Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 60

Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 60
E yrún er búin að klippa og græja hár í rúmlega 10 ár og hefur alltaf verið með fermingarbörn á þessum tíma árs. „Eitt sem breytist ekki er að klassík og einfaldleiki í greiðslunum heldur sér. Það sem breytist þó hjá stúlkunum hvert ár er skrautið, og hvort þær nota þá skraut yfirhöfuð. Drengirnir eru orðnir óhræddari við að fá sér klippingar sem eru skarpari.“ Að vera með heilbrigt hár Hvað er það heitasta tengt fermingarhári á þessu ári? „Til að byrja með, að vera með vel snyrt og heilbrigt hár. Frekar en að gera til- raunir með hárið fyrir stóra daginn. Vinna frekar með klæðilegar greiðslur sem draga fram karakterinn í hverjum og einum. Léttir liðir, fléttur og eitt „state- ment“-skraut hjá stúlkum. Brakandi fersk klipping hjá drengjunum og að splæsa í hárvax til að ná fram hinni fullkomnu greiðslu.“ Hvað ættu öll ferming- arbörn að gera? „Eiga tíma pantaðan í klipp- ingu/greiðslu – helst hjá Barbarellu auðvitað – fá fag- lega ráðgjöf hjá sínum hársnyrti um umhirðu á hárinu sínu, hvað hentar þeim og önnur ráð varðandi hárið fyr- ir fermingardaginn. Fá mömmu og pabba til að kaupa gott hreinsisjampó og þvo hárið vel daginn áður. Prótein- sprey er alltaf gott í síða hárið til að næra það og styrkja án þess að þyngja það. Síðan er auðvitað gott að njóta dagsins og ekki vera stressuð.“ Hvernig hárskraut er vinsælt? „Gamaldags hárspennur, ein falleg spenna í vangann getur gert greiðsl- una.“ Ekki gera of mikið Hvað ætti maður aldrei að gera við hárið fyrir ferminguna? „Aldrei prófa eitthvað nýtt fyrir ferminguna. Treysta hryll- ingssögunum sem ætt- ingjar þínir segja þér, þeg- ar þau ákváðu að fá sér permanent fyrir stóra dag- inn eða lita hárið svart. Það er nógur tími eftir fermingu til að gera til- raunir með hárið,“ segir Eyrún og talar um þegar hún ákvað að lita hárið á sér svart rétt fyrir ferm- inguna. Hvaða ráð áttu fyrir fermingarforeldrana og hárið þeirra? „Að panta sér tíma líka á fermingardaginn, þá annaðhvort í blástur eða láta hársnyrtinn henda smá vaxi í hárið. Þá eru þær áhyggjur úr sögunni.“ Að mati Eyrúnar er gott að passa að fara ekki fram úr sér þegar kemur að útliti fyrir fermingardaginn. „Það er alltaf langflottast að vera maður sjálfur, eins og manni líður best. Að taka með sér smá nesti því það gleymist oft að fylla á tankinn á svona degi.“ Fermingarstrákar óhræddari Eyrún Guðmundsdóttir er úr Hafnarfirði og snyrtir hár á Barbarellu í Reykjavík. Hún segir í tísku um þessar mundir að vera með heilbrigt hár, eitt fallegt skraut fyrir stelpur og vax í hári fyrir strákana. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Eyrún hefur starfað með hár fermingarbarna í yfir tíu ár. Skarpari klipp- ingar eru í tísku hjá strákum í dag. Eyrún mælir með að strákar og stelpur breyti ekki of mikið til þegar kemur að útliti fyrir ferminguna. Eyrún er á því að mikilvægt er að nota góð efni í hár- ið fyrir fermingar. Eyrún mælir með að gera hárið fallegt fyrir ferminguna en ekki breyta of miklu. 60 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 Fermingargjöf sem gefur Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er gjöf sem heldur áfram að gefa. Fermingarbar ið fær skeytið eða bréfið í hendurnar en andvirðið rennur til jafnaldra fermingar- barnsins sem býr við fátækt. Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr. Eða gefð fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr. Þú færð skeytin og gjafabréfin á www.gjofsemgefur.is eða pantar þau á skrifstofunni okkar, 528 4400. Þú prentar út, sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig. Einfalt eðilegt. Óskalistinn minn: Fartölva, úr, sími, myndavél, hátalari, heyrnartól, svefn- poki, bakpoki, tjald, svo væri gaman að fá pening og „Gjöf sem gefur“. Mig langar til að einhver sem er ekki eins heppinn og ég fái að njóta með mér. www.gjofsemgefur.is Við systkinin erum munaðarlaus. 1.990 kr. fermingarskeyti á Íslandi dugar fyrir tveimur hænum. Þær gefa okkur fullt af eggjum. 5.000 kr. gjafabréf á Íslandi myndi gefa okkur tvær geitur. Eða kannski reiðhjól. Þá kæmist ég á markað með uppskeruna okkar og við fengjum peninga. Óskalistinn minn: P ip a r\ TB W A og gl n u

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.