Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Neðri deild breska þingsins sam-
þykkti í gærkvöldi tillögu stjórnar-
innar um að hafna útgöngu Bret-
lands úr Evrópusambandinu án
samnings 29. mars næstkomandi
með 321 atkvæði gegn 278. Breyt-
ingartillaga um að hafna því að landið
gengi nokkurn tíma úr ESB án
samnings hafði áður verið samþykkt
með 312 atkvæðum gegn 308, en hún
er ekki lagalega bindandi. Tillögu um
að fresta útgöngunni til 22. maí til að
undirbúa útgöngu án samnings var
hafnað með 374 atkvæðum gegn 164.
Gert er ráð fyrir því að neðri deild
þingsins greiði atkvæði í dag um
hvort fresta eigi útgöngunni.
Tillögurnar voru bornar undir at-
kvæði eftir að þingdeildin hafnaði
Brexit-samningi bresku stjórnar-
innar við ESB í fyrrakvöld með 149
atkvæða mun. Á meðal þeirra sem
greiddu atkvæði gegn samningnum
voru 75 þingmenn Íhaldsflokksins og
allir tíu þingmenn norðurírska
flokksins DUP, sem styður minni-
hlutastjórn Theresu May forsætis-
ráðherra. Áður hafði þingdeildin
hafnað samningnum með 230 at-
kvæða mun í janúar.
Leysir ekki vandann
May sagði eftir ósigurinn í fyrra-
kvöld að ef þingið hafnaði útgöngu án
samnings og frestaði henni myndi
það ekki leysa vandann sem Bretar
stæðu frammi fyrir. „Evrópusam-
bandið myndi vilja fá að vita hvernig
við hygðumst nýta frestunina. Þing-
deildin þarf að svara þeirri spurn-
ingu,“ sagði May og bætti við að
þingdeildin þyrfti einnig að svara því
hvort hún vildi ógilda þá ákvörðun
sína að virkja 50. grein Lissabon-
sáttmálans um útgöngu úr Evrópu-
sambandinu. „Vill þingið efna til ann-
arrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Eða
vill það útgöngu með samningi en
ekki þennan samning?“
Samþykki neðri deild þingsins að
óska eftir því að Brexit verði frestað
þurfa öll hin aðildarríkin 27 að sam-
þykkja frestunina og leiðtogar ESB
hafa sagt að hún yrði ekki samþykkt
nema Bretar legðu fram trúverðug
rök til að réttlæta hana. Næsti leið-
togafundur ESB-ríkjanna verður
haldinn á fimmtudag og föstudag í
næstu viku.
Nokkur ESB-ríkjanna eru hlynnt
því að Brexit verði frestað þar til í lok
ársins eða jafnvel lengur til að gefa
breskum stjórnvöldum meiri tíma til
að ráða fram úr vandanum. May hef-
ur sagt að Bretar geti ekki frestað út-
göngunni lengur en í tvo eða þrjá
mánuði og er andvíg því að Bretar
taki þátt í kosningum til Evrópu-
þingsins í maí.
Mikill ágreiningur er í ríkisstjórn
May og þingflokki breskra íhalds-
manna um hvernig tengslin við ESB
eiga að vera eftir útgönguna. Nokkr-
ir ráðherra hennar hafa beitt sér fyr-
ir því að May hefji viðræður um nýj-
an samning sem feli í sér nánari
tengsl við Evrópusambandið en gert
er ráð fyrir í Brexit-samningnum
sem neðri deildin hafnaði. Andstæð-
ingar ESB í Íhaldsflokknum eru hins
vegar andvígir því og vilja að Bretar
gangi þegar í stað úr Evrópusam-
bandinu til að þeir geti gert við-
skiptasamninga við önnur ríki og
þurfi ekki að lúta lögum ESB.
Nokkrir ráðherrar í stjórn May
telja enn möguleika á að Brexit-
samningur hennar verði samþykktur
í neðri deild þingsins í næstu viku og
Brexit-sinnar í Íhaldsflokknum greiði
þá atkvæði með honum af ótta við að
ella verði ekkert úr útgöngunni.
Hafnar útgöngu án samnings
Neðri deild breska þingsins samþykkti tillögu um að útiloka útgöngu úr ESB 29. mars án samnings
Samþykkti einnig tillögu um að hafna því að Bretar gengju nokkurn tíma úr ESB án samnings
0
30
60
90
120
150
180
201720152013201120092007
0
30
60
90
120
150
180
201720152013201120092007
Utanríkisverslun Bretlands
Heimild: ONS
Viðskipti við ESB-lönd
á ársfjórðungi, í milljörðum punda
Viðskipti við önnur lönd
Innflutningur Bretlands Innflutningur Bretlands
Útflutningur Útflutningur
71,46
47,08
55,36
85,93
619 ma.
Alls árið 2017 Alls árið 201
640 ma.
75,79
45,97
45,27
85,34
Evrópusambandið án Bretlands
Heimild: Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
Flatarmál
í þúsundum km2
27 ESB-lönd
4.215
248
Íbúafjöldi
í milljónum, 2018
509
66
Verg landsframleiðsla
í billjónum €, mars 2019
13,48
2,39
Bretland
Fyrirtækin óánægð
» Stærstu samtök breskra
fyrirtækja hvöttu í gær breska
þingið til að afstýra því að
Bretland gengi úr Evrópusam-
bandinu án samnings og gagn-
rýndu framgöngu breskra
stjórnvalda í málinu.
» Philip Hammond fjármála-
ráðherra sagði að Brexit án
samnings myndi leiða til auk-
ins atvinnuleysis, lægri launa
og hærra vöruverðs.
» Um 70% af landbúnaðar-
afurðum, sem seldar eru í
Bretlandi, 73% af lyfjainnflutn-
ingnum og 80% af bílahluta-
innflutningnum koma frá ESB-
löndum.
AFP
Mótmæli Brexit-sinnar mótmæla fyrir utan þinghúsið í Lundúnum.
R
GUNA
GÓÐAR
I
Donald Trump Bandaríkjaforseti til-
kynnti í gær að ákveðið hefði verið
að kyrrsetja allar farþegaþotur af
gerðinni 737 Max í landinu eftir flug-
slysið í Eþíópíu á sunnudaginn var.
Bandaríska flugmálastjórnin (FAA)
sagði að ákvörðunin byggðist á nýj-
um upplýsingum sem komið hefðu
fram.
Trump sagði á blaðamannafundi í
Hvíta húsinu síðdegis í gær að allt
flug Boeing-véla af gerðunum 737
Max 8 og 737 Max 9 yrði bannað í
Bandaríkjunum um óákveðinn tíma.
Gengi hlutabréfa í Boeing lækkaði
um 2% eftir að forsetinn skýrði frá
þessu.
Fyrr um daginn bættist Kanada í
hóp ríkja sem hafa bannað flug þotn-
anna í lofthelgi sinni.
157 manns fórust þegar þota af
gerðinni 737 Max 8 hrapaði skömmu
eftir flugtak í Eþíópíu á sunnudag-
inn. Fimm mánuðum áður létu 189
manns lífið þegar þota af sömu gerð
hrapaði í Indónesíu.
AFP
Sorg Konur á minningarathöfn um fólk sem fórust í flugslysinu í Eþíópíu.
Max-þotur kyrr-
settar vestanhafs