Fréttablaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 21
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
New York – Við upphaf þess-arar aldar virtist ekkert geta staðið í vegi fyrir áframhald-
andi framsókn lýðræðis um heim-
inn. Við höfðum séð lýðræði rísa í
fjórum bylgjum. Fyrsta bylgjan reis
með sjálfstæðisyfirlýsingu Banda-
ríkjanna 1776, fyrsta fullburða lýð-
ræðisríkisins. Önnur bylgjan reis
um miðja 19. öld þegar Evrópuþjóðir
risu upp gegn kóngum og keisurum
og Íslendingar héldu þjóðfund 1851.
Þriðja bylgjan reis þegar lýðræðis-
ríkin ásamt Rússum sigruðu fasista
og nasista í síðari heimsstyrjöldinni.
Fjórða bylgjan reis 1974 þegar ein-
ræðisstjórn Portúgals var steypt af
stóli og grísku herforingjastjórninni
skömmu síðar. Þessi fjórða bylgja
barst því næst til Spánar og áfram
1989-1991 til kommúnistaríkjanna í
Mið- og Austur-Evrópu og Rússlandi
og einnig til Suður-Ameríku, Afríku
og Asíu.
Lýðræðisríki heimsins voru innan
við tíu í síðari heimsstyrjöldinni og
eru nú tæplega 100. Mjög hefur þó
hægt á fjölgun í hópi lýðræðisríkja
frá 2006 þar eð lýðræði á nú undir
högg að sækja æ víðar um heiminn,
einnig þar sem sízt skyldi í Banda-
ríkjunum og Evrópu, þ.m.t. Ísland.
Um þessa háskalegu þróun birta
erlendir stjórnmálafræðingar nú bók
eftir bók, nú síðast Larry Diamond
prófessor í Stanford-háskóla í Kali-
forníu sem var að senda frá sér bók-
ina Illviðri(e. Ill Winds).
Hagsmunasamtök
stjórnmálamanna
Vanda lýðræðisins nú virðist mega
rekja til tveggja meginróta.
Stjórnmálaf lokkar hafa ekki
staðið í stykkinu. Þeir hafa í auknum
mæli hegðað sér eins og sjálfhverf
hagsmunasamtök stjórnmálamanna
og með því móti fyrirgert trausti
fólksins og því ekki megnað að
aftra óvinum lýðræðisins. Hvernig
er hægt að taka þýzka Jafnaðar-
flokkinn alvarlega þegar Gerhard
Schröder, kanslari Þýzkalands 1998-
2005, gerðist að því loknu auðmaður
í boði rússneskra orkufyrirtækja og
þá um leið Pútíns forseta? Hvernig er
hægt að taka brezka Íhaldsflokkinn
alvarlega þegar hann er orðinn upp-
vís að því að etja Bretum út úr ESB
af innanflokksástæðum án nokkurs
sýnilegs undirbúnings eða umhugs-
unar? Þannig getum við farið land úr
landi.
Hin meginrót vandans er að
markaðsbúskapur án nauðsynlegs
mótvægis, aðhalds og eftirlits mylur
undir græðgi og siðblindu í við-
skiptum og stjórnmálum. Stórþjófar
vaða nú víða uppi í stjórnmálum þar
eð fyrirstaðan er veik. Einn þessara
manna er nú forseti Bandaríkjanna,
annar er forseti Rússlands. Þeir eru
fleiri.
Illa fengið fé
Þjófráðar heimsins (e. kleptocrats)
fara sínu fram í krafti þess að þeim
er hlíft. Bandaríska fjármálaráðu-
neytið telur að árlegt innstreymi illa
fengins fjár til Bandaríkjanna nemi
2% af landsframleiðslu. Árlegt inn-
streymi illa fengins fjár til Bretlands
er talið nema 5% af landsframleiðslu.
Helmingur auðæfa Rússa er geymd-
ur í skattaskjólum líkt og þriðjungur
auðæfa Afríkubúa.
Ríkisstjórnum Bandaríkjanna og
Bretlands væri í lófa lagið að leggjast
á sveif með þeim sem eru að reyna að
afhjúpa skattaskjólin og loka þeim.
Þeim væri einnig í lófa lagið að setja
Eignarréttur nær ekki til þýfis
nafnlausum skúffufyrirtækjum
stólinn fyrir dyrnar og taka fyrir
nafnlaus fasteignakaup eins og t.d.
þegar maður nokkur keypti sér íbúð
í Washington 2006 og greiddi fyrir
hana 15 milljónir Bandaríkjadala
í reiðufé. Ellefu árum síðar greindi
Washington Post frá því að kaupand-
inn var rússneski auðkýfingurinn
og Íslandsvinurinn Oleg Deripaska.
Donald Trump hefur selt margar
íbúðir í húsum sínum með líki lagi.
Eftirlit með fjárböðun, öðru nafni
peningaþvætti, í Bandaríkjunum er
svo veikburða að hættan á að upp
komist um slík brot er talin vera
innan við 5%. Það mega Bretar eiga
að þeir settu nýlega lög sem heimila
rannsókn á grunsamlegum fast-
eignakaupum útlendinga ef þau
virðast ekki samrýmast fjárráðum
kaupandans. Lögin heimila eigna-
upptöku ef féð reynist illa fengið eða
kaupandinn getur ekki gert grein
fyrir uppruna fjárins. Eignarréttur
nær ekki til þýfis.
Afvopnum þjófráðana
Fram hefur komið tillaga um að
stofna þjóðarsjóði handa íbúum
Rússlands og annarra þjófræðisríkja,
sjóði sem upptekið þýfi væri lagt í og
geymt þar til þessi ríki verða að rétt-
arríkjum og yrði fénu þá skilað þang-
að. Þá þarf að veita uppljóstrurum
trygga vernd og styðja við bakið á
rannsóknarblaðamönnum og stofn-
unum sem fylgjast með spillingu um
heiminn eins og t.d. samsteypunni
sem afhjúpaði Panama-skjölin 2016.
Þar tóku höndum saman 220 blaða-
menn og yfir 100 fjölmiðlar frá 80
löndum og lyftu grettistaki.
Fjárböðun er eitt helzta vopn
þjófráðanna sem ógna nú lýðræð-
inu í æ f leiri löndum, láta greipar
sópa um auðlindir almennings og
ögra mannréttindum. Þeir geyma
illa fengið fé að mestu í Ameríku og
Evrópu. Stjórnvöldum þar ber að
afvopna þjófráðana með því að girða
fyrir fjárböðun. Annars er hætt við
að áfram muni fjara undan lýðræði.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 2 0 . J Ú N Í 2 0 1 9
2
0
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
4
0
-D
0
8
8
2
3
4
0
-C
F
4
C
2
3
4
0
-C
E
1
0
2
3
4
0
-C
C
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K