Fréttablaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 26
Jafnvel svörtustu
sauðirnir eru
farnir að leggja meira
upp úr því að markaðs-
setja sig sem siðferðis-
lega þenkjandi og
umhverfisvæna.
Ásta Eir
Árnadóttir
astaeir@frettabladid.is
Eydís, sem er 25 ára gömul og nýútskrifuð með BA-gráðu í heimspeki og hagfræði
segist ekki pæla of mikið í hverju
hún klæðist á degi hverjum. „Ég
hef byggt upp góðan grunn af
fötum sem ég fíla og passa vel á
mig, þannig að dagsdaglega get ég
gripið nánast hvað sem er og látið
það ganga vel upp.“
Einfaldleikinn er oftar en ekki í
fyrirrúmi hjá henni – gallabuxur,
peysa og látlausir skartgripir.
„Stundum finnst mér samt gaman
að klæðast einhverju sem krefst
meira af mér, og reyna að finna
upp á nýjum samsetningum eða
frumlegri múnderingum. Þann-
ig hef ég pælt mikið í mínum
persónulega stíl og keypt flíkur í
samræmi við það í gegnum tíðina,
en hversu mikið ég pæli í því sem
ég klæðist á hverjum degi veltur á
hversu mikið ég nenni því og þeim
tíma sem mér gefst á morgnana,“
segir Eydís.
Tíska sem tjáningartæki
Þegar hún er spurð út í hugtakið
„tíska“ segist Eydís nálgast hug-
takið á tvo vegu. „Annars vegar
höfum við það sem „er í tísku“, þar
sem tískuhugtakið nær til þeirrar
stemmingar sem er í samfélaginu
hverju sinni og er síbreytilegt.
Hins vegar er það svo tjáningar-
tæki einstaklingsins, þar sem
hverjum og einum gefst tækifæri
til að beita sínu tískuviti til þess
að gefa frá sér skilaboð og endur-
spegla hvaða manneskja búi á bak
við klæðin.“ Hún segir að fólk í dag
taki tólinu sem tískan er misalvar-
lega. „En það er ótrúlegt hvað það
getur verið gefandi að leyfa sér að
nálgast fötin sín á skapandi hátt.“
Ekki bara markaðssetning
Mikil vitundarvakning hefur átt
sér stað í tískuheiminum varðandi
umhverfismál að undanförnu og
hefur Eydís tekið eftir miklum
breytingum hjá stórum tísku-
fyrirtækjum. „Jafnvel svörtustu
sauðirnir eru farnir að leggja meira
upp úr því að markaðssetja sig
sem siðferðislega þenkjandi og
umhverfisvæna.
Manni þykir þó vænna um hin
fyrirtækin, sem eru að spretta
upp með umhverfishugsjónina í
fararbroddi, en viðbrögð markaðs-
deilda stórfyrirtækjanna sem
sjá einungis gróðatækifæri í þess
konar markaðssetningu. Svo ekki
Þurfum ekki svona mikið
Ljóðskáldið Eydís Blöndal telur mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir hvernig iðnaður tískuheimur-
inn er. Hún er viss um að allir geti gert aðeins betur til að passa upp á plánetuna okkar.
Helsta tískuráð Eydísar er að láta hvorki einn né neinn hafa áhrif á það hverju þú klæðist. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
sé minnst á hversu hræðilega mót-
sagnakennt það er – að stærstu
aðilarnir í einum af mest meng-
andi iðnaði heims markaðssetji sig
sem umhverfisvæna, til þess eins
að selja meira og þar með menga
meira,“ segir Eydís.
Veganismi breytti viðhorfi
Eydís hefur tileinkað sér þann lífs-
stíl að vera vegan. Viðhorf hennar
til neyslu á fötum hefur breyst á
síðustu misserum. „Ég var komin
með nóg af þessu sjálfmiðaða við-
horfi; að allt í heiminum sé hér til
þess eins að þjónusta okkur, ríka
fólkið. Sama hvort það eru dýrin,
fátækt fólk, eða náttúruauðlindir.
Dýrin eru bara hérna fyrir okkur
til að éta eða klappa, fátæka fólkið
vinnur þau störf sem við viljum
ekki sinna og við borgum því lítið
fyrir, ef eitthvað, og náttúran á að
skaffa okkur allt sem við þurfum
frá henni.“ Einn daginn fékk Eydís
nóg af þessu viðhorfi, og þá eigin-
lega af nauðsyn. „Ef við viljum
halda áfram að lifa á þessari plán-
etu þá þurfum við að taka mörg
skref til baka frá þessari brjálæðis-
legu, úrsérgengnu neysluhyggju.
Það er það sem ég er að reyna.“
Eydís telur það vera mikilvægt
að vera hreinskilin, bæði við aðra
og þá aðallega sjálfa sig. Hún gerir
sér grein fyrir því að hún er langt
í frá fullkomin í þessum efnum en
hún er að leggja sitt af mörkum.
„Við erum flest breysk, en
reynum eftir fremsta megni að
fela breyskleika okkar. Þess vegna,
mögulega, þora færri að taka
skrefið í átt að því að vera vegan,
eða að hætta að kaupa „fast-fash-
ion“ föt, eða hvað sem það nú er,
því þau vita að þeim muni ekki
takast það fullkomlega í fyrstu
tilraun og hverfa þess vegna alveg
frá því. Ég tel það vera gagnlegra að
vera 95% og leitast innilega við að
verða 100%, í staðinn fyrir að vilja
ekki einu sinni reyna því að það
vanti 5% upp á.“
BERNHARÐ LAXDAL
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
skoðið laxdal.is
10%-
70%
TIL 26. JÚNí
t
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
FRAMLENGJUM
SUMARTILBOÐUM
AF ÖLLUM VÖRUM
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
0
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
0
-B
C
C
8
2
3
4
0
-B
B
8
C
2
3
4
0
-B
A
5
0
2
3
4
0
-B
9
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K