Morgunblaðið - 15.03.2019, Qupperneq 52
Þ
essa dagana er ég að hanna mjög
skemmtileg kerti sem eru svolítið
öðruvísi en það sem hefur verið í
boði hingað til á markaðnum. Ég
hanna kertin og prenta sjálf und-
ir nafninu MOANOA. Kertin frá MOANOA
hafa ákveðna sérstöðu þar sem ég prenta
beint á vaxið, beint á kertin en ekki á papp-
ír eða eitthvað þess háttar sem hefur verið
vinsælt um nokkurt skeið,“ segir Birna
María spurð um sérmerktu kertin.
Hún segir að fermingarlínan sé litrík og
skemmtileg.
„Ég var að ljúka við fermingarlínuna sem
kemur í nokkrum gerðum og æðislegum lit-
um en svo er ég einnig að hanna fermingar-
kerti eftir séróskum viðskiptavina.“
Hver var kveikjan að þessu?
„Ég er alltaf að fá einhverjar hugmyndir
en þær verða ekki allar að veruleika. Ég
staldraði aðeins við þessa og fór að pæla í
aðferðafræðinni, hvernig ég gæti prentað
sjálf á kerti. Svo fannst mér einfaldlega
vanta meira úrval af fallegum hágæða kert-
um og kertum fyrir sérstök tilefni þar sem
hægt væri að fá kerti eftir sín-
um séróskum. Ég ákvað
bara að setja þetta á „To do
listann“ og hugsaði með mér
að þetta gæti orðið mjög
áhugavert og ekki síður
skemmtilegt.“
Hvað er hægt að gera
með þessari tækni?
„Ég get prentað há-
gæða prent á nánast
hvaða efnivið sem er en
þetta krefst ákveðinnar
þekkingar og vinnu bæði
fyrir og eftir prentun.
Vaxið er sérstaklega erf-
itt í prentun en með
réttri tækni er allt hægt.
Ég get einnig prentað
þannig að prentunin
verður upphleypt, með
svokallaðri 3D-áferð.
Það eru í raun engin
takmörk, eingöngu
möguleikar myndi ég
segja.“
Skiptir máli fyrir
fermingarboðið að hafa
sérmerkt kerti?
„Ég vil ekki segja að
það skipti meginmáli að hafa sérmerkt kerti
en auðvitað getur það vakið lukku og sett
skemmtilegan svip á fermingardaginn.
Kerti búa til stemningu og þau geta gert
svo ótrúlega mikið fyrir hin ýmsu tilefni.
Ég hef fengið séróskir frá fermingarfor-
eldrum sem vilja persónuleg kerti fyrir
börnin sín. Þá vilja flestir einhvers konar
þema, með nafni fermingarbarnsins og fal-
legum heillaóskum svo dæmi sé tekið. Kert-
in frá MOANOA gefa þennan möguleika og
ég lít á þetta sem frábæran valkost.“
Birna María segir að möguleikarnir í
prentuninni séu óþrjótandi.
„Ég set mér engin ákveðin mörk í augna-
blikinu. Er að einbeita mér að fleiri kerta-
línum fyrir skírnarveislur, brúðkaup,
steypiboð, afmæli og önnur tilefni ásamt því
að sinna sérpöntunum. MOANOA er rétt í
startholunum, fleiri vörur eru á teikniborð-
inu sem munu koma á markaðinn á næstu
mánuðum.“
Áhugasamir geta pantað á
www.moanoa.is en einnig er hægt að
senda fyrirspurn á moanoagorilla@gmail-
.com.
Sérmerkt kerti búa til stemningu
Birna María Baarregaard
sérhæfir sig í sérmerktum
fermingarkertum. Hún
segir að slík kerti búi til
stemningu.
Marta María | mm@mbl.is
Birna María Baarreggard er
manneskjan á bak við fallegu
fermingarkertin.
Hægt er að leika sér endalaust með áletranir og liti þegar kemur að fermingarkertum.
Birna María segir
fermingarkertin
setja svip á
veisluborðið.
Morgunblaðið/Hari
52 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
YRSA
Reykjavík
Sjálfvinda/
automatic
herraúr
ÖSP UV400
sólgleraugu
fylgja frítt með
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJAN ERNA
ERNA Skipholti
37.500 22.900
14.900
ÖSP
UNISEX
Vandað armbandsúr
fyrir konur og karla
á öllum aldri
Fermingarúrin
fást í ERNU
Watch of
the Year Bollakökuturninn úr
Systrum og mökum hent-
ar vel fyrir litlar kökur og
aðrar skreytingar eins og
t.d. kransakökur.
Hæðin á standinum er
40 cm frá borði og rúmar
hann 36 litlar kökur. Muff-
insturninn er 100% ís-
lensk framleiðsla og er
svartur úr dufthúðuðu áli.
Hann afhendist í kassa
með uppskrift að bolla-
köku og kremi. Hægt er
að taka hann í sundur og
leggja alveg saman og
tekur hann því lítið skápa-
pláss.
Verð 12.900 kr.
Bolla-
kökuturn
Bollakökustandur frá
Systrum og mökum.