Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 8

Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 JÓI EIGANDI 13 ÁRA. „Ég hefði verið ögn svalari ef við hefðum boðið uppá smáborgara í fermingunni minni.“ www.fabrikkan.is 5 75 75 75 Fermist þú ham-borgaralega? 30 borgarar á hverjum bakka! 6 gómsætar tegundir í boði! A þena býr í Kjósinni og fermdist í Brautarholtskirkju á Kjalarnesi ásamt fjórum öðrum krökkum. Hún segir að fermingin sjálf í kirkjunni hafi verið skemmtilegust, enda sé alltaf spennandi að upplifa eitthvað nýtt í lífinu. „Við vorum einungis fimm sem fermdumst saman og fengum við því að taka mikinn þátt í athöfninni.“ Veilsuna hélt síðan fjölskyldan í félagsheimilinu í Kjósinni. „Við fengum hugmynd að korta- kassanum á netinu. Mér fannst mjög sniðugt að hafa sér kassa fyrir ferm- ingarkortin, þá væru þau öll á einum stað og tilvalið að skreyta kassann í stíl við þemað sem var bleikt og hvítt í veislunni.“ Aþena byrjaði á því að útvega sér lítinn pappakassa sem passaði fyrir kortin. „Síðan datt okkur í hug að nota filmu eins og notuð er á húsgögn með marmaraútliti. Stafirnir á kassann voru keyptir í A4 ásamt akrýlmálningu og skrautblómum.“ Aþena teipaði svo kassann og lokaði honum alveg, setti filmuna utan um sem hún segir að hafi verið ótrúlega einfalt og skar síðan hæfilegt gat fyrir kortin. Hún málaði svo stafina og blómin bleik og límdi á kassann. „Þetta var mjög fljótlegt og skemmtilegt verkefni.“ Þegar kom að öðrum skreytingum í veislunni var notast við falleg kokkteil- glös á fæti. „Við settum vatn í þau, bleika skrautsteina í botninn og flotkerti sem kom rosalega vel út. Síðan dreifðum við bleiku mentos og bleikum, litlum sykurpúðum og pappadoppum yfir borðið.“ Þarftu ekki kassa undir kortin? Aþena Eir Magnúsdóttir fermdist fyrir tveimur árum. Hún föndraði flottan kassa undir ferm- ingarkortin, til að halda utan um peningana sem komu í umslögunum frá gestum. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Aþenu fannst gaman að fermast og stóð kirkjan og athöfnin þar upp úr að hennar mati. Aþena mælir með að gera kassa utan um fermingarkortin sem ferming- arbörn og fjölskyldur þeirra skreyta í stíl við þema veislunnar. Aþena býr í Kjósinni og fermdist í Brautar- holtskirkju á Kjalar- nesi ásamt fjórum öðrum krökkum Það er algengt að gefa ferm- ingarbarni peninga í gjöf. Það sem gerir slíka gjöf að- eins persónulegri er að handgera fermingarkortið að barninu sem á að fá það. Maður þarf ekki að vera mik- ill listamaður til að gera falleg kort. Verslanir eins og Pand- uro í Smáralind er drauma- veröld föndrarans þegar kemur að svona verkefnum. Það eina sem maður þarf er hugrekki til að prófa og svo leyfir maður bara listinni að fljóta frá hjartanu yfir til barnsins. Eins getur verið gaman að föndra allskonar hluti fyrir fermingarveislu barnsins. Ljósmynd/Panduro Það getur verið gaman að mála og föndra fyrir ferminguna. Allir geta fundið listamanninn í sér. Ljósmynd/Panduro Það eru til alls konar leiðir til að búa til falleg heimagerð kort. Listræn fermingarkort

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.