Umbrot - 17.12.1976, Qupperneq 15

Umbrot - 17.12.1976, Qupperneq 15
Það er ekki skrítið þótt það þrífist ekki fiskbúðir á Skagairam. * Prestur í sveitaþorpi í Danmörku hafði háð langa og stranga baráttu gegn bjórkránni á staðnum. Baráttan var ójöfn og að lokum greip prestur til örþrifaráða í örvæntingu sinni. Hann setti upp skilti við kirkjudyrnar með eftirfarandi áletrun: „Áfengið er versti óvinur mannkynsins“. Lárus skósmiður sá skiltið og var á báðum átt- um þegar !hann fór næst á krána. Upp úr hádeginu kom hann reikull í spori út af kránni, fullur og með tvær bjórflöskur í vasanum. Hann sá prest- inn sem stóð álengdar: — Góðar fréttir séra minn. Tíu óvinir felldir og tveir teknir til fanga, hikk. * Kallaðu svo á hann í símann. „KETILSBÆR” Eftirfarandi bréf hefur borist til blaðsins frá Ó.S.: „Mér finnst ég hafi séð það í Umbroti að gefa þyrfti nýja íþróttahúsinu nafn. Ég er því alveg sammála, mér finnst það mikið skemmtilegra og tilhlýðilegra. Við höfum ekki gert mikið að því hér á Akranesi að minnast okkar kristnu landnámsmanna, Þormóðs og Ketils Bresasona, engir staðir eru hér við þá kenndir. En Þórleifur Bjaranason rithöfundur jók mjög á hróður þeirra með sín- um snjalla leikþætti „Ljós í holti“ á Þjóðhátíðarári 1974. Mér kom því í hug að kalla mætti íþróttahúsið nýja „Ketilsbæ“. Mér finnst það all veglegur minnisvarði land- námsmanninum okkar. (Lag: Nú er glatt í hverjum hól) Komdu nú í Ketilsbæ, komdu* að æfa í vetur. Komum öll í Ketilsbæ keppum, æfum betur. Það er svo gaman að koma í Ketilsbæ, koma þar að æfa og keppa í Ketilsbæ. Koma þar að æfa og keppa í Ketilsbæ. iBÚÐ TIL SÖLU Til sölu fullfrágengin 3ja herbergja íbúð við Sóleyjargötu Fast verð — Greiðsluskilmálar Óskum starfsmönnum og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Trésmiðja Guðmundar Bjarnasonar Merkigerði 18 — Sími 1523 — Akranesi 15

x

Umbrot

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Umbrot
https://timarit.is/publication/1333

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.