Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 45

Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Þegar frost er á fróni Þinn dagur, þín áskorunOLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Heimkaup Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri • Lífland, Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga Borgarsport, Borgarnesi • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði • Þernan, Dalvík Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi 100% Merino ullarnærföt Stærðir: S–XXL Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.run.is Í heimildamyndinni Leaving Neverland segja þeir Wade Robson og James Safec- huck frá því hvernig tónlistarmaðurinn Michael Jackson hafi beitt þá kynferðis- legu ofbeldi þegar þeir voru börn. Ákæru árið 1993 lauk með sátt Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jackson er sakaður um barnaníð, en ásakanir hafa loðað við hann allan hans fullorðinsferil, allt þar til hann lést árið 2009. Árið 1993 komst hann í heimsfréttirnar þegar hann var sakaður um að hafa brotið á Jordy Chandler, þrettán ára gömlum pilti. Jackson og fjölskylda Chandlers komust að samkomulagi um sáttagreiðslu upp á milljónir Bandaríkjadala. Í þeim réttarhöldum var Wade Robson eitt lykil- vitna, sem neitaði því að Michael hafi nokkurn tíma beitt hann kynferðisofbeldi, þrátt fyrir að þeir hefðu margoft sofið í sama rúmi. Í dag halda þeir Wade og James því hinsvegar fram að Jackson hafi misnotað þá þegar þeir voru börn. Þeir lýsa brot- unum í smáatriðum í myndinni en báðir eyddu þeir miklum tíma á heimili og ævin- týralegum búgarði Jackson sem bar heitið Neverland. Alltaf sama aðferð Það hefur vakið athygli og mikil umræða skapast um af hverju James og Wade koma svona seint fram með sínar sögur. Sigríður segir að upplifun barna af kyn- ferðisofbeldi sé ekki endilega að þetta sé eitthvað slæmt eða vont, hvað þá að það sé ofbeldi. Hún segir að leið Michael Jackson til að ná til drengjanna hafi alltaf verið sú sama. Það var ekkert sem gaf til kynna að það væri einhver hætta á ferðum. Foreldr- arnir óttuðust hann ekki, aðrir í kringum Michael voru ekki hræddir, af hverju hefðu drengirnir átt að vera hræddir við hann? Börn efast ekki um góðmennsku annarra og í hugarheimi barna, getur fullorðinn að- ili ekki bæði verið góður og vondur. Og ef einstaklingur er „góður“ og barnið búið að upplifa sig öruggt, t.d. með vináttu og gjöfum, þá getur barnið ekki sett það sem er að gerast í samhengi við eitthvað slæmt. Það kom sterkt fram í þættinum, t.d. við- talið sem James tók í flugvélinni, um hvað honum (Michael) fannst skemmtilegast í Disney-ferðinni, var svar hans m.a. „Að vera með þér,“ eins og Sigríður lýsir því. Dæmigerð viðbrögð þolenda Aðferðin sem Michael notaði er dæmi- gerð fyrir gerendur og viðbrögð þeirra James og Wade eru dæmigerð fyrir við- brögð barna og unglinga sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku. Börn segja sjaldnast frá. Börn þurfa að fá að heyra – helst frá foreldrum sínum – hvað er í lagi og eðlilegt í samskiptum, hvar liggja mörk- in og hvað eru einkastaðir líkamans. Og síð- ast en ekki síst þurfa börn að heyra að að- ilar sem þau þekkja vel eða þykir vænt um geti reynt að brjóta reglur um einkastaðina. Í kynferðisofbeldi felast m.a. atlot og snert- ingar og líkami barna örvast við snertingu. Börn hafa ekki skilning á því að þetta er of- beldi. Þetta eru bara börn og það er í verkahring fullorðinna að vernda þau. Vegna sterkra viðbragða vill Sigríður benda á fræðslu fyrir fullorðna um hvernig er hægt að Vernda börn á blattafram.is Gömul saga og ný Logi og Hulda fengu Sigríði Björnsdóttur sálfræðing og stofnanda Blátt áfram, nú Verndarar barna – Blátt áfram, í spjall á K100 í kjölfar heimildamyndarinnar Leaving Neverland sem HBO sjónvarpsstöðin sýndi nýlega í tveimur hlutum og RUV hefur hafið sýningu á. AP Skjáskot/Youtube Ein stór fjölskylda Michael Jackson myndaði náin tengsl við alla fjölskyldumeðlimi drengjanna. Hér er hann með fjölskyldu Wade. AFP Ásakanir Michael Jackson heitinn er nú aftur kominn í fréttirnar fyrir alvarlegar ásakanir um barnaníð. Fram í dagsljósið Dan Reed, leikstjóri Leaving Neverland, hér fyrir miðju með þeim Wade Robson og James Safechuck.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.