Morgunblaðið - 02.04.2019, Síða 27

Morgunblaðið - 02.04.2019, Síða 27
ENNEMM og eftir það hjá fram- leiðslufyrirtæki sem heitir Tjarnar- gatan og fór svo að vinna hjá Síman- um í janúar. Þar er ég að leysa af eina sem er í fæðingarorlofi, þannig að ég hætti þar í sumar og þá tekur bara óvissan við.“ Berglind hefur hlotið verðskuld- aða athygli fyrir innslög sín í sjón- varpsþættinum Vikan með Gísla Marteini. „Þetta byrjaði þannig að Gísli Marteinn kannaðist við mig og hafði séð það sem ég hafði verið að skrifa á Twitter, honum fannst það skemmtilegt og vildi fá mig í rit- stjórn þáttarins. Svo þróaðist það þannig að ég fór að gera þessi inn- slög, en ég byrjaði að vinna í þætt- inum 2015.“ Berglind hafði fyrir það aldrei verið í leiklist eða tekið þátt í gríni opinberlega og hefur aldrei ver- ið með uppistand. „Ég var bara alltaf í dansinum alveg frá því að ég var krakki.“ Berglind hefur verið viðloð- andi dansheiminn á Íslandi, sett upp sýningar og verið í verkum annarra höfunda. Um áhugamálin segir hún: „Þegar maður er að vinna með málefni líð- andi stundar þá er maður er alltaf að vinna með það, fylgist með fréttum og menningunni. Það er af nógu að taka til að grínast með. Ég hef verið að leysa af í Menningunni í Kastljós- inu og þar sameinast eiginlega öll áhugamálin í eitt. Ég er búin að hlakka svolítið til að verða þrítug, vinkonur mínar eru flestar árinu eldri en ég og segjast hafa orðið mun vitrari og öruggari með sig um leið og þær urðu þrítug- ar. Mér fannst þetta líka tilvalið tækifæri til að halda stórt partí sem ég gerði undir lok mars, hélt stórt sameiginlegt afmæli með vinkonu minni Ég er því búin að halda vel upp á afmælið og afmælisdagurinn sjálf- ur fer í meiri slökun með fjölskyldu og vinum.“ Fjölskylda Sonur Berglindar er Kári Hall- dórsson, f. 10. febrúar 2011, nemi í 2. bekk í Austurbæjarskóla. Faðir hans er Halldór Laxness Halldórsson, f. 1985. Hálfbróðir Berglindar er Gísli Helgason, f. 13. apríl 1974, bús. í Brighton, kvæntur Önnu Maríu Helgadóttur. Foreldrar Berglindar eru hjónin Pétur Grétarsson, f. 21. desember 1958, hljómlistarmaður, og Margrét Gísladóttir, fyrrverandi útibússtjóri, 10. ágúst 1956. Þau eru búsett í Reykjavík. Berglind Pétursdóttir Guðrún Sigríður Einarsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og Reykjavík Jón Hjörtur Jóhannsson sjómaður og verkamaður í Hafnarfirði Þuríður B. Jónsdóttir húsfreyja í Garðabæ Margrét Gísladóttir fyrrv. útibússtjóri í Reykjavík Gísli Hauksteinn Guðjónsson flugumferðarstjóri í Garðabæ Kristín María Gísladóttir húsfreyja í Reykjavík Guðjón Runólfsson bókbindari í Reykjavík Páll Grétarsson fjármálastjóri hjá Stjörnunni í Garðabæ Hjörtur Grétarsson framleiðandi í Rvík Elín Sigríður Grétarsdóttir hjúkrunarfræðingur í Rvík Skúli Pálsson lögmaður í Rvík Ragnheiður Skúladóttir framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins María G. Gísladóttir ballettdansari í Rvík Kristín Gísladóttir fimleikakona og sjúkraþjálfari í Garðabæ Halldóra Jóhanna Elísdóttir húsfreyja í Reykjavík Páll Skúlason ritstjóri Spegilsins Guðlaug Pálsdóttir húsfreyja í Garðabæ Grétar Hjartarson skipstjóri í Reykjavík og Mosfellsbæ Ásta Laufey Björnsdóttir húsfreyja í Reykjavík Hjörtur Hjartarson kaupmaður í Reykjavík Úr frændgarði Berglindar Pétursdóttur Pétur Grétarsson hljómlistarmaður í Reykjavík Dansarinn Berglind á Reykjavík Dance Festival árið 2011. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2019 Þór fæddist 2. apríl 1936 á Þórs-hamri í Sandvíkurhreppi,Árn. Foreldrar hans voru hjónin Vigfús Guðmundsson, f. 1903, d. 1990, bifreiðastjóri við Ölfusárbrú, á Selfossi, síðar sjómaður á Seltjarnarnesi, og Guðrún Jóns- dóttir, f. 1904, d. 1950, húsfreyja. Þór lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1955, nam hagfræði við Hochschule für Ökonomie og lauk Diplom Wirtschaftler 1961, með sérgrein í milliríkjaviðskiptum. Hann lauk prófi í uppeldis- og kennslufræðum frá Há- skóla Íslands 1967, námi í húsasmíði við iðnbraut Fjölbrautaskólans á Sel- fossi 1982 og sveinsprófi 1989. Hann lauk einnig prófi í svæðisleiðsögn frá Farskóla Suðurlands 1993. Við heimkomu frá Berlín vann Þór sem skrifstofustjóri hjá Sameining- arflokki alþýðu – Sósíalistaflokknum og sem starfsmaður verslunarsendi- nefndar Þýska alþýðulýðveldisins. Hann hóf kennslu við Héraðsskólann á Laugarvatni 1963 og kenndi við Menntaskólann á Laugarvatni 1964- 70, við Menntaskólann við Tjörnina, síðar Sund, 1970-83 og var konrektor skólans 1975-78. Hann var skóla- meistari Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi 1983-1994 og kennari til ársins 1998. Þór átti sæti í miðstjórn Alþýðu- bandalagsins 1970-80, sat á Alþingi sem varaþingmaður 1974, var borg- arfulltrúi í Reykjavík 1978-80 og for- maður umferðarnefndar. Hann átti þátt í stofnun Draugasetursins á Stokkseyri. Þór var aðalhöfundur Ár- bókar Ferðafélags Íslands, Í Árnes- þingi vestanverðu, 2003. Fyrri eiginkona Þórs var Helga María Novak rithöfundur frá Þýska- landi, f. 1935, d. 2013. Þau skildu 1968. Börn þeirra eru Ragnar Alex- ander, f. 1958 (kjörbarn), og Nína, f. 1962. Seinni eiginkona Þórs er Hildur Hákonardóttir, f. 28. apríl 1938, lista- kona. Börn hennar og stjúpbörn Þórs eru Kolbrún Þóra, f. 1956, og Hákon Már, f. 1958. Þór Vigfússon lést 5. maí 2013. Merkir Íslendingar Þór Vigfússon 95 ára Kristbjörg María Jónsdóttir 90 ára Gerður Þorkatla Jónasdóttir Ólafur Bergsveinsson 85 ára Erlingur Brynjólfsson Guðfinnur Magnússon Ingibjörg María Gunnarsdóttir Ólöf Birna Björnsdóttir Snorri Hermannsson 80 ára Davíð Pétursson Pálmi Dagur Jónsson 75 ára Edda Ragnarsdóttir Hlöðver Jóhannsson Ingigerður Gissurardóttir Ragnhildur Helgadóttir Sigríður Sigurðardóttir Sigurbjörg Bjarnadóttir 70 ára Árdís Benediktsdóttir Guðjón Þórarinsson Hallfríður Höskuldsdóttir Jón Einar Böðvarsson Sigríður Egilsdóttir 60 ára Ásrún Inga Kondrup Eggert Guðmundsson Elísabet Jónsdóttir Fanney Gunnarsdóttir Guðmundur H. Guðmundsson Guðrún Hanna Óskarsdóttir Halldór Þ. Matthíasson Kristín Hulda Halldórsdóttir Lárus Hjaltested Mardís Malla Andersen Margrét Gunnlaugsdóttir Ragnhildur G. Hjartardóttir Sigurjón Kristjánsson Þórir Dan Friðriksson 50 ára Birna Blöndal Björn Friðgeir Björnsson Dariusz Malinowski Hrund Apríl Guðmundsdóttir Margrét Hjálmarsdóttir Ratri Jaithon Sóley R. H. Hallgrímsdóttir 40 ára Alina Szczecinska Anna Helga Jónsdóttir Arnar Jón Lárusson Atli Þór Hergeirsson Guðlaugur Magnús Pétursson Guðrún Kristjánsdóttir Heiða Björg Pálmadóttir Helga Pétursdóttir Ingólfur Harri Hermannsson Jason Kevin Capps Kristbjörn Helgason Magnús Kári Jónsson Margrét Elín Arnarsdóttir Ragnar Már Alfredsson Snorri Snorrason Örn Friðhólm Sigurðsson 30 ára Arnór Smári Jónsson Berglind Pétursdóttir Daria Kowalewska Erlingur Sveinn Erlingsson Henríetta Fríða Árnadóttir Hjalti Einarsson Ingibjörn Halldórsson Katrína Mogensen Laila Helli Maria Kelloniemi Reynir Hauksson 40 ára Birna býr á Akur- eyri og er þroskaþjálfi og hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri Maki:Gunnar Björg- vinsson, f. 1969, við- skiptafræðingur. Börn: Hrönn, f. 1989, Harpa Mukta, f. 1998, Hrund Nilima, f. 2000, Jóhannes Fei, f. 2006. Foreldrar:Anna B. Jóhannesdóttir, f. 1949 og Björn Blöndal, f. 1946, d. 2016 Birna Blöndal 40 ára Magnús er Reyk- víkingur og skrifstofu- maður hjá Handknatt- leikssambandinu, hand- knattleiksdómari og þjálfari hjá Fjölni. Systkini: Gísli Þór, f. 1982, og Sigrún Erla, f. 1989. Foreldrar: Jón Magnús- son, f. 1952, verslunar- maður í Heklu, og Stein- unn Gísladóttir, f. 1950, kennari í Foldaskóla, bú- sett í Reykjavík. Magnús Kári Jónsson 40 ára Margrét fæddist í Stokkhólmi en ólst upp í Hafnarfirði og býr þar. Hún er flugmaður hjá Icelandair og fyrrverandi flugumferð- arstjóri. Maki: Tómas Beck, f. 1980, flugstjóri hjá Icelandair. Börn: Tristan Arnar Beck, f. 2002. og Katla Björg Beck, f. 2009. Foreldrar: Hákon Arnar Hákonarson, f. 1956, d. 1997, og Ingibjörg Jóna Gunnarsdóttir, f. 1958. Margrét Elín Arnarsdóttir STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.