Morgunblaðið - 15.03.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 15.03.2019, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 Í öllum þeim fermingarveislum sem ég hef tekið þátt í að skapa hefur stemningin verið al- gjörlega númer eitt, fegurð, fjör og léttleiki. Fermingarnar eru oftast á vorin og þá er allt að lifna við og springa út, sólargeislar og fuglasöngur. En grundvallar- atriðið og það sem dagurinn snýst um, hvort sem er kirkjuleg eða borgaraleg ferming, er að þetta er dagur barnsins. Er löngu hætt að snúast um að klára húsið eins og á fyrri tímum,“ segir Áslaug spurð að því hvað skipti mestu máli þegar kemur að fermingarveislum. Hvernig skipuleggur þú ferm- ingarveislur, gilda önnur lögmál en þegar fólk heldur upp á 40 eða 50 ára afmæli? „Allt önnur lögmál. Allar þær veislur sem ég hef séð um eru hannaðar út frá fermingarbörn- unum svo þeirra persónuleiki skíni í gegn. Ég byrja alltaf á að spjalla við fermingarbarnið og við finnum taktinn saman. Það getur farið í allskonar áttir því það eru óteljandi leiðir að öllu í lífinu sem betur fer sem gerir það skemmtilegra að lifa ekki eftir einni formúlu,“ segir hún. Áslaug er hrifin af áhrifum for- tíðarinnar og hún elskar kaffisnitt- ur svo dæmi sé tekið. Hún segir líka að það sé allt í lagi að hafa smá majónes og rjóma þegar kemur að veislum. „Mér þykir afar vænt um kaffi- snittumenningu Íslendinga sem var á borðum við öll tækifæri. Ég hef gaman af því að versla við smurbrauðsdömur af gamla skól- anum þegar ég skipulegg veislur,“ segir hún. Hún segir að fólk sé orðið miklu afslappaðra þegar kemur að veislum nútímans og leggi meira upp úr því að hafa góða stemningu. „Það er frelsið. Fólk er orðið meira afslappað en fyrr á tímum. Auðvitað vilja sumir halda í hefðir og það hefur sinn sjarma með fermingarkertinu og hvítu nellik- unni en það er einmitt það sem er svo frábært að poppa upp brauð- terturnar, kertin, servétturnar og leika sér. Ég hef mjög gaman af því að vinna með hefðir og matarmenn- ingu og finna nýja birtingamynd.“ Hvernig matur verður að vera? „Það verða allir svo glaðir ef það er smá majones og rjómi því það er eitthvað sem margir neita sér um dagsdaglega en gera undantekn- ingu í fermingum. Ef það er stað- Fegurð, fjör og léttleiki Áslaug Snorradóttir matarlistamaður býr til geggjaðar veislur. Hún býr ekki bara til fallegan og góðan mat heldur hannar atburðarás í takt við hvert tilefni fyrir sig. Hún segir að fermingarbarnið eigi að ráða sinni veislu. Marta María | mm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Það er ótrúleg fegurð og kraftur í matnum. Áslaug Snorradóttir er listamaður í eldhúsinu.  SJÁ SÍÐU 36 Matur getur verið eins og list í veislunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.