Morgunblaðið - 15.03.2019, Síða 60
E
yrún er búin að klippa og
græja hár í rúmlega 10 ár
og hefur alltaf verið með
fermingarbörn á þessum
tíma árs. „Eitt sem breytist
ekki er að klassík og einfaldleiki í
greiðslunum heldur sér. Það sem
breytist þó hjá stúlkunum hvert ár er
skrautið, og hvort þær nota þá skraut
yfirhöfuð. Drengirnir eru orðnir
óhræddari við að fá sér klippingar
sem eru skarpari.“
Að vera með
heilbrigt hár
Hvað er það heitasta tengt
fermingarhári á þessu ári?
„Til að byrja með, að vera
með vel snyrt og heilbrigt
hár. Frekar en að gera til-
raunir með hárið fyrir stóra
daginn. Vinna frekar með
klæðilegar greiðslur sem
draga fram karakterinn í
hverjum og einum. Léttir
liðir, fléttur og eitt „state-
ment“-skraut hjá stúlkum.
Brakandi fersk klipping hjá
drengjunum og að splæsa í
hárvax til að ná fram hinni
fullkomnu greiðslu.“
Hvað ættu öll ferming-
arbörn að gera?
„Eiga tíma pantaðan í klipp-
ingu/greiðslu – helst hjá
Barbarellu auðvitað – fá fag-
lega ráðgjöf hjá sínum hársnyrti um
umhirðu á hárinu sínu, hvað hentar
þeim og önnur ráð varðandi hárið fyr-
ir fermingardaginn. Fá mömmu og
pabba til að kaupa gott hreinsisjampó
og þvo hárið vel daginn áður. Prótein-
sprey er alltaf gott í síða hárið til að
næra það og styrkja án þess að
þyngja það. Síðan er auðvitað gott að
njóta dagsins og ekki vera stressuð.“
Hvernig hárskraut er vinsælt?
„Gamaldags hárspennur, ein falleg
spenna í vangann getur gert greiðsl-
una.“
Ekki gera of mikið
Hvað ætti maður aldrei að gera við
hárið fyrir ferminguna?
„Aldrei prófa eitthvað nýtt fyrir
ferminguna. Treysta hryll-
ingssögunum sem ætt-
ingjar þínir segja þér, þeg-
ar þau ákváðu að fá sér
permanent fyrir stóra dag-
inn eða lita hárið svart.
Það er nógur tími eftir
fermingu til að gera til-
raunir með hárið,“ segir
Eyrún og talar um þegar
hún ákvað að lita hárið á
sér svart rétt fyrir ferm-
inguna.
Hvaða ráð áttu fyrir
fermingarforeldrana og
hárið þeirra?
„Að panta sér tíma líka
á fermingardaginn, þá
annaðhvort í blástur eða
láta hársnyrtinn henda
smá vaxi í hárið. Þá eru
þær áhyggjur úr sögunni.“
Að mati Eyrúnar er
gott að passa að fara ekki
fram úr sér þegar kemur að útliti
fyrir fermingardaginn.
„Það er alltaf langflottast að vera
maður sjálfur, eins og manni líður
best. Að taka með sér smá nesti því
það gleymist oft að fylla á tankinn á
svona degi.“
Fermingarstrákar óhræddari
Eyrún Guðmundsdóttir er úr Hafnarfirði og snyrtir
hár á Barbarellu í Reykjavík. Hún segir í tísku um
þessar mundir að vera með heilbrigt hár, eitt fallegt
skraut fyrir stelpur og vax í hári fyrir strákana.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Eyrún hefur starfað með hár fermingarbarna í yfir tíu ár.
Skarpari klipp-
ingar eru í tísku
hjá strákum í
dag.
Eyrún mælir með að
strákar og stelpur
breyti ekki of mikið til
þegar kemur að útliti
fyrir ferminguna.
Eyrún er á því að
mikilvægt er að
nota góð efni í hár-
ið fyrir fermingar.
Eyrún mælir með að
gera hárið fallegt
fyrir ferminguna en
ekki breyta of miklu.
60 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Fermingargjöf sem gefur
Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er
gjöf sem heldur áfram að gefa. Fermingarbar ið
fær skeytið eða bréfið í hendurnar en
andvirðið rennur til jafnaldra fermingar-
barnsins sem býr við fátækt.
Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr. Eða gefð
fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr.
Þú færð skeytin og gjafabréfin á
www.gjofsemgefur.is eða pantar þau á
skrifstofunni okkar, 528 4400. Þú prentar út,
sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig. Einfalt eðilegt.
Óskalistinn minn:
Fartölva, úr, sími,
myndavél, hátalari,
heyrnartól, svefn-
poki, bakpoki, tjald,
svo væri gaman að
fá pening og
„Gjöf sem gefur“.
Mig langar til að
einhver sem er
ekki eins heppinn
og ég fái að njóta
með mér.
www.gjofsemgefur.is
Við systkinin erum
munaðarlaus. 1.990 kr.
fermingarskeyti á
Íslandi dugar fyrir
tveimur hænum. Þær
gefa okkur fullt af
eggjum.
5.000 kr. gjafabréf á
Íslandi myndi gefa
okkur tvær geitur.
Eða kannski reiðhjól.
Þá kæmist ég á
markað með
uppskeruna okkar
og við fengjum
peninga.
Óskalistinn minn:
P
ip
a
r\
TB
W
A
og gl
n
u