Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 75
Morgunblaðið/Eggert áfram á ferðalagi trúar sinnar sem hófst þegar þau voru borin til skírnar.“ Hvar og hvenær átti þín eigin ferming sér stað? Hvað stóð upp úr við daginn? „Ég fermdist árið 1996 í Há- teigskirkju. Ég á góðar minningar frá deginum. Ég man sérstaklega eftir einu atviki sem mig langar að nefna hér. Í lok dagsins kom frændi minn til mín og spurði: „Jæja, Grétar, trúir þú í alvör- unni á Guð?“ Ég man hvað mér fannst þetta undarleg spurning. Og sá andi sem hún var borin fram í, hann var mér með öllu framandi!“ „Krakkar eru á mis- munandi stað á sínu trúarferðalagi.“ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 MORGUNBLAÐIÐ 75 Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is Opið alla virka daga 10–19 | Laugardaga 11–16 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA EIGULEGAR Í FERMINGAR- PAKKANN Klassísk verk Halldórs Laxness Fallegar gjafabækur sem endast út lífið Íslandssagan frá upphafi byggðar til okkar daga Kristín talar meðal annars um fyrsta skiptið sitt ásamt því að deila því með krökkunum þegar henni var nauðgað af tveimur mönnum. Hún fer ekki ítarlega út í þann atburð en ræðir samt við- brögð sín. Í hennar tilfelli lamaðist hún af ótta og þess vegna kenndi hún sér um en ekki þeim. Það var svo ekki fyrr en hún varð fullorðin að hún áttaði sig á því að hún hafði borið skömmina í hljóði og þetta hefði ekki verið henni að kenna. Hún var svo reið út í lík- ama sinn fyrir að hafa hafnað sér. Að hún hefði ekki getað lamið frá sér eða gert eitthvað til að losna úr aðstæðunum. „Þetta eru þekkt viðbrögð við nauðgun, en það vissi ég ekki á þessum tíma. Það gerð- ist eitthvað innra með mér sem gerði það að verkum að ég breytt- ist á einni nóttu. Ég byrjaði að drekka meira áfengi og prófaði sem dæmi eiturlyf með vinkonu minni. Ég var heppin að hafa ekki ánetjast hugbreytandi efnum.“ Hún fer lauslega yfir þessa at- burðarás með krökkunum og spyr þau hvern þau myndu tala við ef eitthvað svipað þessu kæmi fyrir þau. „Ég útskýri fyrir þeim að þau mega segja nei og þau mega bakka. Eins læt ég þau vita að ef þeim líður illa með eitthvað þá sé nauðsynlegt að tala um það við einhvern sem maður treystir. Ef ég hefði gert það á þessum tíma hefði ég brugðist öðruvísi við. Ég hefði ekki kennt mér um atburð- inn. En á þessum tíma sem þetta gerðist var forsendan í lögum sú að aðilar sem lentu í nauðgun yrðu að segja nei og berjast á móti verknaðinum. Sem er magnað, miðað við þá staðreynd að algeng viðbrögð við nauðgun eru þau að fórnarlambið lamast af ótta.“ Heppin að hafa hitt eiginmanninn Kristín var sextán ára þegar at- vikið átti sér stað og segir hún það hafa haft djúpstæð áhrif á allt líf sitt. Hún hafi unnið ötullega í sér til að komast yfir þennan atburð og getur nú notað reynslu sína sem forvörn fyrir aðra. „Ef krakkarnir okkar breytast og það virðist vera eitthvað að angra þau er mikilvægt fyrir for- eldra að reyna að verða aðilinn sem þau geta treyst fyrir þessum málum. Ég breyttist á einni nóttu við það sem kom fyrir hjá mér og varð aldrei sama unga konan. Ég hefði þurft að eiga einn góðan að- ila sem var eldri en ég sem ég hefði getað treyst fyrir þessu. Ég bendi krökkunum á að hugsa sér til hvers þau myndu leita að þessu leyti. Eins bendi ég þeim á að það er alltaf hægt að hringja í hjálpar- síma Rauða krossins ef þau treysta engum, þar er fólk að vinna og getur aðstoðað og leið- beint þeim annað. Barnahús og Stígamót eru einnig að vinna frá- bært starf ásamt neyðarmóttök- unni uppi á spítala. En ég skil vel að það sé erfitt að taka skrefið.“ Það sem Kristínu finnst svo mikil- vægt í lífinu er að krakkar séu ekki að „fixa“ sig á öðrum. Að þau leiti leiða til að fylla tómleika eða skort á sjálfsvirðingu með leiðum sem virka en ekki kynlífi með fólki sem hefur enga getu til að tengj- ast þeim á tilfinningasviðinu. „Ég var ótrúlega heppin að finna Kidda stuttu eftir nauðgun- ina mína. Mann sem kunni að meta mig fyrir hvað ég var skemmtileg og hress en ekki ein- ungis á líkamlega sviðinu,“ segir hún að lokum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.