Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Fermingargjafir í úrvali Hálsmen 8.900,- Hálsmen 8.900,- Hálsmen 9.900,- Hringur 8.900,- Hringur 8.900,- Hringur 8.900,- Eyrnalokkar 5.500,- Eyrnalokkar 5.500,- H elena var með kvíða- hnút í maganum. Hún vissi ekki hvort hún fengi að hitta pabba sinn eða afa og ömmu að athöfn lokinni. Mamma hennar og pabbi töluðu ekki saman. Veislan var aðeins með fólkinu hennar mömmu og stjúpa. Pabbi hennar ætlaði að hafa boð helgina á eftir. Hvernig fólk hagar sínum veislu- höldum er að sjálfsögðu einkamál hvers og eins. Það er ekkert óal- gengt að fólk haldi fleiri en eina af- mælisveislu fyrir barn, hvort sem foreldrar búa saman eða ekki. Það eru haldin bekkjarafmæli, fjöl- skylduafmæli og vinaafmæli ef því er að skipta. Af hverju ætti eitthvað annað gilda um fermingarveisluna? Halda má eina veislu eða fleiri. Aðalatriðið er að barnið og þeir sem að því standa séu sáttir. Hvað svo sem öllum öðrum finnst um fyrir- komulagið. Óhjákvæmilega er það dýrara að hafa margar veislur en hver og einn verður að gera það upp við sig hvað hann hefur ráð á. Ætli fólki hins veg- ar að halda veislu saman þarf að komast að samkomulagi um kostnað, vinnuframlag og þess háttar. Góð regla er að ráðstafa hvorki tíma né peningum annarra án samráðs við viðkomandi vilji fólk eiga góð sam- skipti. Muna þarf líka eftir að eiga samráð við stjúpforeldra séu þeir til staðar. Það er örlítið flóknara með ferm- inguna sjálfa hvort heldur um sé að ræða kirkjulega eða borgaralega at- höfn. Ferming er einstakur atburð- ur og verður ekki endurtekinn. Spurningin er hvaða minningar vilj- um við að börnin eigi um athöfnina og það sem henni fylgir? Rétt eins og langvarandi áhyggjur og ótti hafa neikvæð áhrif á heilsu og velferð barna og fullorðinna þá hefur það jákvæð áhrif að finna ást og ör- yggi hjá þeim sem næst okkur standa. Við verðum betur í stakk bú- in til að takast á við þau verkefni sem lífið leggur okkur á herðar. Börn læra að verða vongóð í stað þess að líta a sig sem fórnarlömb sem lítil áhrif geta haft á líf sitt. Skilnaður foreldra er yfirleitt börnum áfall í fyrstu en flest jafna sig smám saman nái foreldrar að leysa sín mál á uppbyggilegan máta. Takist það ekki er líklegt að mikill og langvarandi ágreiningur valdi börnunum streitu og kvíða. Á það líka við um börn sem búa með báð- um foreldrum sínum. Erfið sam- skipti fyrrverandi maka geta líka haft áhrif á aðlögun barna í stjúp- fjölskyldum þar sem koma barnsins verður kvíðvænleg vegna þeirra deilna sem ósjaldan fylgja inn á heimilið. Þegar deilur eru miklar er börnum stundum bann- að að tengjast stjúpfor- eldri sínu og ræða það sem gerist á öðru heim- ilinu á hinu heimilinu. Ekki veit ég hvað full- orðnu fólki þætti um að mega hvorki ræða vinnuna né vinnufélaga sína heima eða fjölskyldu sína í vinnunni? Eða það lenti í sífelldum yfirheyrslum um hvað gerðist á hvorum staðnum um sig. Hvað þá ef það mætti ekki tengjast ákveðnum vinnufélaga sem væri bara viðkunnanleg manneskja? Hætta er á að foreldrar missi traust barna sinna og staða barnanna verði í senn einmanaleg og flókin. Hvort haldin verði ein eða tvær veislur er því kannski ekki stóra málið fyrir barnið heldur lask- að traust til foreldra og stjúpfor- eldra séu þeir til staðar. Þegar kemur að athöfninni sjálfri eiga börn ekki annarra kosta völ, mæti báðir foreldra og fjölskyldur, en að hafa þau á sama stað á sama tíma. Það er því mikilvægt að at- höfnin sé undirbúin – og þau viti hvað bíði þeirra í stað þess að ala á kvíða og óvissu. Enn er tími til stefnu vilji fólk finna út úr hlutunum og setja má sér það markmið að enda deilur eða a.m.k. finna leið til að lágmarka áhrif þeirra á börnin. Börnin eiga líklega eftir að gifta sig og skíra í framtíðinni og æskilegt að þau séu ekki að glíma við skilnað for- eldra sinna langt fram á fullorðinsár – hvað þá ófædd barnabörn. Þeir sem sjá um athöfnina og undirbúning hennar geta gegnt mikilvægu hlutverki í að aðstoða for- elda og börn sem eru í þessum að- stæðum – það þarf bara að opna um- ræðuna og sjá hvað hentar hverjum og einum. Ættum við ekki frekar að hafa áhyggjur af kvíðahnút barnsins en hvort það fær eina eða tvær ferm- ingarveislur? Fermingarbörn eiga ekki að glíma við skilnað foreldra Hvort eiga fráskildir foreldrar að halda eina eða tvær fermingarveislur? Valgerður Halldórsdóttir, fjölskyldu -og félagsráðgjafi MA, sem rekur vefinn www.stjuptengsl.is. svarar þeirri spurningu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Eggert Foreldrar þurfa að leggja tilfinningar sínar til hliðar á fermingardag barnsins. Valgerður Halldórsdóttir er fjölskyldu -og félagsráðgjafi MA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.