Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 78

Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 78
„Ekki gæinn sem vill gera meira af því sama“ A rnór Bjarki er vanalega kallaður Nói. Hann er prestur í Ástjarnar- kirkju í Hafnarfirði og í Kálfatjarnarkirkju. Spurður hvað kom til að hann varð prestur segir hann að það hafi fyrst og fremst verið köllun sem hann fékk í lífinu. „Ég hef alltaf verið trúaður enda var ég al- inn upp í trú þó að ég hafi brotist aðeins út úr því á unglingsárum mínum. Þá varð ég „of töff“ fyrir kirkju, neitaði að taka þátt í þessu með mömmu. En trúin bjó alltaf innra með mér og ég hélt áfram að biðja bænir þrátt fyrir að vera erfiður unglingur og ekki alltaf til fyrirmyndar. Síðan fór ég að læra kjötiðn og vann við það í ein 12 ár. Það var svo upp úr hruni sem ég fann mig endurtekið í þeim að- stæðum að fólk var að leita til mín með sín mál. Ég var þá að spjalla við fólk og stappa í þá stálinu sem höfðu það ekki nógu gott. Talið barst oft yfir í trúna, Guð og Jesú. Síðan vaknaði ég einn daginn og fann svo sterkt innra með mér, að ég ætti að leggja þetta fyrir mig.“ Fékk köllun til að verða prestur Nói segir að þá hafi hann strax farið af stað í að hringja í guð- fræðideild Háskólans og athuga hvort möguleiki væri fyrir hann að komast að í náminu. „Þetta var árið 2009 og ég ákvað á þeim tímapunkti að skrá mig í Verkmenntaskólann á Akur- eyri til að ljúka þeim einingum sem ég átti eftir fyrir stúdents- próf og síðan byrjaði ég í guðfræði í september árið 2010.“ Nói útskrifaðist árið 2016 og fékk rúmum tveimur árum seinna vinnu sem prestur. Í fyrstu eftir útskrift starfaði hann sem æsku- lýðsfulltrúi í Ástjarnarkirkju í hálfri stöðu og í 35% stöðu í Kálfatjarnarkirkju á sama tíma. Síðan þegar prestakallið auglýsti eftir presti í nýja stöðu ákvað hann að sækja um og var valinn í verkefnið. Hann hefur starfað sem prestur frá því í ágúst á síðasta ári. Nói er einungis 37 ára og er þá líklegast frekar ungur miðað við meðalaldur prestastéttarinnar hér Arnór Bjarki Blomsterberg er ungur miðað við meðalaldur presta í landinu. Það er margt við hann sem minnir kannski ekki svo mikið á prest í hefðbundnum skilningi. En það streymir kær- leikur og skilningur frá honum sem eru eig- inleikar sem gott er að hafa í presti. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Nói gerir áhugaverða hluti með fermingarbörnum. Trúfræðsla er eitt atriði, en einnig fræðsla og umræða um mikilvægi þess að eiga einhvern að til að tala við. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nói er skemmtilegur prestur sem hefur áhuga á að tengjast sóknarbörnum og verða vinur þeirra ef þau vantar vin núna eða í framtíðinni. á landi. „Mér líður eins og ég hafi verið leiddur hingað inn. Ég hef reynslu af því að starfa náið með Jónu Hrönn í fermingarfræðslu síðustu árin og af henni hef ég lært ótrúlega margt. Hún er svo skemmtileg og öðruvísi og það þykir mér gott. Ég er ekki gæinn sem vill gera meira af því sama. Það sem ég hef viljað gera í mín- um sóknum er að bjóða upp á ör- lítið öðruvísi valkost. Ég er með unga sókn, meðalaldur þeirra sem koma í kirkjuna okkar er lágur. Söfnuðurinn var stofnaður árið 2001 og í honum er rosalega mikið af ungu barnafólki. Við viljum reyna að höfða til þeirra og erum því með metnaðarfullt barna- og unglingastarf sem ég held utan um.“ Við erum öll manneskjur Hver er miðpunktur þess starfs? „Alla mánudaga og fimmtudaga tek ég á móti börnum frá sex ára aldri og upp í 10. bekk. Þau koma í þremur hópum – sex til átta ára, síðan níu til tólf ára og svo koma unglingarnir um kvöldið.“ Starfið er metnaðarfullt en alls ekki hefðbundið. Við syngjum stundum, förum í spurningaleiki og fleira skemmtilegt og í starfinu reyni ég að sá kærleiksfræjum. Hugmyndum um að við erum öll mismunandi. Við þurfum öll á vin- áttu og hlýju að halda. Við ættum að skoða hvernig við komum fram við hvert annað og síðan ræði ég þessa grunnhugmynd sem er í mínum huga sú að Jesús kallar okkur ekki til neins annars en að vera manneskjur fyrir okkur sjálf og aðrar manneskjur í þessu lífi.“ Nói lýsir skemmtilegri dæmi- sögu um hvernig hann notar þessa hugmyndafræði þegar krakkarnir gera sem dæmi kókoskúlur. Hann er þá kannski búinn að undirbúa deigið áður en þau mæta. Allir fá sinn hluta af deiginu og síðan byrja börnin að hnoða kókoskúl- urnar. „Í hvert skipti sem við vinnum þetta verkefni saman þá sé ég barn sem gerir eina stóra kúlu úr sínu deigi og síðan er barn sem gerir fimmtíu litlar kúlur úr sínu deigi. Eftir baksturinn förum við vanalega öll inn í kirkjuna að hugleiða og þá fjöllum við um 78 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 Listrænar gjafir Falleg hönnun og gjafavara Listaverkabækur, kort og veggspjöld Hafnarhús Tryggvagata 17 101 Reykjavík Kjarvalsstaðir Flókagata24 105 Reykjavík Ásmundarsafn Sigtún 105 Reykjavík Safnbúðir Listasafns Reykjavíkur Sími 4116400

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.