Morgunblaðið - 15.03.2019, Qupperneq 66
66 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Fermingargjafir í úrvali
Hálsmen
8.900,-
Hálsmen
8.900,-
Hálsmen
9.900,-
Hringur
8.900,-
Hringur
8.900,-
Hringur
8.900,-
Eyrnalokkar
5.500,-
Eyrnalokkar
5.500,-
H
elena var með kvíða-
hnút í maganum. Hún
vissi ekki hvort hún
fengi að hitta pabba
sinn eða afa og ömmu
að athöfn lokinni. Mamma hennar og
pabbi töluðu ekki saman. Veislan var
aðeins með fólkinu hennar mömmu
og stjúpa. Pabbi hennar ætlaði að
hafa boð helgina á eftir.
Hvernig fólk hagar sínum veislu-
höldum er að sjálfsögðu einkamál
hvers og eins. Það er ekkert óal-
gengt að fólk haldi fleiri en eina af-
mælisveislu fyrir barn, hvort sem
foreldrar búa saman eða ekki. Það
eru haldin bekkjarafmæli, fjöl-
skylduafmæli og vinaafmæli ef því
er að skipta. Af hverju ætti eitthvað
annað gilda um fermingarveisluna?
Halda má eina veislu eða fleiri.
Aðalatriðið er að barnið og þeir sem
að því standa séu sáttir. Hvað svo
sem öllum öðrum finnst um fyrir-
komulagið.
Óhjákvæmilega er það dýrara að
hafa margar veislur en hver og einn
verður að gera það upp við sig hvað
hann hefur ráð á. Ætli fólki hins veg-
ar að halda veislu saman þarf að
komast að samkomulagi um kostnað,
vinnuframlag og þess háttar. Góð
regla er að ráðstafa hvorki tíma né
peningum annarra án samráðs við
viðkomandi vilji fólk eiga góð sam-
skipti. Muna þarf líka eftir að eiga
samráð við stjúpforeldra séu þeir til
staðar.
Það er örlítið flóknara með ferm-
inguna sjálfa hvort heldur um sé að
ræða kirkjulega eða borgaralega at-
höfn. Ferming er einstakur atburð-
ur og verður ekki endurtekinn.
Spurningin er hvaða minningar vilj-
um við að börnin eigi um athöfnina
og það sem henni fylgir?
Rétt eins og langvarandi áhyggjur
og ótti hafa neikvæð áhrif á heilsu og
velferð barna og fullorðinna þá hefur
það jákvæð áhrif að finna ást og ör-
yggi hjá þeim sem næst okkur
standa. Við verðum betur í stakk bú-
in til að takast á við þau verkefni
sem lífið leggur okkur á herðar.
Börn læra að verða vongóð í stað
þess að líta a sig sem fórnarlömb
sem lítil áhrif geta haft á líf sitt.
Skilnaður foreldra er yfirleitt
börnum áfall í fyrstu en flest jafna
sig smám saman nái foreldrar að
leysa sín mál á uppbyggilegan máta.
Takist það ekki er líklegt að mikill
og langvarandi ágreiningur valdi
börnunum streitu og kvíða. Á það
líka við um börn sem búa með báð-
um foreldrum sínum. Erfið sam-
skipti fyrrverandi maka geta líka
haft áhrif á aðlögun barna í stjúp-
fjölskyldum þar sem koma barnsins
verður kvíðvænleg vegna þeirra
deilna sem ósjaldan fylgja inn á
heimilið.
Þegar deilur eru miklar
er börnum stundum bann-
að að tengjast stjúpfor-
eldri sínu og ræða það
sem gerist á öðru heim-
ilinu á hinu heimilinu.
Ekki veit ég hvað full-
orðnu fólki þætti um að
mega hvorki ræða vinnuna
né vinnufélaga sína heima eða
fjölskyldu sína í vinnunni? Eða
það lenti í sífelldum yfirheyrslum
um hvað gerðist á hvorum staðnum
um sig. Hvað þá ef það mætti ekki
tengjast ákveðnum vinnufélaga sem
væri bara viðkunnanleg manneskja?
Hætta er á að foreldrar missi
traust barna sinna og staða
barnanna verði í senn einmanaleg og
flókin. Hvort haldin verði ein eða
tvær veislur er því kannski ekki
stóra málið fyrir barnið heldur lask-
að traust til foreldra og stjúpfor-
eldra séu þeir til staðar.
Þegar kemur að athöfninni sjálfri
eiga börn ekki annarra kosta völ,
mæti báðir foreldra og fjölskyldur,
en að hafa þau á sama stað á sama
tíma. Það er því mikilvægt að at-
höfnin sé undirbúin – og þau viti
hvað bíði þeirra í stað þess að ala á
kvíða og óvissu. Enn er tími til
stefnu vilji fólk finna út úr hlutunum
og setja má sér það markmið að
enda deilur eða a.m.k. finna leið til
að lágmarka áhrif þeirra á börnin.
Börnin eiga líklega eftir að gifta sig
og skíra í framtíðinni og æskilegt að
þau séu ekki að glíma við skilnað for-
eldra sinna langt fram á fullorðinsár
– hvað þá ófædd barnabörn.
Þeir sem sjá um athöfnina og
undirbúning hennar geta gegnt
mikilvægu hlutverki í að aðstoða for-
elda og börn sem eru í þessum að-
stæðum – það þarf bara að opna um-
ræðuna og sjá hvað hentar hverjum
og einum.
Ættum við ekki frekar að hafa
áhyggjur af kvíðahnút barnsins en
hvort það fær eina eða tvær ferm-
ingarveislur?
Fermingarbörn
eiga ekki að
glíma við
skilnað foreldra
Hvort eiga fráskildir foreldrar að halda eina eða
tvær fermingarveislur? Valgerður Halldórsdóttir,
fjölskyldu -og félagsráðgjafi MA, sem rekur vefinn
www.stjuptengsl.is. svarar þeirri spurningu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Morgunblaðið/Eggert
Foreldrar þurfa að leggja
tilfinningar sínar til hliðar á
fermingardag barnsins.
Valgerður Halldórsdóttir er fjölskyldu
-og félagsráðgjafi MA.