Umbrot - 15.12.1978, Side 15
Barnasagati;
P
Syngjandi
jólatré
Barnasagan Syngjandi jólatré úr bókinni Jól dýranna eftir Kathryn
Jackson. Út eru komnar nokkrar bækur eftir þennan höfund og nú síðast
bókin Myndskreyttar vísnasögur. tJtgefandi er bókaútgáfan Örn og
Örlygur.
Lítill hjartarkálfur kom brokkandi heimleiðis um snævi
drifinn skóginn. — Augu hans ljómuðu á þeirri dýrð, er
hann hafði séð. Honum var hlýtt og létt um hjartað eins
og ævinlega, þegar hann kom að hlið móður sinnar.
Jólaskór
Efni: karton, heftari, málning eða
litir.
Klippið út jólaskó eftir teikning-
unni, stækkið eftir þörfum. Klippið
upp í hliðina, sem merkt er a, b og
c. Heftið a og b saman, leggið siðan
c yfir og heftið. Heftið d og e
saman, og leggið f yfir.
Athugið að mála eða lita skóinn
áður en hann er heftaður saman.
Skreytið með glimmer og bómull.
Skórinn er siðan settur í gluggann,
þegar jólasveinarnir fara á stjá 11.
desember.
— Mamma, hrópaði hann. — Ég fór inn í borgina og
gægðist inn um glugga á húsi. Ég sá tré inni í stofunni —
glitrandi og ljómandi tré — með stjörnum á greinunum.
Og það var alþakið geislakúlum, sem vörpuðu ljóma um
alla stofuna.
Mamma hans kinkaði hægt kolli og varð líka björt í
augum.
— Þetta hefur verið jólatré, sagði hún alúðlega. — A
jólunum ber fólk falleg tré inn í stofu og skreytir þau með
ljósum, leikföngum og glitrandi smáhlutum.
— Jólatré? hvíslaði litli hjartarkálfurinn. — Mig
langar til að hafa jólatré líka, mamma.
Hindin krafsaði hægt og hugsandi í snjóinn. En hvað
hana langaði mikið til að gleðja barnið sitt og gefa því
jólatré. Eftir nokkra umhugsun kom henni ráð í hug.
— Komdu með mér, sagði hún. Hún fór með kálfinn
sinn lengra inn í skóginn og sýndi honum lítið og
fagurgrænt tré, sem stóð eitt sér í litlu rjóðri.
— Líttu á. Við skulum setja berjaklasa, gómsæt aldin
og ljúffeng lauf á greinarnar.
Þau hófust þegar handa, og litli kálfurinn hjálpaði
móður sinni eftir megni. En þótt tréð væri þakið þessu
sælgæti, ljómaði það ekki eins og tréð í borginni.
— Höfum ekki áhyggjur af því, sagði hindin. Sjáum
hvað setur til morguns. Þá komum við hingað aftur og
lítum á tréð.
Eftir litla stund var hjartarkálfurinn kominn heim í
laufskýlið sitt og lagstur þar við hlið móður sinnar. Brátt
sofnaði harin vært í kyrrum, snæþöktum skóginum. En
þegar birti að morgni og sólin kom upp, vakti mamma
hann.
Þau læddust síðan hljóðum skrefum um skóginn að litla
rjóðrinu, þar sem jólatréð þeirra stóð, og gægðust milli
greina. Litli hjartarkálfurinn horfði stórum augum opin-
mynntur á það, sem við honum blasti. Þarna stóð jólatréð
hans með snjókerti og ísnálar á hverri grein, glitrandi og
ljómandi í sólskininu, og sló jafnvel rauðum, bláum og
grænum bjarma á skrautið. Og á greinunum sátu litfagrir
fuglar, sem gæddu sér á jólasælgætinu á trénu og sungu af
hjartans list.
— Gleðileg jól — gleðileg jól, sungu þeir hástöfum á
þessum bjarta jólamorgni. Þeir þögnuðu aóeins sem
snöggvast, meðan þeir stungu upp í sig beri.
Hjartarkálfurinn rak snoppuna í háls móður sinnar og
hvíslaði:
— En hvað þetta er fallegt jólatré. Það er miklu
fallegra en tréð í borginni.
Fuglarnir sungu af kæti, og hindin horfði á í sælli
móðurgleði. Brátt söfnuðust skógardýrin að til þess að
horfa á jólatréð og hlusta á jólasálma fuglanna.
Fró Barnaskóla Akraness
Barnaskóli Akraness var settur í.
sept. Kennsla hófst samkvæmt
stundaskrá þann 13. sept. Skólinn
starfar nú í eo bekkjardeildum og
eru nemendur 746. Kennarar eru
35 auk skólastjóra. Skólaritari er
Ingibjörg F. Hjartar.
Barnaskóli Akraness starfar nú á
þremur stöðum í bænum, í skóla-
húsinu við Vesturgötu, í skóla-
húsinu við Skólabraut og í kjallara
íþróttahússins. Húsverðir skólans
eru þeir Jonas Helgason og Bjarni
Bjarnason.
Skólastarfið:
Sem fyrr segir hófst kennsla
ekki fyrr en 13. sept. vegna þess að
skólahúsnæðið var ekki tilbúið til
notkunar. Bar þar að sama brunni
og oft áður að vinna við viðhald
húsnæðisins hafði dregfist úr
hömlu. Þennan tíma notuðu
kennarar til undirbúnings og
skipulagningar á skólastarfinu.
Nú í haust hófst kennsla í 7. bekk
við skólann áður voru þar 1. til 6.
bekkur. Húsnæðisvandi skólans
var mikill fyrir og ekki minnkaði
hann við það að heill árgangur eða
96 börn bættust vfð. Sú lausn var
valin að afhenda barnaskólanum
húsnæði það við Skólabraut er áður
hýsti iðnskóla. Kennsla hófst þar
síðar en í öðrum deildum skólans
vegna þess að ekki var hugsað fyrir
því í tima að börnin þyrftu borð og
stóla í kennslustofurnar.
Daglegur starfstími skólans er
frá kl. 8.00 til 17.00. Nokkrar
breytingar urðu á stundaskrá frá
því sem áður var. Frímínútur
árdegis voru styttar í 5 mín. úr 10
mín. og matartími lengdur úr 20
mín. í 30 mín. Boreytingar þessar
eru gerðar vegna kjarasamninga. 1
haust fékkst leyfi fræðslustjóra til
þess að ráða skólaritara i'fullt starf.
Ekki fékkst samþykki bæjar-
yfirvalda til þess að ráða gangavörð
og gegnir furðu hve lengi er hægt
að þæfa mál um þetta við skóla sem
telur 746 nemendur.
Vísir að deild fyrir nemendur
sem eiga í sérstökum erfiðleikum
við nám er nú við skólann, kennari
er Svandís Pétursdóttir. Almenn
stuðingskennsla við nemendur
væri mun meiri ef ekki kæmi til
skortur á kennurum.
Kennsla fer fram með líkum
hætti og hin síðari ár. Til nýjunga
má þó telja að nemendum 3.
bekkjar er boðið upp á námskeið í
leirmunagerð. Leiðbeinandi er
Margrét Jonsdóttir.
Félagsstörf:
I því sambandi má geta þess að í
6. og 7. bekk eru haldin bekkjar-
kvöld einu sinni í mánuði og undir-
búa nemendur ásamt kennurum
skemmtiatriði o.fl. sem fram fer á
þessum kvöldum. Auk þess fá
nemendur 7. bekkjar aðgang að
dansleikjum sem 8. og 9. bekkur
Grunnskólans halda í húsi Fjöl-
brautarskólans. Þá er starfandi kór
við skólann og æfa nemendur af
kappi m.a. vegna fyrirhugaðrar
Finnlandsferðar.
Heilsugæsla:
Skólahjúkrunarkona er Jóna
Guðmundsdóttir. Hún er í
skólanum alla skóladaga og er það
ómetanlegt fyrir skólann. Skóla-
læknar eru þeir Reynir Þorsteins-
son og Guðbrandur Kjartansson.
Þeir eru til viðtals í skólanum á
miðvikudögum kl. 9 árdegis. Skóla-
tannlæknir er Ingjaldur
Bogason. Varðandi heilsugæslu
við Barnaskóla Akraness er þess
Ijúft að geta að fyrir fáum árum gaf
Kiwanisklúbburinn Þyrill
skólanum tæki til augnprófunar.
Þetta tæki hefur margsannað gildi
sitt. Nú í haust gáfu Kiwanismenn
svo skólanum tæki til heyr-
prófunar. Með þessum gjöfum og
reyndar fleirum sýna Kiwanis-
menn sérstakan hlýhug og skilning
á þörfum skólabarna. Vill skólinn
fyrir hönd barna á Akranesi þakka
þessar höfðinglegu gjafir.
Annað:
Breytingar urðu nokkrar á
starfsliði skólans frá síðasta ári.
Þorgils Stefansson lét af sörfum
sem yfirkennari við skólann eftir
langt og gifturíkt starf í þjónustu
æskunnar á Akranesi. Varð þar
skarð fyrir skildi. Vill skólinn nota
þetta tækifæri og þakka af alhug
störf hans við stofnunina.
Nýir kennarar við skólann eru
Kristin Gísladóttir, Jóhanna
Stefansdóttir, Ragnheiður Þor-
grímsdóttir, Guðjón Kristjansson,
Guðni Björgúlfsson og Lars
Anderssen. Yfirkennari var ráðinn
Rögnvaldur Einarsson. Njáll
Guðmundsson skólastjóri veiktist i
byrjun sept. og sótti síðan um
veikindafrí til áramóta og var
Rögnvaldi Einarssyni yfirkennara
falin skólastjórn á meðan og Jón
Karl Einarsson settur yfirkennari
sama tíma.
Söluverðlaun
UMBROTS
Söluverðlaun í nóv.
hlutu Guðjón Harðarson
Garðabraut 9, og Re-
bekka Sigurðardóttir,
Stekkjarholti 4.
15