Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 38

Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 Fallegar vörur fyrir falleg heimili Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-15 Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi A rna segir unga fólkið hrifið af merkjavöru í dag og sumir vilji fá tískumerkin á kökurnar. „Hægt er að skreyta bollakökur með bæði kremi en einnig með sykurmassa. Louis Vuitton og Gucci eru vinsælustu merkin núna hjá unglingum og ungu fólki almennt og því vel við hæfi að leyfa sér svoleiðis bollakökur í fermingunni. Hins veg- ar eru bollakökur með kremi mjög klassískar og fallegar og sóma sér vel á hvaða veisluborði sem er. Hægt er að blanda liti í takt við þemalit fermingunnar og því er gam- an að nota kökuna til að ýta undir fegurðina í fermingar- boðinu.“ Áhugamál og íþróttir vinsæl á kökur Hefurðu alltaf haft gaman af því að baka? „Já, ég hef alltaf haft gaman af að baka og skreyta kökur. Skreytingarnar eiga samt hug minn allan því þar fæ ég að nota ímyndunaraflið og vera listræn.“ Hvað panta unglingar í dag sér fyrir fermingarnar? „Skreytingarnar í dag tengjast mikið áhugamálum eins og íþróttum svo dæmi séu tekin. Eins er hægt að vera með uppáhaldstískumerkið, uppáhaldslitinn og þar fram eftir götunum.“ Bollakökur hjálpa til við skammtastærðina Hvað hafa bollakökur fram yfir aðrar kökur? „Skammtastærðin er það sem bollakökur hafa fram yf- ir aðrar kökur. Maður sér síður afganga af bollakökum, en augun eru oft stærri en maginn þegar að kemur að kökum og mikið af þeim fer oft í ruslið þar sem fólk fær sér of stóra sneið.“ Hvernig kom það til að þú fórst út í þennan feril að baka og skreyta fyrir fólk? „Ég bjó í Brussel í níu ár og fór þá að gera þetta sem áhugamál en eftir- spurnin þar var mjög mikil og þá ákvað ég að skella mér til Bandaríkjanna til að læra kökuskreytingar hjá Wilton. Eftirspurnin minnkaði ekki eftir að ég flutti til Íslands og því hef ákveðið að halda þessu áfram, a.m.k. á meðan ég hef gaman af því.“ Með sérherbergi fyrir köku- skreytingar Skiptir eldhúsið miklu máli? „Eldhúsið og öll aðstaðan skipt- ir miklu máli. Ég baka í eldhúsinu en er með annað herbergi sem er sérstaklega innréttað fyrir köku- skreytingar.“ Hvað gerir það fyrir þig að baka? „Það er að sjálfsögðu skemmtilegast að fá frjálsar hendur með skreytingarnar, þá er ég listrænust.“ Hver er framtíðardraumurinn tengdur fyrirtækinu þínu? „Að halda áfram á meðan þetta er ástríða hjá mér.“ Gerði einhver eldhúsið með þér? „Sæbjörg Guðjónsdóttir teiknaði og hannaði eldhúsið en innréttingarnar eru úr HTH.“ Muna að panta tímanlega fyrir veisluna Hvað hafðirðu hugfast þegar þú lést endurgera eld- húsið? „Að hafa nóg borðpláss. Mér fannst líka mikilvægt að hafa tækjaskáp.“ Hefurðu fermt sjálf? „Já, ég hef fermt tvær stjúpdætur mínar.“ Áttu gott ráð fyrir þá sem eru að ferma núna? „Til að minnka streitu er best að vera tímanlega með allt og það segir sig nú eiginlega sjálft. Það er oft gott að kaupa skraut og annað á netinu mjög tímanlega. Gaman er að fara í góða rannsóknarvinnu þegar kemur að hug- myndum að til dæmis kökum og svo ráðlegg ég fólki að sjálfsögðu alltaf að panta tímanlega það sem það ætlar að bjóða upp á í veislunni.“ Arna Guðlaug Einarsdóttir hefur nýverið tekið eldhúsið í gegn. Hún vinnur mikið heima við að gera fallegar kökur og er með puttann á púlsinum þegar fermingarkökur eru ann- ars vegar. Hún lærði kökuskreytingar í Bandaríkjunum og vinnur með áhugasömu fólki við að gera veislur fallegar með kökuskreytingum. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Louis Vuitton- og Gucci- kökur í ferminguna Arna Guðlaug valdi innréttingar frá HTH. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eldhúsið er einstaklega fallegt og stílhreint. Arna Guðlaug er smekkleg og skipulögð í eðli sínu. Öll umgjörð skiptir máli að hennar mati. Arna Guðlaug hefur útbúið fallegt eldhús þar sem góð aðstaða er í fyrirrúmi. Arna Guðlaug segir að ef hún fái frjálsar hendur fái listrænir hæfileikar hennar best að njóta sín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.