Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
morthens
Í Brioche brauði með
beikoni, hvítlauks-
grilluðum sveppum
og bernaise sósu .
Fabrikkusmá-
borgararnir
slá í gegn í
öllum veislum.
30 borgarar á
hverjum bakka!
6 gómsætar
tegundir í boði!
fer sla
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR
Ferköntuð
mingarvei
O
liver er búinn að vera
í fermingarfræðslu
síðan síðasta sumar
og mætir í messur
þess á milli.
María Gréta Einarsdóttir móðir
hans og Róbert Aron Magnússon
faðir hans hafa verið að aðstoða
með undirbúninginn. Eins hafa
ömmurnar verið duglegar að leggja
sitt afmörkum.
„Varðandi undirbúninginn þá
pöntuðum við Brynja Nordquist,
amma hans, sal fyrir 15 mánuðum
og verður veislan og fermingin sjálf
á afmælisdegi hennar.
Við ákváðum að leigja ljós-
myndabás – til að hafa í veislunni
til að eiga minningar þar sem við
ákváðum að hafa ekki ljósmyndara.
Við eigum þessar fínu myndir eftir
Sögu Sig úr fermingarmyndatöku
Galleri 17 og munum nota eina í
boðskortið.“
María segir Oliver með mjög
ákveðnar skoðanir þegar kemur að
veislunni. „Það skiptir máli að hans
mati að honum þyki veitingarnar í
veislunni góðar enda finnst honum
oft í veislum ekkert sérstaklega
mikið fyrir hann á boðstólnum.“
Vil hafa girnilegar veitingar
á boðstólnum
Oliver vill hafa hamborgara og
annað góðgæti að sögn móður
hans. „Litlir hamborgarar, skúffu-
kaka og nammibar er málið. Ég er
búin að panta svona nammibars-
sett af Ebay með 10 krukkum,
töngum og pokum og svo fær hann
að velja hvað hann vill hafa í þeim.
Einnig mun Svana amma hans
baka kransaköku með dyggri að-
stoð frá mér fyrir veisluna enda
bakar hún ofsalega góða kransa-
köku og er það ákveðin hefð að ein
slík sé á boðstólum frá henni í
veislum í fjölskyldunni.“
Oliver segist hlakka til ferm-
ingarinnar sem verður þann 13.
apríl í Neskirkju.
Hvernig verður fermingin?
„Ég fermist í kirkju um hádegis-
bil og svo verður veisla seinni part-
inn.“
Hlakkar þú til fermingarinnar?
„Já mjög mikið – ég er búinn að
vera að bíða spenntur eftir þessu
lengi.“
Langar í ferðalag og pening
í fermingargjöf
Hvað langar þig í í fermingar-
gjöf?
„Mig langar að fara til Liverpool
á fótboltaleik. Eins væri gaman að
fá pening upp í svona ferð.“
Í hverju ætlarðu að vera?
„Skyrtu og dökkum gallabuxum
úr Galleri 17 og Yeezy skóm.“
Hvernig var að taka þátt í ferm-
ingarmyndatöku 17?
„Mjög gaman. Við fengum góðan
mat og það var þægilegt. Í raun
fannst mér þetta bara einfalt og
skemmtilegt.“
Ætlar ekki að verða fyrirsæta
Nú er amma fyrirsæta og pabbi
þinn var það líka – er þetta eitt-
hvað sem þú ætlar að leggja fyrir
þig?
„Nei alls ekki – ég held ég verði
ekki fyrirsæta. Mig langar að verða
körfuboltamaður. Hér heima eða
erlendis. Mér finnst bara gaman að
spila körfubolta og það er það sem
skiptir mig mestu máli.“
Ertu trúaður?
„Já ég er trúaður. Ég er með
mína barnstrú, þannig að ég hef
alltaf trúað á Guð frá því ég var lít-
ill. Í fermingarfræðslunni vorum
við ekki að tala svo mikið um Jesú
og Guð, heldur meira hvernig kær-
leikurinn og trúin tvinnast inn í
lífið. Það var áhugaverð nálgun.“
Góður matur
og skemmtileg
stemning
Oliver Nordquist er í Hagaskóla og mun fermast
á þessu ári. Hann mun fermast í kirkju, þar sem
hann er trúaður. Fötin skipta máli sem og
veitingarnar að hans mati.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Oliver Nordquist mun fermast í Neskirkju í apríl á þessu ári.
Dömutískan fyrir fermingarstúlkurnar árið 2019.
Ljósmynd/Saga Sig
Herratískan fyrir fermingardrengina árið 2019.