Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 59
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
Canada Goose Rossclair Parka er framúrskarandi vörn
gegn kuldanum og glæsileg hönnun fyrir borgarlífið. Okkar
verð er sambærilegt eða betra en í flestum öðrum löndum.
CANADA GOOSE FÆST Í NORDIC STORE LÆKJARGÖTU
www.nordicstore.is
Opið kl . 9 -22 alla daga
C
an
ad
a
G
o
o
se
R
o
ss
cl
ai
r
P
ar
ka
11
9
.9
9
0
k.
Kuldaþol: -20°C
Sennilega eiga gleðileikirShakespeares erfiðara meðað tala við samtímann en alvarlegri verk hans. Póli-
tískur refskapur, hræsni og grimmd
hefur enn ekki verið betur krufin á
sviði en í sögulegu leikritunum og
varla að gangverk og drifkraftar
mannssálarinnar hafi fengið dýpri
greiningu en harmleikirnir bjóða
upp á. Grínið á aðeins erfiðara upp-
dráttar. Fjórar aldir sjúga mesta
safann úr jafnvel bestu bröndurum,
fyrir nú utan að það snýst einatt um
samskipti kynjanna og á því sviði
höfum við nú blessunarlega þokast
aðeins á veg og skilið þessar fjögur
hundruð ára tilhugalífsraunir eftir
án verulegs erindis. Það mesta sem
skopverkin geta vænst er að stytta
okkur stundir „milli matartíma og
hátta“ eins og Þeseifur hertogi orðar
það þegar hillir undir leikslok, í
nýrri þýðingu Þórarins Eldjárns á
Jónsmessunæturdraumi. Útlegging
Þórarins er lipur, hnyttin og auð-
grípanleg. Alvöru samanburður
hennar við verk Helga Hálfdanar-
sonar, eða þá frumtextann, falla ut-
an takmarkana blaðagagnrýni af
þessu tagi. Mögulega lætur Þórar-
inn setningar oftar enda á rímorði en
Helgi, en hæpið að fullyrða svoleiðis
að óathuguðu máli. Hugsanlega
tengist þessi upplifun líka óvenju-
mikilli hlýðni leikhópsins við hrynj-
andi bundna málsins. Fyndnin í
óbundnum samtölum á leikæfing-
unum viðvaninganna er áberandi
hittnari hjá Þórarni en hjá Helga, en
á móti held ég að upphafin lágkúran
í harmleiknum um Píramus og Þispu
fljúgi hærra hjá þeim gamla. Þetta
er samt auðvitað enginn stóridómur
og það er mikil gæfa að eiga núna
tvær aðgengilegar og leikvænar
þýðingar á þessum vinsælasta og
mest leikna gamanleik höfuðskálds
heimsins.
Uppfærsla Hilmars Jónssonar og
sýning Þjóðleikhússins er litrík,
íburðarmikil jafnvel, og aldrei leiðin-
leg. Það væri enda dauðasynd: að
láta áhorfendum leiðast á einu
skemmtilegasta leikriti sem skrifað
hefur verið, og best heppnaða verki
Shakespeares sem endar alfarið vel.
Spurningin er hvort við verðum ekki
að gera harðari kröfur á þjóðleikhús
sem tjaldar öllu til, en að vera ekki
leiðinlegt með annan eins efnivið, að
viðbættri hæfileikum og fag-
mennsku áhafnarinnar.
Þær aukakröfur uppfyllir sýn-
ingin ekki nema stund og stund, og
alls ekki sem heild. Kannski er stóri
vandinn sá að andstæður og samspil
heimanna tveggja: mannheima og
náttúru eða álfheima, borgar og
skógar, eru ekki útfærðar á full-
nægjandi hátt. Grunnhugmynd
mannheimanna: að staðsetja brúð-
kaup Þeseifs og Hippólítu á gamal-
dags lúxushóteli með handverks-
mennina í starfsliðinu, er bráðsnjöll
og einkar glæsilega útfærð af Evu
Signýju Berger og flott lýst af Hall-
dóri Erni Óskarssyni. En þegar
flótti Hermíu og Lísanders, og eftir-
för Helenu og Demetríusar, brestur
á, tekst hvorki að gera umbreyting-
una spennandi né umgjörðina vett-
vang fyrir skapandi sviðsetningu
skógarsenanna. Á stundum virkar
miðhluti sýningarinnar og meginefni
verksins eins og það eigi sér einnig
stað á hótelinu, og þá í einhverri
draumavídd innan þess. Hafi það
verið hugmyndin er henni ekki fylgt
nægilega vel eftir.
Þegar kemur að persónunum
verða fyrir okkur þrír heimar en
ekki tveir. Lágstéttin kemur best út
úr þessari sýningu: hótelstaffið sem
tekur að sér að skemmta brúðkaups-
gestum af einstökum vanefnum er
vel formað og undirbúningsatriði
þeirra eru bráðfyndin, ekki síst fyrir
hinn athyglisbrostna veltikall sem
Ólafía Hrönn Jónsdóttir býr til úr
forystusauðnum Bossa. Aðrir ná
varla að skapa afgerandi persónu-
leika, en kómískar tímasetningar
skila engu að síður hlátri fyrir Sig-
urð Sigurjónsson og Pálma Gests-
son. Sjálf leiksýningin þeirra leysist
upp í óskipulagt kaos sem kætti mig
umtalsvert minna en þorra leikhús-
gesta.
Einnig skorti nokkuð á afgerandi
persónusköpun, skýra afstöðu, í
túlkun elskendanna. Þessi burðar-
hlutverk eru sennilega sá hluti
verksins sem þarfnast mestrar
hjálpar frá leikstjóra og öðrum hug-
myndasköpurum, svo einsleit og ein-
sýn sem þessir ástsjúklingar eru.
Það lánast ekki fyllilega hér. Þau
Eygló Hilmarsdóttir, Hákon
Jóhannesson, Oddur Júlíusson og
Þórey Birgisdóttir skila sínu ágæt-
lega, en það vantar upp á að hvert
þeirra hafi sterkari og mikilvægari
séreinkenni. Lengst þótti mér Eygló
komast með sína Helenu, sem óneit-
anlega er með bitastæðasta ferða-
lagið í gegnum þessa örlaganótt. Sú
hugmynd að „söngleikjavæða“ verk-
ið með þekktum popplögum sem
persónurnar bresta í við að tjá til-
finningar sínar reynist ófrjó eða ekki
beitt á nógu snjallan eða afgerandi
hátt til að réttlæta sig.
En það var ekki bara aðgreiningu
unglinganna sem skorti. Sýningin
gefur okkur heldur ekki skýra til-
finningu fyrir hvers konar samfélagi
börnin tilheyra. Dauðadómur
Þeseifs yfir Hermíu í upphafi stuðar
engan í þessari sýningu, svo forn-
eskja er hér rótgróin, en jafnframt
er hertoganum engin sérstök virðing
sýnd og unglingarnir nútímalega
frjálslegir og hreint ekki prúðir. Út-
hugsuð afstaða er annaðhvort ekki
til staðar eða skilar sér alla vega
ekki yfir sviðsbrúnina. Búningar
Karenar Briem hjálpa okkur heldur
ekki að skilja hvaða fólk þetta er,
mun betur gengur henni að gefa
hótelstaffi og álfum skýra og merk-
ingarbæra ásýnd.
Mest afgerandi andstæðan er,
eins og vera ber, milli mannheima og
álfheima. Hér hittir sýningin á
„bragð dagsins“ með að gera lífs-
leiða úrkynjun og bdsm-fagurfræði
að grunntóni við hirð Títaníu og
Óberons, sem togast hér á um ind-
verskan fósturson drottningar, sem
hún hefur alið upp sem grímuklætt
„gimp“. Þessi túlkunarleið er alveg
fær, sérstaklega ef strikað er burt
megnið af vísunum í djúp tengsl
Óberons og Títaníu við náttúruna og
hlutverk þeirra við að halda árstíð-
unum á braut sinni. En óneitanlega
vaknar spurningin hvort jafn lífs-
reyndur kynsvallari og Títanía
myndi nokkuð hrylla sig svona yfir
Bossa þegar hún vaknar af ástar-
lyfjamókinu. Væri hún ekki bara
harla ánægð með að hafa farið á
asna líka? Og svo hitt: myndi þessi
nautnasjúki og lifaði Óberon nokkuð
fyllast rómantískri þrá eftir að
greiða úr barnalegum gelgjuástar-
flækjum ókunnugra, þegar hann er
önnum kafinn við að stela kynlífs-
þræl frá konu sinni? Því miður hjálp-
aði afstöðulaus og sérkennilega dauf
frammistaða Atla Rafns Sigurðar-
sonar ekkert upp á að trúa á eða
skilja hvað álfakóngnum gekk til.
Það sama má segja um Þeseif hans,
sérkennilegur skortur á sviðslegri
nærveru einkenndi þá báða. Birgitta
Birgisdóttir gerði sér öllu meiri mat
úr Hippólítu en þó einkum Títaníu,
sem varð sannfærandi innan tak-
markana grunnhugmyndarinnar.
Áberandi áhrifaríkastur af álfa-
stóðinu er Búkki Guðjóns Davíðs
Karlssonar. Sterk nærvera og
myndugleiki einkenndu þessa túlk-
un á skósveini Óberons, frekar en
trúðsk hrekkjakætin sem oft er
grunntónninn og verður auðveldlega
þreytandi. Eins og oft er gert gegnir
Búkki líka skyldustörfum skemmt-
anastjórans Fílóstratosar og kynn-
ingarræðan hans á undan skemmti-
atriði hótelstaffsins er kómískur
hápunktur sýningarinnar.
Þessi Jónsmessunæturdraumur
líður talsvert fyrir skort á skýrri list-
rænni heildarhugsun. Fyrir vikið ná
stakar snjallar hugmyndir og tilþrif
ekki fullum áhrifum. Hann er ekkert
sérstaklega kröftugur, ekki hug-
myndaríkur í sviðsetningu og sviðs-
umferð, heimarnir sem sýningin
leiðir saman ekki nægilega vel form-
aðir og árekstrar þeirra fara fyrir
vikið of oft á mis. Þökk sé efniviðn-
um verður hún samt þrátt fyrir allt
ásættanleg skemmtun þegar upp er
staðið. Þessi ólíkindalega samsuða
frá því herrans ári 1595 stendur enn
fyrir sínu, hvað sem brölti hins
hrikalega trega mannkyns líður.
„Hrikalega er mannkyn tregt!“
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Þjóðleikhúsið
Jónsmessunæturdraumur bbbnn
Eftir: William Shakespeare. Íslensk þýð-
ing: Þórarinn Eldjárn. Leikstjórn: Hilmar
Jónsson. Leikmynd: Eva Signý Berger.
Búningar: Karen Sonja Briem. Danshöf-
undur: Katrín Gunnarsdóttir. Lýsing:
Halldór Örn Óskarsson. Tónlist, tónlist-
arstjórn og útsetningar: Gísli Galdur
Þorgeirsson. Hljóðmynd: Gísli Galdur
Þorgeirsson og Kristján Sigmundur Ein-
arsson. Þýðing söngtexta: Magnea J.
Matthíasdóttir. Leikarar: Atli Rafn Sig-
urðarson, Birgitta Birgisdóttir, Guðjón
Davíð Karlsson, Eygló Hilmarsdóttir,
Þórey Birgisdóttir, Oddur Júlíusson,
Hákon Jóhannesson, Pálmi Gestsson,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sigurður
Sigurjónsson, Bjarni Snæbjörnsson,
Edda Arnljótsdóttir, Aron Steinn
Ásbjarnarson, Hildur Ketilsdóttir, Hildur
Jakobína Tryggvadóttir, Juliette Louste
og Sindri Diego. Frumsýnt á Stóra sviði
Þjóðleikhússins 1. mars 2019, en rýnt í
aðra sýningu 7. mars 2019.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST Heildarhugsun „Þessi Jónsmessunætur-
draumur líður talsvert fyrir skort á
skýrri listrænni heildarhugsun. Fyrir
vikið ná stakar snjallar hugmyndir og
tilþrif ekki fullum áhrifum,“ segir í rýni.