Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Nánari upplýsingar áwww.enskafyriralla.is
• 2 kennsluvikur í Kent School of English
• Verð ca 255 þús., allt innifalið.
• Íslenskir hópstjórar með í för
allan tímann
Skráning stendur yfir í síma 891 7576
og erlaara@enskafyriralla.is
Enska í Englandi
fyrir 13-16 ára
English,
fun and
friendship
Hæ Erla
Langaði að þakka ykkur fyrir stelpuna. Hún
hitti okkur alsæl og hamingjusöm. Nú hef ég
sent þrjár dætur mínar með þér til Englands
og þær koma allar heimmeð lífsreynslu
sem þærminnast mörgum sinnum á ári.
Hún var sérlega ánægðmeð hópstjórana og
kennarana í skólanum.
Takk fyrir okkur. B.kv. Helga.
H
vernig hefur ferm-
ingarundirbúningur
gengið?
„Hann gæti ekki
gengið betur enda
varla byrjaður! Baldur Hrafn
fermist borgaralega hinn 14. apríl
og því nægur tími til stefnu – og
það fer mér ágætlega að gera allt
á síðustu stundu,“ segir Áslaug
Hulda.
Hvaða óskir er fermingarbarnið
með?
„Hann vill hafa sem flesta gesti
en að mér læðist sá grunur að það
tengist gjafamagni. En hann er
mikill matgæðingur og hefur skoð-
anir á því og hugsar það með okk-
ur hvernig veitingar verður
boðið upp á – það er
skemmtilegt. Svo vill
hann ekkert vesen,
honum leiðist vesen,“
segir hún.
Áslaug Hulda og
eiginmaður henn-
ar, Sveinn Áki
Sveinsson, eru
mikið stemnings-
fólk og verður
fermingarveislan
haldin á heimili
þeirra í Garðabænum.
Þegar hún er spurð að
því hvernig þau muni
skipuleggja fermingardag
sonarins kemur í ljós að stressið
verður í lágmarki.
„Stress skemmir alla stemningu,
það má því ekkert flækja hlutina of
mikið. Bara að njóta. Mitt ráð er
því að hafa veitingar einfaldar, að
minnsta kosti þannig að þú þurfir
ekki mikið að vera að vesenast
með þær meðan á veislu stendur.
Skemmtilegast er að geta notið
með gestunum,“ segir hún.
Verður eitthvert þema í veisl-
unni?
„Nei, ekkert þema. En ég mun
kaupa falleg blóm í blómabúðinni
Auði á Garðatorgi, lifandi blóm
gera allt fallegra. Poppum svo upp
stemninguna með flottum helíum-
blöðrum frá vinkonum mínum í
Pippu.“
Hvað ætlið þið að bjóða mörg-
um?
„Þetta verða um sjötíu gestir,
við eigum litla fjölskyldu en alltof
marga vini.“
Verða veitingar pantaðar eða
gerið þið sjálf?
„Við gerum veitingarnar sjálf.
Ég er afleitur bakari enda krefst
það nákvæmni og þolinmæði – og
ég hef hvorugt. Hugsa að við ger-
um eitthvað svipað og hjá eldri
bróðurnum, þá vorum við með
nautakjöts- og sushi-salat – og svo
eitthvað sætt til að loka maganum.“
Hvernig var þinn fermingar-
dagur?
„Minn fermingardagur var
ánægjulegur og ég á góðar minn-
ingar frá honum. Gaman að segja
frá því að við Áki, eiginmaður
minn, fermdumst sama dag, í sömu
kirkju enda bæði alin upp í Garða-
bæ og við vorum saman í bekk í
barnaskóla. Og nú styttist í það að
yngri drengurinn okkar fermist.“
Hvernig varstu klædd og greidd?
Áttu ennþá fermingarfötin?
„Af einhverjum óskiljanlegum
ástæðum var eitthvert dáta-þema í
öllum búðum korter í mína ferm-
ingu. Ég fermdist því í dökkbláum
matrósakjól og hárið tekið upp til
hliðanna með hvítum silkiborðum.
Ég verð Svövu í 17 og Lilju í
Cosmo ævinlega þakklát eða
þannig. Ég á kjólinn ekki lengur en
man að ég gleymdi að fara í hvíta
blúndusokka sem áttu að toppa
múnderinguna á fermingardaginn,
fattaði það daginn eftir.“
Hvað finnst þér mikilvægast að
foreldrar fermingarbarna hafi í
huga?
„Að þessi dagur snýst um ferm-
ingarbarnið og mikilvægt að hlusta
á og og fara eftir væntingum
þeirra. Ferming er stór dagur hjá
fjölskyldu, dásamlegur dagur. Það
þarf ekki allt að vera fullkomið
þennan dag, bara að njóta,“ segir
hún.
Ekkert stress eða vesen
Sonur Áslaugar Huldu
Jónsdóttur og Sveins
Áka Sveinssonar, Bald-
ur Hrafn Ákason, mun
fermast 14. apríl. Áslaug
Hulda segist vera í ágæt-
is æfingu að vera foreldri
fermingarbarns því eldri
sonur hennar, Bjarni
Dagur, fermdist fyrir
tveimur árum. Allar veit-
ingar í veislunni verða
heimagerðar og leggur
húsmóðirin áherslu á að
sleppa stressi og veseni.
Marta María | mm@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Baldur Hrafn Ákason og móðir hans Áslaug Hulda Jónsdóttir.
Bjarni Dagur og Baldur Hrafn Ákasynir. Myndin var tekin á fermingardegi
þess eldri fyrir tveimur árum.
Áslaug Hulda
og fjölskylda
útbúa allar
veitingar sjálf.
Hann vill hafa sem
flesta gesti en að mér
læðist sá grunur að
það tengist gjafa-
magni.