Fréttablaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 44
ÞAÐ SEM ÉG ER AÐ
LEITA EFTIR Í ÞESSUM
VERKUM OG ÖÐRUM ER EIN-
MITT ÞESSI INNRI RÓ.Rið er heiti á sýningu Finnboga Péturssonar í Listasafni Reykjavík-ur. Þar eru hljóðbylgjur leiddar í risastóra laug og gárur vatnsins end-
urkastast á veggi salarins. „Þetta er
verk í sama anda sem ég hef verið að
vinna í nokkuð mörg ár. Ég byrjaði
að vinna svona verk 1989 og sýndi
fyrsta verkið 1991 í Nýlistasafninu
við Vatnsstíg. Í þessum verkum
hef ég verið að reyna að gera hljóð
sýnileg fyrir áhorfandann,“ segir
Finnbogi.
Dáleiðandi ró
Í lauginni eru rúm átta tonn af vatni
og Finnbogi setti einnig í hana einn
lítra af teiknibleki sem hann segir
skapa hreinni speglun. „Í þessu
verki nota ég 3,5 Hz sínustóna. Þeir
teikna þrjá hringi á vatnsyfirborðið
þar sem þeir blandast saman og til
verður mynstur sem sést á veggj-
unum og er síbreytilegt og aldrei
eins. Allt er þetta lýst með tólf ljós-
kösturum.“
Blaðamaður hefur orð á því að
ekki sé annað hægt en að fyllast
nánast dáleiðandi ró við að virða
fyrir sér verkið. „Það sem ég er
að leita eftir í þessum verkum og
öðrum er einmitt þessi innri ró. Ég
er líka að leita eftir því að fólk setjist
niður, gefi sér tíma með verkinu og
hugleiði með sjálfu sér,“ segir lista-
maðurinn.
Musteri og hús
Finnbogi á einnig verkið Yfir og út
í Hallgrímskirkju og Ásmundarsal.
Hann setti hljóðnema í Hallgríms-
kirkju og þaðan eru send hljóð
yfir í Ásmundarsal. „Ég ætlaði að
vinna með anddyri Hallgríms-
kirkju en sýningin vatt upp á sig
því Ásmundarsalur varð hluti af
henni,“ segir Finnbogi. „Ég ákvað
að gera verk af því tagi sem ég hef
oft sýnt í gegnum árin og byggist á
því að færa rými á milli staða. Stef-
án sonur minn smíðaði fyrir mig
stóran stálhring sem er í sex metra
hæð inni í kirkjunni. Þar eru átta
hljóðnemar sem ég beini að höfuð-
áttunum. Svo fer þetta í gegnum
búnað sem flytur þessar átta rásir
beint yfir í Ásmundarsal og þar er ég
með átta hátalara sem er raðað upp
í sambærilegan hring, þannig að til
verður lifandi færsla á rými. Kirkja
er staður þar sem fólk vandar sig og
reynir að hafa eins mikla þögn og
mögulegt er og öll lítil hljóð sem
myndast þar inni berast út í rýmið
og magnast.
Í Ásmundarsal og kirkjunni er
ég með í anddyrinu álplötur fyrir
húsaklæðningar. Í Ásmundarsal
er grá plata en í Hallgrímskirkju
eru plöturnar rauð, hvít, græn
og fjólublá. Þessir litir eru sym-
bólískir. Grunnhugmyndin að
verkinu í kirkjunni snýst um ein-
staklinginn, manninn og trúna á
sjálfan sig og náungann. Þarna er
ég líka að vinna með hugmyndina
um musteri og hús. Á Íslandi er svo
mikilvægt að eignast sitt eigið hús.
Fólk vill búa sér sína eigin skel sem
er í rauninni framlenging á þeirra
eigin skel. Svo koma þarna líka við
sögu hringurinn, ferningurinn,
andinn og jörðin. Allt tengist þetta
saman því geómetrían er gegnum-
gangandi í trúnni. Ég vil samt ekki
gefa of mikið upp um mínar eigin
pælingar. Ég vil halda einhverju
eftir fyrir áhorfandann því ég ræð
mjög litlu um upplifun hans.“
Hljóð
verða
sýnileg
Finnbogi Pétursson
sýnir í Listasafni
Íslands, Hallgríms-
kirkju og Ásmund-
arsal. Hljóðbylgjur
leiddar í risastóra
laug og rými fært á
milli staða.
Finnbogi við hið gríðarlega áhrifamikla verk sitt Rið sem býður upp á að áhorfandinn staldri við og njóti upplifunarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Bresku skáldin Lavinia Green-law og Simon Armitage, lár-viðarskáld Bretlands, og
írska skáldið Paul Muldoon eru
væntanleg til Íslands til að taka þátt
í tveimur viðburðum í Bókmennta-
borginni Reykjavík.
Armitage er þekktast þessara
skálda og hefur hlotið fjölmörg
verðlaun sem veitt eru fyrir skáld-
skap í hinum enskumælandi heimi.
21. júní klukkan 16 verður mál-
þing í Veröld þar sem fjallað verður
um tengsl Bretlandseyja og Íslands
og um leið ferðir Bretlandseyja-
skálda norður á bóginn fyrr og
síðar.
Málþingið verður þríþætt, Sveinn
Yngvi Egilsson ræðir við hið nýja
lárviðarskáld Englands, Simon
Armitage, um ljóð þess síðarnefnda
en einnig um Íslandstengsl Audens
og MacNeice og skáldskap sem
af þeim tengslum spratt; Kristín
Svava Tómasdóttir ræðir við Lavinu
Greenlaw um ljóðlist hennar og um
tengsl Williams Morris við Ísland,
og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
ræðir við Paul Muldoon um norð-
ursýn hans og landa hans, Nóbels-
skáldsins Seamus Heaney.
Laugardaginn 22. júní klukkan
15 verður dagskrá í Norræna hús-
inu þar sem skáldin þrjú og þýð-
endur þeirra f lytja ljóð og svara
spurningum. Sigurbjörg Þrastar-
dóttir er þýðandi Simons Armi-
tage; Magnús Sigurðsson þýddi ljóð
Laviniu Greenlaw og Sjón íslenskaði
nokkur ný og áður óbirt ljóð eftir
Paul Muldoon.
Þá verður fagnað útgáfu ljóða-
kveranna Letters to Iceland og eru
þetta þrjú tvímála ljóðakver með
úrvali ljóða eftir skáldin ásamt
íslenskum þýðingum. Ritstjórar
eru Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
og Ástráður Eysteinsson og bókaút-
gáfan Dimma gefur ljóðabækurnar
út. – kb
Lárviðarskáldið
Armitage og þekkt
samtímaljóðskáld
Breta til Íslands
Simon Armitage, nýtt lárviðarskáld
Englands, er á leið til landsins.
MYND/PAUL WOLFGANG WEBSTER
Hin breska Lavinia Greenlaw.
2 0 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
0
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
4
0
-A
4
1
8
2
3
4
0
-A
2
D
C
2
3
4
0
-A
1
A
0
2
3
4
0
-A
0
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K