryggisvegg bæði í
tímatökunni og sjálfum kappakstr-
inum.
Giovinassi sýndi öflugt kappakst-
urseðli 2016 er hann lauk vertíð-
inni rétt á eftir þáverandi liðs-
félaga sínum, Pierre Gasly. Hann
er fyrsti ítalski ökumaðurinn í
formúlu-1 frá því Jan Trulli hætti
keppni 2011.
Giovinassi gekk upp í gegnum
þróunarverkefni Ferrari fyrir unga
ökumenn og var varaökumaður
liðsins 2017 og 2018, sinnti akstri á
æfingum og í ökuhermi. „Ég er til-
búnari fyrir formúluna nú en 2016
og 2017. Þetta er fyrsta vertíðin
mín á eigin bíl, hjá góðu liði og
með liðsfélaga [Kimi Räikkönen]
sem ég get lært heilmikið af,“
sagði Giovinassi.
Öruggari hjálmar
Hjálmar ökumanna í ár verða
nýrrar hönnunar til að auka enn
frekar á öryggi. Eiga þeir að
standast högg frá málmskífu sem
skotið væri í hjálminn á 250 km/
klst hraða. Þeir verða einnig að
þola 790°C eldblossa og loftriffils-
skot í hjálmglerið ásamt því að
brotna ekki þótt 10 kílóa lóð væri
látið falla á þá úr fimm metra hæð.
Vegna breytinga á hönnunar-
forsendum bílanna verða fram- og
afturvængir einfaldari og vind-
skeiðar á hliðum smærri. Tilgang-
urinn er að draga úr vængpressu
og skilvirkni lofstreymis um og yfir
bílana. Eftir æfingarnar í Barce-
lona létu liðin í ljós efasemdir um
að þessar breytingar skiluðu tilætl-
uðum árangri, að auka á keppni í
návígi.
Keppnisdekkin eru einnig nýrrar
gerðar og verða í þremur litum,
rauð (mjúk), gul (meðalhörð) og
hvít (hörð).
Keppnistíðin stendur næstum
níu mánuði, lýkur í Abu Dhabi 1.
desember. Hefur ekki verið keppt
svo lengi frá 1963 er Jim Clark
vann titilinn á Lotus með sigri í sjö
mótum af tíu frá Mónakó í maí til
jóla í Suður-Afríku.
Ökumenn verða að losa
stýrishjólið og koma sér
út úr bílnum á 7 sekúndum
Útbúnaður til að styðja
við háls og höfuð (HANS)
verndar háls og höfuð
ef árekstur verður og kemur í
veg fyrir tognun og hálsbrot
Hjálmur festur með
tveimur ólum við grind
sem liggur yfir
axlir ökumannsins
Ólar
Sex punkta öryggisbelti
Líftölfræðilegir hanskar
Skylda. Mæla hjartslátt og
súrefni í blóðimeð skynjurum.
Verði slys geta læknar strax
fengið upplýsingar um lífsmörk
Hjálmur
búinn til úr háþróuðum efnablöndum
og er afar sterkur og léttur
Loftaflfræðileg hönnun
til að halda höfði ökumanns
stöðugu ámiklum hraða
Sætið
fellur þétt
að ökumanni
Öryggisbúr
Hannað til að þola
harðan árekstur
Stýrishúsið
Útbúið með
slökkvikerfi
Öryggisbúnaður ökumanna
Heimild : Formula 1.com
Geislabaugur
Útbúnaður úr títan og koltrefjum. Vegur 7 kíló
en gæti borið tveggja hæða strætisvagn
Voltaren Gel er bæði verkjastilland
og bólgueyðandi
Vöðva eða liðverkir?
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
i
va dlega upplýsingar á umbúðum .
15%
afslátturaf 100g og 150gVoltaren Gel