Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 51

Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 51
lynx, í Lettlandi, Travel Service í Tékklandi og Bluebird Cargo. Helstu áhugamál Árna tengjast íþróttum. Hann spilaði knattspyrnu með KA þar sem hann spilaði m.a. 60 leiki í efstu deild og skoraði 10 mörk. Árið 1989 varð hann Íslandsmeistari með KA. Á námsárunum í Þýskalandi spilaði hann einnig með nokkrum lið- um í neðri deildum þýsku knattspyrn- unnar. „Á undanförnum árum hefur nán- ast allur frítími okkar hjónanna farið í að fylgja börnum okkar eftir í knatt- spyrnu, körfuknattleik og tónlist hvort heldur innanlands eða utan. Áhugamál mín snúast einnig um mat og drykk, ferðalög og stangveiði auk þess sem ég hef verið dyggur stuðn- ingsaðili GR þar sem ég næ að jafnaði 1-2 golfhringjum á ári. Þetta stendur til bóta og í nánustu framtíð er að stefnt að lækkun forgjafar.“ Árni hefur í mörg ár sinnt sjálf- boðaliðastörfum fyrir knattspyrnu- deild Fjölnis þar sem hann er nú að hefja sitt fjórða starfsár sem formað- ur deildarinnar og níunda ár sem stjórnarmaður. Þá var hann einnig í stjórn Íslensks toppfótbolta, ÍTF, í tvö ár. Fjölskylda Eiginkona Árna síðan 31. júlí 1993 er Hildigunnur Smáradóttir, f. 7. febr- úar 1969, textílhönnuður. Þau áttu því silfurbrúðkaup sl. sumar. Foreldrar hennar eru hjónin Smári Jónas Lúðvíksson, f. 14. mars 1938, húsasmíðameistari, útgerðarmaður og æðarbóndi, og Auður Alexanders- dóttir, f. 19. apríl 1940, fyrrverandi skrifstofumaður. Þau eru búsett á Rifi á Snæfellsnesi. Börn Árna og Hildigunnar eru 1) Hermann Árnason, f. 3. mars 1994, viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík; 2) Hrafnhildur Árnadóttir, f. 4. mars 2003, nemi í Foldaskóla og 3) Auður Árnadóttir, f. 19. ágúst 2005, nemi í Foldaskóla. Bræður Árna: Friðfinnur Her- mannsson, f. 4. júní 1963, d. 17. apríl 2017, viðskiptafræðingur; Tómas Hermannsson f. 16. júlí 1971, bókaút- gefandi hjá Bókaútgáfunni Sögur út- gáfa, búsettur í Reykjavík, og Jóhann Gunnar Hermannsson, f. 2. janúar 1980, tölvunarfræðingur hjá DBVi- sion, búsettur á Akureyri. Foreldrar Árna eru Hermann Árnason, f. 4. september 1942, löggilt- ur endurskoðandi, og Guðríður Sol- veig Friðfinnsdóttir, f. 17. janúar 1942, framkvæmdastjóri Bókend á Akureyri. Þau eru búsett á Akureyri. Úr frændgarði Árna Hermannssonar Árni Hermannsson Guðríður Hafliðadóttir húsfreyja í Strandseljum, bróðurdóttir Hannibals vegghleðslumanns, afa Hannibals Valdimarssonar ráðherra Guðríður Solveig Friðfinnsdóttir framkvæmdastjóri á Akureyri Halldóra Anna Sigurbjörnsdóttir húsfreyja í Rvík Sigrún Indriðadóttir húsfreyja á Sveinsstöðum Sigurbjörn Sæmundsson útvegsbóndi á Sveinsstöðum í Grímsey Katrín Ólafsdóttir húsfreyja, frá Lækjarbakka í Mýrdal Torfi Einarsson útvegsbóndi í Eyjum Ása Torfadóttir húsfreyja í Eyjum, síðar gjaldkeri í Rvík Hermann Árnason löggiltur endurskoðandi á Akureyri Stefán Friðfinnsson fv. forstjóri Íslenskra aðalverktaka Þórunn Þórðardóttir fv. frkvstj. Ferðafélags Íslands Kristín S. Hjálmtýsdóttir frkvstj. Rauða kross Íslands Þórður Ólafsson útvegsbóndi á Odda í Ögurhr., og iðnverka- maður í Rvík Hildigunnur H. Thorsteinson frkvstj. hjá Orku- veitu Reykjavíkur Elín Þóra Friðfinnsdóttir dagskrárgerðarm. og kennari Sigrún Bára Friðfinnsdóttir vinnur hjá Tryggingastofnun Stefán Hrafn Hagalín deildarstj. samskipta á Landspítala Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri Dr. Halldór Björnsson hjá Veðurstofu Íslands Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir prestur í Neskirkju Ólafur Þórðarson b. í Strandseljum við Djúp Friðfinnur Ólafsson bíóstjóri í Háskólabíói Sólveig Ólafsdóttir húsfreyja á Ísaf., Selárdal og í Rvík rnór Hannibalsson eimspekiprófessor A h Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks á RÚV Árni Guðmundsson „Árni úr Eyjum“ kennari, texta- og ljóðskáld Jónína Sigurðardóttir húsfreyja í Eyjum Guðmundur Jónsson útgerðarm. og skipasm. í Eyjum Ásta Lúðvíksdóttir framhaldsskólak. í Hfj. Lúðvík Geirsson hafnarstjóri í Hafnarfirði og fv. bæjarstjóri og alþm. Lúðvík Jónsson bakaram. á Selfossi Bjarni Guðnason prófessor og fv. alþm. Jón Guðnason prófessor Guðni Bergsson formaður KSÍ Bergur Guðnason lögfræðingur Guðni Jónsson prófessor ÍSLENDINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 90 ára Sigríður Sóley Magnúsd. Sigrún Jónsdóttir Sigurvin Jónsson 85 ára Ingibjörg Jónsdóttir Jenný Júlíusdóttir Jóhanna Stefánsdóttir Jóhann Sv. Jónsson 80 ára Baldur Vagnsson Guðrún Bóasdóttir Hrefna M. Magnúsdóttir Inga Jóna Sigurðardóttir Magnús Ólafsson 75 ára Alfreð Steinar Rafnsson Ágústa Högnadóttir Gísli Þórðarson Guðrún Hjördís Ólafsdóttir Gunnhildur Vilhjálmsdóttir Halldóra Baldursdóttir Hjörleifur Halldórsson Sigurbjörg Sigurðardóttir Þorbjörg Ólafsdóttir 70 ára Benedikt Sigurjónsson Bjarni L. Benediktsson Hjörtur H. R. Hjartarson Lárus Helgason Margrét Sigurðardóttir Ólafur Þorsteinsson Stefanía Sigfúsdóttir Svavar Stefánsson 60 ára Alvydas Grigas Anna María Antonsdóttir Daisa A. Miranda Nogueira Einar Valur Kristinsson Elísabet I. Þorsteinsdóttir Elzbieta Sergjeiusz Eyjólfur H. Heiðmundsson Gabriel E. Pardo Pardo Jadwiga Raczkowska-Ert Jarl Bjarnason Sesselja Haraldsdóttir Þórður Helgi Jónsson 50 ára Anna H. Stefánsd. Hjelm Ágústa Harpa Kolbeinsd. Árni Hermannsson Guðlaug Málfríður Pálsd. Guðný Þórisdóttir Helgi Viðarsson Margrét Þórðardóttir Ómar Már Þóroddsson Pétur Örn Sverrisson Sigrún Jóhanna Ólafsdóttir Sóley Valdimarsdóttir 40 ára Anton Kristinn Þórarinsson Árni Garðar Jónsson Guðlaug Sunna Gunnarsd. Gunnar Tryggvi Halldórsson Haukur Páll Guðmundsson Hjörtur Þorbjörnsson Inas Leandro de Souza Ingveldur Þórey Eyjólfsd. Jóhanna Edith Edvinsdóttir Sigríður María Snæbjörnsd. Sigurður Þór Hlynsson Svavar Austmann Traustas. Úlfar Þór Gunnarsson 30 ára Adam Widenski Aríel Jóhann Árnason Bergþór Sigurðsson Elín Rún Birgisdóttir Hera Pálmad. Thorlacius Hildur Brynjarsdóttir Jan Adam Konráð Logn Haraldsson Ragnar Árni Ágústsson Sigrún Ísleifsdóttir Til hamingju með daginn  Arnar Hafliðason hefur lokið doktorsvörn sinni í efnafræði við Há- skóla Íslands. Heiti ritgerðarinnar er Rofferli við fjölljóseindaörvun og orku- eiginleikar halogenhaldandi sameinda út frá massa- og myndgreiningu. Leið- beinandi var Ágúst Kvaran, prófessor við Raunvísindadeild HÍ og andmæl- endur voru dr. Timothy Wright, pró- fessor í eðlisefnafræði og kennilegri efnafræði við háskólann í Nottingham. Bretandi, og dr. Ragnar Jóhannsson sviðstjóri hjá Hafrannsóknastofnun. Rannsóknirnar fólust einkum í að kanna áhrif fjölljóseindaörvunar á rof- ferli HBr, DCl og brómometan sam- einda með massagreiningu (MR-MPI aðferð) og myndgreiningu (VMI). Túlk- un mæligagna fólst í greiningu á fjöl- ljóseindarófum ((2+n)REMPI róf) sem og á hraða- (KERs) og hornháðum dreifimynstrum jóna sem myndast. Athuganir á HBr sýndu truflanir vegna víxlverkana á milli þrístigs- og ein- stigs-orkuástanda sameindarinnar, sem birtust í formi hliðrunar (LS áhrif) og styrkbreytinga (LI áhrif) litrófslína í MR-REMPI litrófum sem og í formi óreglulegra mynstra í VMI myndum. Samkvæmt DCl mæligögnum fundust fimm ný Rydberg orkuástönd og átta ný titringsástönd jón-para forms sam- eindarinnar. Sterk víxlverkunaráhrif greindust milli einstigs Rydberg ástanda og jón- para ástandsins sem birtist í formi LS og LI áhrifa og sem samsætu- hliðranir. Óreglu- legt mynstur REMPI litrófa fyrir sam- eindabrotin CH og CD sem mynduðust við fjölljóseindarof bromoforms báru vitni um hraðvirka rofnun fjögurra Rydberg ástanda. LS og LI áhrif sem og breikkun litrófslína báru þessu vitni. Orka viðkomandi ástanda var auðkennd. Fjölmörg Rydberg ástönd CH3Br sameindarinnar voru orkuörv- uð á tveggja ljóseinda bylgjutölusvið- inu 66.000-80.000 cm-1. Rofferli voru könnuð með aðferðum eins- og tvílita fjölljóseindaörvana. Einnar, tveggja og þriggja ljóseinda örvanir sameindar- innar leiddu til myndunar sameinda- brotanna CH3 og Br.. Meginrofferli sameindarinnar var hins vegar mynd- un CH3 Rydberg ástanda ásamt bróm frumeindum í kjölfar þriggja ljóseinda örvunarinnar. Vísbendingar um víxl- verkun milli Rydberg ástanda og jón- para ástanda fundust. Arnar Hafliðason Arnar Hafliðason útskrifaðist af náttúrufræðibraut frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1998 og árið 2008 útskrifaðist hann með B.Sc. gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands. Foreldrar Arnars eru Arndís Sigurðardóttir og Hafliði Guð- mundsson heitinn (1941-2011). Dóttir Arnars er Elísa N. Arnardóttir 5 ára. Arnar er núna nýdoktor við Háskóla Íslands. Doktor 40 ára Gunnar er frá Finnstungu í Blöndudal en býr á Blönduósi. Hann er með MA í sagnfræði og er gæðastjóri hjá Vilko. Maki: Þórdís Hauksdóttir, f. 1979, fræðslustjóri. Börn: Halldór, f. 2001, Elísabet, f. 2008, og tví- burarnir Haukur og Skírn- ir , f. 2011. Foreldrar: Halldór Bjarni Maríasson, f. 1952, og Ás- laug Guðmundsdóttir, f. 1951, bús. á Blönduósi. Gunnar Tryggvi Halldórsson 40 ára Sunna er Njarðvík- ingur og er náms- og starfsráðgjafi hjá Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Maki: Bjarni Sæmunds- son, f. 1977, vélvirki og hópstjóri hjá Isavia. Börn: Breki, f. 2002, Elín, f. 2006, Brynjar, f. 2009, og Sæmundur, f. 2011. Foreldrar: Gunnar Þór- arinss., f. 1949, við- skiptafr., og Steinunn Sig- hvatsd., f. 1950, þau reka bókhaldsstofu í Njarðvík. Guðlaug Sunna Gunnarsdóttir 30 ára Konráð er úr Ólafsvík en býr í Reykja- vík. Hann er sendibílstjóri í eigin rekstri. Börn: Talía Björk, f. 2011, og Kría Logn, f. 2013. Systkini. Oddur, f. 1978, Víðir, f. 1981, Kolfinna Snæbjörg, f. 1987, og Eydís Salbjörg, f. 1990. Foreldrar: Haraldur Yngvason, f. 1959, bús. í Noregi, og Sigurlaug Kon- ráðsdóttir, f. 1959, bús. á Arnarstapa. Konráð Logn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.