Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2019, Side 7
10.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7
eralismans, eða hinnar klassísku
frjálslyndisstefnu, sem byggist á ein-
staklingsréttindum Johns Lockes og
hagfræði Adams Smiths.
En á allra síðustu árum, ekki síst
eftir fjármálakrísuna 2008, hafa kom-
ið brestir í áður óhagganlega tiltrú
manna á þessu leiðarljósi. Sá grunur
læðist að ákveðnum hópum að fram-
tíðin sé ekki endilega björt og að
frjálslyndisstefnan hafi ekki endilega
lengur svör við áskorunum samtím-
ans. Fortíðarþrá er þannig í fyrsta
sinn í langan tíma orðin allt að því
ráðandi hugmyndafræði sums staðar,
í stað bjartsýni á framtíðina. Beinlínis
er hvatt til þess að snúið verði við,
fremur en að haldið verði áfram á
þeirri braut sem hefur fært okkur þá
miklu velmegun sem við búum við í
dag. Margir virðast ekki taka undir
með að við erum betur stödd en á ár-
um áður, þó að rökin fyrir því séu
óljós. Þessari fortíðarþrá fylgja efa-
semdir um gildi frjálsra viðskipta og
alþjóðasamskipta. Með öðrum orð-
um: tilhneiging til að einangra sig,
jafnvel á bak við múra.
Fjórða iðnbyltingin mun vekja enn
fleiri og áleitnari spurningar um það
hvort leiðarljós okkar í dag, hin klass-
íska frjálslyndisstefna, hafi ennþá
svörin og geti tryggt okkur áfram-
haldandi bætt lífskjör, kynslóð fram
af kynslóð. Við þessum spám þarf
augljóslega að bregðast og ýmislegt
sem stjórnvöld, atvinnurekendur,
verkalýðshreyfingin og einstakling-
arnir sjálfir geta gert.
Aukin nýsköpun í samfélaginu er í
þessu samhengi einfaldlega ekki val,
heldur nauðsyn.
Nýsköpunarstefna fyrir Ísland sem
nú er í smíðum í mínu ráðuneyti er því
að mínu mati eitt mikilvægasta verk-
efni þessarar ríkisstjórnar. Hún er
stór hluti af svarinu við stærstu spurn-
ingunum sem við stöndum frammi fyr-
ir og er forsenda áframhaldandi verð-
mætasköpunar og velsældar.
Til að mæta þessum stóru áskor-
unum verðum við að verja hið verð-
mætaskapandi leiðarljós okkar, hina
klassísku frjálslyndisstefnu, með
áherslu sína á almenn réttindi, ein-
staklingsfrelsi, viðskiptafrelsi og al-
þjóðasamvinnu.
Harari bendir réttilega á það í bók
sinni að frjálslyndisstefnan hefur ver-
ið eins langlíf og þrautseig og raun
ber vitni meðal annars vegna þess að
hún hefur lagað sig að gagnrýni
þeirra hugmyndakerfa sem sótt hafa
að henni. Að mínu mati þurfum við
einnig í dag að vera reiðubúin til að
hlusta á þær raddir sem finnst vanta
skýrari svör við nýjum spurningum
samtímans. Markmið okkar á alls
ekki að vera að úthýsa þeim og út-
rýma heldur að hlusta á þau, reyna að
skilja þau og koma til móts við þau að
því marki sem við teljum mögulegt og
raunhæft, eins og hin klassíska frjáls-
lyndisstefna hefur áður gert.
Að búa okkur undir framtíðina á
þennan hátt er mikilvægasta verkefni
okkar í dag.
’Til að mæta þessumstóru áskorunumverðum við að verja hiðverðmætaskapandi leið-
arljós okkar, hina klass-
ísku frjálslyndisstefnu.
arionbanki.is Þægilegri bankaþjónusta Arion banka
Sérkjör og
afslættir hjá
300 fyrirtækjum
Þegar þú sækir Arion appið ertu sjálfkrafa komin(n) í Einka-
klúbbinn, einn öflugasta fríðindaklúbb landsins. Með Einka-
klúbbsappinu færðu afslátt, sértilboð og fríðindi hjá yfir 300
verslunum og þjónustuaðilum af öllu tagi um um allt land. Þú
finnur örugglega eitthvað sem nýtist þér.
Náðu í Einkaklúbbsappið og njóttu fríðindanna.
ÁhugamálAll Bílar Blóm &gjafavörur
Börn r Gist ing Hár &snyrting
Heilsa &
útlit
Heimil i Úr & skart Veitingar
Veldu þann flokk
sem þú vilt sjá
að kynjamismunurinn sem við sjáum
klárlega í öllum löndum í PISA í
lestri/lesskilningi hjá 15 ára ungling-
um byrji þegar börn hefja skóla-
göngu og kannski fyrr. En það má
líka bæta því við að vitum einnig að
drengir hafa minni áhuga á lestri en
stúlkur; þeir lesa minna en stúlkur,
fátækt hefur meiri áhrif á árangur
drengja og það að búa með einstæðu
foreldri hefur meiri áhrif á árangur
drengja í skóla.
Ástæður
Það eru að sjálfsögðu margar ástæð-
ur fyrir slíkum niðurstöðum. Sú
fyrsta getur tengst því að við notum
ekki réttar lestrarkennsluaðferðir
fyrir byrjendur í öllum grunnskólum
landsins. Líklegt er að það komi nið-
ur á lestrargetunni. Önnur ástæða
getur verið sú að við gefum okkur
ekki nægan tíma í þjálfun á lestri.
Það að lesa bækur og margar bækur
hefur mikið að segja fyrir lesskilning,
sem er ábótavant miðað við PISA-
niðurstöður. Þannig að hægt er að
segja að þjálfun er ónóg til að byggja
upp sterka snaga – djúpa þekkingu.
Þriðja ástæðan getur verið að við
notum ekki nógu góðar lestr-
arbækur, sem passa áhuga stelpna,
stráka og beggja kynja. Hérna eru
Norðmenn komnir mun lengra með
að þróa og nota flottar bækur fyrir
yngstu börnin. Bækurnar eru af ell-
efu mismunandi erfiðleikastigum og
20 bækur á hverju stigi. Fjórða
ástæðan getur tengst því að við not-
um bókasöfnin of lítið. Það má líka
spyrja hvort bókasöfnin séu nógu
góð í skólum landsins og bæj-
arfélögum. Fimmta ástæðan getur
tengst því að við náum ekki að
kveikja áhugann á lestri sem er gíf-
urlega krefjandi í sterkri samkeppni
við snjallsíma, snjallbretti og tölvu-
leiki. Það mætti líka nefna vöntun á
kenna börnum bókstafina og hljóð
þeirra, vinna með að lesa tveggja og
þriggja stafa orð og síðan fjögurra og
fimm stafa orð og stuttar setningar,
allt þangað til læsi er náð. Rann-
sóknir sýna að þegar barnið kann að
meðaltali 17-19 bókstafi nær það að
lesa.
2. Skapa áhuga. Gerist með því að
finna réttar bækur og viðfangsefni –
gefa réttar áskoranir miðað við
áhugasvið hvers og eins. Bókasöfnin í
skólum og bæjarfélögum eiga að
vera gullnáma fyrir börn og unglinga
til að finna bækur við hæfi. Það er ein
af höfuðástæðum fyrir velgengni
finnskra unglinga í PISA.
3. Meiri þjálfun. Það þarf að for-
gangsraða í skólanum og fá heimilin
og forráðamenn með. Í hverjum
mánuði ættu börn og unglingar að
telja hversu margar bækur þau lásu
og geta sagt hvaða þrjár voru
skemmtilegastar. Þetta er ráð frá
fremsta finnska sérfræðingnum í
lestri. Bæði foreldrar og for-
ráðamenn eiga að stuðla að nægri
þjálfun sinna barna. Finnum bækur
við hæfi sem vekja áhuga þeirra á
lestrinum. Við verðum að forgangs-
raða þannig að unnið sé markvisst og
skipulega með grunnfærni í læsi í
skólanum. Við ættum ekki að fók-
usera á leshraða heldur að fá börn til
að lesa mikið af bókum.
Þetta er virkilega brýnt þjóð-
félagslegt verkefni – eflum lestur
fyrir framtíð okkar barna.
’PISA sýnir fram ákynjamismun í öllum69 löndunum sem taka þátt,stúlkur eru almennt betri en
drengir í lestri. Ísland er eitt
af þeim löndum þar sem
munurinn er mestur.
fræðilegri umræðu um mikilvægi
lesturs og hvað við erum að fást við í
skólanum, aðferðafræði, og lestr-
arhraðamælingar Mennta-
málastofnunar. Öflug fræðileg um-
ræða er gífurlega mikilvæg í hverju
þjóðfélagi.
Möguleikar
Við verðum að nota viðurkenndar
rannsóknir sem útgangspunkt fyrir
það sem við gerum í skólanum. Hvað
er til ráða?:
1. Læsi. Felur í sér að nota rétta
aðferðafræði. Algjört grundvall-
aratriði er að grunnskólar landsins
noti sannreynda og viðurkennda
kennsluaðferð fyrir byrjendur – bók-
stafs-hljóð aðferð. Bókstafs-hljóð
kunnátta er einn af hornsteinunum
fyrir lestur, samanber fremstu vís-
indamenn í heiminum á sviði lestrar
Stanislas Dehaene, Joel Talcott og
Finn Egil Tønnesen. Sem sagt að