Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Glerárgötu 36 / 600 Akureyri
Sími 415-6415 / hesja.is
Lyngás 13 / 700 Egilsstaðir
Sími 471-2299 / ab.is
FERMINGAGJAFIR
BENSÍN
Svört, rauð eða grá
RAFMAGNS
Svört, rauð eða hvít
Bensín- og rafmagnsvespur á góðu verði
Þarf ekki próf,
trygg ja eða skrá!
Að skipuleggja fermingu getur tekið á. Það þarf að undirbúa að vera upp á sitt
besta fyrir framan linsuna. Tímalaus og létt förðun stenst ávallt tímans tönn.
Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com
Í aðdraganda hátíðarinnar er
mikilvægt að fylla húðina af
raka en þannig má draga úr
fínum línum og húðin virkar
fyllri. Rakamaskar, rakaserum
og rakakrem ætti að vera til
taks á öllum stundum en fyrir
okkur sem höfum takmark-
aðan tíma getum við baðað
húðina í rakagefandi húðvör-
um kvölds og morgna. Raka-
serumið frá NIOD er talið vinna
kraftaverk á húðinni og sömu-
leiðis er rakamaskinn frá Skin-
Ceuticals með þeim bestu á
markaðnum.
NIOD Multi-
Molecular
Hyaluronic
Complex.
(Maí)
Fylltu
húðina raka
YSL Touche
Éclat All-In-
One Glow
Tinted
Moisturizer.
Léttur og
l jómandi farði
YSL Touche
Éclat High Co-
ver Concealer.
Frískleg og sólkysst
Bobbi
Brown
Bronz-
ing
Pow-
der.
Your Hair Assistant er sérstök
lína frá ítalska hárvörumerk-
inu Davines og var hönnuð til
að framkvæma hinn full-
komna hárblástur. Vörurnar
eru tilvaldar til að fá góða fyll-
ingu í hárið og til þess að láta
blásturinn eða hárgreiðsluna
endast betur.
Davines
Y.H.A. Vol-
ume Crea-
tor.
Fullkominn
hárblástur
Davines
Y.H.A.
Devinition
Mist.
Davines
Y.H.A.
Blowdry
Primer.
Bare Minerals Gen Nude
Eyeshadow Palette. (Rose)
Til að halda tímalausu útliti á myndunum sem munu lifa næstu áratugi getur
verið sniðugt að halda sig við náttúrulega litatóna. Gen Nude-augnskugga-
palletturnar frá Bare Minerals eru ekki bara fallegar heldur innihalda þær m.a.
koffín til að draga úr þrota á augnsvæðinu. Stylo Yeux-augnblýantarnir frá
Chanel og Sensai Lash Volumiser-maskarinn er svo skotheld tvenna því báð-
ar vörurnar endast á allan daginn og hreyfast ekki. Að lokum skaltu nota Lan-
côme Brôw Densify á augabrúnirnar til að móta þær og þykkja.
Klassísk augnförðun
Sensai Lip
Pencil.
Lancôme Brôw Densify. Chanel Stylo Yeux
Waterproof.
Það er freistandi að setja á sig mjög
langvarandi varalit sem mun endast
allan daginn og í gegnum kökuátið
en slíkar formúlur geta þurrkað var-
irnar og sýna vel allar línur sem þú
vissir ekki einu sinni að væru á vör-
unum. Notaðu mjúkan varalita-
blýant til að móta varirnar og auka
endingu varalitarins og fylltu svo inn
í með rakagefandi varalit.
Mjúkar og
sléttar varir
Chanel Rouge Coco
Flash Lipstick.
Að skipuleggja fermingu getur tekið á, að mörgu er að
huga og ekki er víst að allir vakni úthvíldir og ferskir þegar á
hólminn er komið. Til að bæta gráu ofan á svart verða mynda-
vélar á lofti allan daginn og þá er skemmtilegra að vera upp á
sitt besta fyrir framan linsuna þar sem myndirnar munu lifa
næstu áratugi og fara um samfélagsmiðla á ljóshraða. Tíma-
laus og létt förðun stenst ávallt tímans tönn.
Tímalaus förðun með frískandi áhrifum
Sensai Lip
Pencil.
Fátt lætur okkur virka þreytulegri en
of mattur og þungur farði svo ef þú vilt
auka frísklega ásýnd skaltu nota létt-
an farða. Ísak Freyr förðunarfræð-
ingur segist mikið nota YSL Touche
Éclat All-In-One Glow Tinted Moisturi-
zer þegar hann farðar stjörnurnar fyrir
rauða dregilinn svo sá farði ætti líka
að virka vel fyrir myndatökur á há-
tíðardeginum. Notaðu svo YSL
Touche Éclat High Cover-hyljarann
undir augu og á þau svæði sem þurfa
meiri þekju.
Shiseido Minimalist
WhippedPowder Blush.
Með því að bursta smá sólarpúðri yfir andliti virðumst við hafa
verið úti að njóta sólarinnar en ekki inni að baka alla daga fyrir
veisluna. Bjartur kinnalitur gerir einnig kraftaverk fyrir andlitið
en nýju kremkinnalitirnir frá Shiseido eru frábærir því þeir end-
ast allan daginn á húðinni.
SkinCeuticals
Hydrating B5
Mask. (Húð-
læknastöðin)