Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 18
Gamall
lampi
sem hefur
fengið nýtt
útlit.
E
leni starfar sem
framleiðsluhönnuður fyr-
ir kvikmyndaiðnaðinn
og leikhúsin í land-
inu. Hún er einn-
ig útstillingahönnuður hjá
Ikea á Íslandi.
Hún er gift Steindóri
Grétari Kristinssyni tón-
listarkennara. Fjöl-
skyldan fermdi Hrafnhildi
Steindórsdóttur í fyrra og
kom Eleni að skreytingum
fyrir veisluna.
Eleni er með einstakan stíl
og þykir sérfræðingur í að finna
gamla íslenska hluti á mörkuðum í
borginni sem hún gerir upp og stíl-
færir á sinn einstaka hátt.
Undirbúningurinn skemmtilegur
„Það var ótrúlega gaman að
koma að þeirri vinnu að skreyta
fyrir Hrafnhildi. Við Lilja mamma
hennar erum góðar vinkonur og
þekkjumst vel og höfum
unnið saman í verkefnum
áður. Hún er eigandi versl-
unarinnar Fisher og ég sá
um hönnun þeirrar versl-
unar.
Veislan var haldin í gamla
sal Skógræktarfélags
Reykjavíkur við Elliðavatn.“
Eleni segir að und-
irbúningurinn hafi
verið skemmtilegur
og leggur áherslu
á að þetta sé hluti
af daglegu starfi
hennar og því hafi
þetta verið frekar
auðvelt. ,,Ég
myndi mæla með að
fermingarbarnið
fengi að velja sér
uppáhaldslit sem væri
svo gegnumgangandi í
veislunni. Staðurinn
Svona leit lampinn
út áður en hún
gerði hann upp.
þar sem við héldum veisluna var
svo sérstakur og hrár, með stein-
um og við. Af þeim sökum völdum
við svartan lit og brúnan, hrein
náttúruleg efni og svo bleikan lit
sem fór fallega með öllu hinu. Ég
keypti allskonar hluti og skraut úr
Góða hirðinum, frá ABC nytja-
markaðnum, Rauða kross-búðunum
og af fleiri stöðum. Ég málaði og
gerði upp hluti og fjölskyldan tók
þátt í þessu með mér. Mér finnst
skipta sérstaklega miklu máli að
fermingarbarnið fái tækifæri til að
taka sem mestan þátt. Að eyða
helginni í að mála og undirbúa
ferminguna öll saman er einstak-
lega gefandi og gott fyrir alla. Það
gefur fólki tækifæri til að kynnast
og vera skapandi saman, mála og
tengja á mörgum sviðum.
Eleni segir að hvítu dúkarnir
sem þau hafi notað hafi verið hluti
af listrænni upplifun gestanna.
„Dúkarnir voru einnota og pennar
voru á öllum borðum svo gestirnir
gátu teiknað á borðdúkinn sín lista-
verk.“
Mælir með að
fólk prófi sig áfram
Eins hafi falleg blóm verið á einu
borði, mynd af fermingarbarni og
fleira hefðbundið. Þegar kemur að
blómum er Eleni með einstakt
auga. Hún mælir með að fólk prófi
sig áfram, kaupi jafnvel tilbúna
blómvendi og taki blómin í sundur
og flokki í minni vasa. ,,Eins vorum
við með ljósmyndsýningu með skjá-
varpa sem var skemmtilegt. Sér í
lagi þar sem valdar voru myndir
þar sem fermingarbarnið var að
gera skemmtilega hluti. Það skapar
tilefni til umræðu og er verulega
gaman að hafa í svona veislum.“
Þegar kemur að matnum mælir
hún með að ef um hlaðborð er að
ræða sé sniðugt að setja litla
merkimiða við hvern disk. „Eins ef
fólk býður upp á mat, má prenta út
matseðla fyrir gestina, með nafni
fermingarbarnsins á. Það gerir
borðið fallegt og skemmtilegt. Hún
mælir með etsy.com og þá brúð-
kaupsmatseðlum sem breyta má í
fermingarmatseðil og síðan er auð-
velt að prenta bara matseðlana út
sjálfur.
Gestir fengu hluta
af veislunni heim
Eleni finnst áhugavert að hafa
fermingarveislur umhverfisvænar.
„Ég mæli með að forðast að kaupa
plaströr, síðan ef fólk vill nota
plastglös og -diska, þá má alltaf
kaupa aðeins vandaðri fjölnota teg-
undir.“
Fyrir þá sem eru í vanda með
t.d. blómin þá mælir Eleni með ís-
lensku fagfólki. „Það er fagfólk á
hverju strái hér. Ég mæli sem
dæmi með blómabúðinni 4 árstíð-
um. Gestirnir í okkar veislu elsk-
uðu skreytingarnar sem við vorum
með svo við gáfum þeim sem vildu
blóm með sér heim. Mér finnst það
fallegt að skreytingar úr veislunni
hafi fengið að lifa á heimili gest-
anna áfram.“
Fermingarveisla Hrafnhildar var augnakonfekt.
Fermingar-
skraut með sál
Eleni Podara er arkitekt frá Grikklandi sem
er sérfræðingur í að finna gamla íslenska
hluti á mörkuðum í borginni sem hún gerir
upp og stílfærir á sinn einstaka hátt. Hún not-
aði þannig hluti til að gera fermingarveislu
Hrafnhildar fósturdóttur sinnar fallega.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Eleni Podara er með frábært
auga fyrir fallegri hönnun og
uppsetningu.
Áhugavert skraut sem setti punktinn yfir i-ið í fermingunni.
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Eyravegi 29 • Selfossi • Sími 482 1800
DÖMUFATNAÐUR
Glæsilegt úrval
flott merki
stærðir 36-54
Vertu velkomin til okkar
Við tökum
ámóti
hópum