Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 46
Þ
að er merkilegt hvað
fermingarveislur hafa
breyst lítið í gegnum
tíðina. Við sem eldri er-
um þekkjum gömlu
góðu fermingarveislurnar þar sem
borð voru hlaðin kræsingum, heitt
og kalt borð eða allt hlaðið í tert-
um og brauðtertum,“ segir bak-
arinn og gourmet-kokkurinn Jói
Fel, spurður hvernig þróun hafi
orðið í fermingarveislum landans.
„Ef farið er í góða veglega
veislu í dag er alltaf sagt, „þetta
er bara eins og fermingarveisla“.
Síðustu ár hefur svo pinnamatur
verið vinsæll í fermingarveislum,
en alltaf þurfa að vera fermingar-
kökur í öllum veislum. Það getur
verið flókið að panta veitingar í
heila veislu og fólk er oft ráðþrota:
hvað á að vera mikið af hverju, er
þetta nóg af mat eða þarf meira?
Þegar fólk undirbýr matinn sjálft
heima er því miður oft alltof mikið
búið til af öllu og mikið um af-
ganga. Það sama á við með kök-
urnar eða eftirréttinn, pantaðar
eru kökur og svo er oft eitthvað
smá heimabakað sem dugar fyrir
margar veislur,“ segir hann.
Jói segir að kökurnar hafi
breyst mikið í gegnum tíðina.
„Kransakakan er á undanhaldi
en hún var í öllum fermingar-
veislum hér áður fyrr en sem bet-
ur fer er alltaf einhverjir sem vilja
fá kransakökuna.
Kökurnar í dag eru flest allar
með hvítum sykurmassa og fal-
legum blómum, einfaldar og lát-
lausar. Stílhreinar og glæsilegar,
blómin eru hvít sem við svo
spreyjum með litum ef þess er
óskað, svo er bara að velja sér
góða fyllingu. Góður
frómas eða súkkulaði-
englakakan sem ég
er búinn að vera
með í yfir 20 ár
þykir alltaf
góð.“
Jói er 52
ára og þegar
hann fermdist
var dálítið
öðruvísi farið
að en tíðkast í
dag.
„Þegar ég fermd-
ist var um haustferm-
ingu að ræða og við vor-
um bara tveir að fermast.
Það var ákveðið með stuttum
fyrirvara að við skyldum fermast
tveir félagarnir. Veislan var haldin
heima hjá okkur og það var köku-
hlaðborð og auðvitað kransakaka.
Ég man ekki mikið hvað ég fékk í
fermingargjafir enda orðið svolítið
langt síðan. En ég man allavega að
peningarnir duguðu fyrir keppnis-
utanlandsferð,“ segir hann og
hlær.
Fermdist um haust með vini sínum
Jói Fel gleymir seint
sínum eigin fermingar-
degi og man að hann
fékk nóg af peningum í
fermingargjöf. Hann
segir að fermingar-
veislur hafi í raun
breyst lítið frá því hann
fermdist sjálfur en það
sé þó alltaf örlítil þróun.
Kökurnar séu að breyt-
ast og pinnamatur sé
vinsæll nú.
Marta María | mm@mbl.is
Hægt er að fá hvaða
fyllingu sem er í
fermingarkökuna.
„Naked drip“-kaka. Pinnamatur er vinsæll í ís-
lenskum fermingarveislum.
Girnilegir smáréttir.
Kransa-
kakan er
alltaf vin-
sæl.
Kökurnar í
dag eru flest
allar með
hvítum
sykurmassa
og fallegum
blómum,
einfaldar og
látlausar.
Bakarinn Jói Fel og Ragnheiður Ýr Markúsdóttir
konditor töfra fram gómsætar kökur.
46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Fallegar
gersemar
fyrir
ferminguna
Vefverslun og sölustaðir á oskabond.is