Morgunblaðið - 15.03.2019, Page 76
76 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Síðumúla 34, 108 Reykjavík, s. 551 4884, www.stillfashion.is
Glæsilegt úrval af fatnaði
í fermingarveisluna
Njóttu þess að koma…
L
jósmyndir Ránar eru
afslappaðar og skemmti-
legar, þar sem náttúr-
an og mild birta
kallast á við djúpa
skugga.
Rán segir að áhugi sinn
á ljósmyndum hafi
kviknað ómeðvitað þeg-
ar hún var barn. „Pabbi
minn átti myrkra-
herbergi og tók mikið af
myndum á filmu. Hann
leyfði mér að taka þátt í
öllu ferlinu og sjá hvernig
ljósmyndir verða til.
Mamma tók líka mikið af
myndum af okkur systkinunum
þegar ég var að alast upp og hún á
tugi albúma sem mér finnst ennþá
gaman að fletta í gegnum. Þegar ég
fermdist fékk ég mína fyrstu mynda-
vél og hef tekið myndir alla daga síð-
an. Það var aldrei ætlunin að gera
þetta að starfi mínu samt, heldur var
þetta meira svona eins og einhver
draumur sem ég átti. Ég hélt aldrei
að hann yrði að veruleika.“
Var með myndavél í láni í fyrstu
Að sögn Ránar var það eiginmaður
hennar sem hvatti hana áfram og lán-
aði henni stóra myndavél sem hann
átti. „Hann fékk myndavélina aldrei
aftur. Ég fór að taka myndir sam-
hliða vinnu, fyrst fyrir mig en svo fyr-
ir aðra.
Stundum gat ég ekki beðið eftir að
komast úr vinnunni til þess að geta
farið að mynda. Ég vann hálft starf á
þáverandi vinnustað og hálft starf
sem áhugaljósmyndari. Síðan æxl-
uðust mál þannig árið 2015 að ég
sagði starfi mínu lausu, fór í
ljósmyndanám og hef starf-
að eingöngu sem ljós-
myndari síðan.“
Rán segir að það gefi
henni mikið að vera
ljósmyndari.
„Ég hef sérhæft
mig í barna- og fjöl-
skyldumyndatökum
og það jafnast fátt á
við það að geta glatt
fólk með fallegum
myndum af börnum
sínum og fjölskyldu. Það
er fjársjóður sem ég tók
þátt í að búa til og eitthvað
sem fólk mun varðveita um
ókomna framtíð.“
Ekki alltaf auðvelt að
mynda fermingarbörn
Hvernig er að mynda fermingar-
börn?
„Þegar ég hef náð þeim á mitt band
er það mjög skemmtilegt. Ég væri að
ljúga ef ég segði að það væri alltaf
auðvelt. Þetta er viðkvæmur aldur og
þau eru mjög meðvituð um sjálf sig.
Ég passa fyrst og fremst upp á að
reyna að kynnast þeim og sýna þeim
Ljósmyndir
eru fjársjóður
Rán Péturs Bjargardóttir hefur starfað sjálfstætt sem ljósmyndari í sjö ár.
Hún vildi að allir myndu fjárfesta í ljósmyndum fyrir stundir eins og ferm-
ingar, líkt og fólk gerir tengt fatnaði og fylgihlutum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rán hefur mjög gaman af því að taka fallegar ljósmyndir á fermingardaginn.
Fermingarbörn
eru frjálsari
í sínu náttúru-
lega
umhverfi.