Fréttablaðið - 20.06.2019, Side 26

Fréttablaðið - 20.06.2019, Side 26
Jafnvel svörtustu sauðirnir eru farnir að leggja meira upp úr því að markaðs- setja sig sem siðferðis- lega þenkjandi og umhverfisvæna. Ásta Eir Árnadóttir astaeir@frettabladid.is Eydís, sem er 25 ára gömul og nýútskrifuð með BA-gráðu í heimspeki og hagfræði segist ekki pæla of mikið í hverju hún klæðist á degi hverjum. „Ég hef byggt upp góðan grunn af fötum sem ég fíla og passa vel á mig, þannig að dagsdaglega get ég gripið nánast hvað sem er og látið það ganga vel upp.“ Einfaldleikinn er oftar en ekki í fyrirrúmi hjá henni – gallabuxur, peysa og látlausir skartgripir. „Stundum finnst mér samt gaman að klæðast einhverju sem krefst meira af mér, og reyna að finna upp á nýjum samsetningum eða frumlegri múnderingum. Þann- ig hef ég pælt mikið í mínum persónulega stíl og keypt flíkur í samræmi við það í gegnum tíðina, en hversu mikið ég pæli í því sem ég klæðist á hverjum degi veltur á hversu mikið ég nenni því og þeim tíma sem mér gefst á morgnana,“ segir Eydís. Tíska sem tjáningartæki Þegar hún er spurð út í hugtakið „tíska“ segist Eydís nálgast hug- takið á tvo vegu. „Annars vegar höfum við það sem „er í tísku“, þar sem tískuhugtakið nær til þeirrar stemmingar sem er í samfélaginu hverju sinni og er síbreytilegt. Hins vegar er það svo tjáningar- tæki einstaklingsins, þar sem hverjum og einum gefst tækifæri til að beita sínu tískuviti til þess að gefa frá sér skilaboð og endur- spegla hvaða manneskja búi á bak við klæðin.“ Hún segir að fólk í dag taki tólinu sem tískan er misalvar- lega. „En það er ótrúlegt hvað það getur verið gefandi að leyfa sér að nálgast fötin sín á skapandi hátt.“ Ekki bara markaðssetning Mikil vitundarvakning hefur átt sér stað í tískuheiminum varðandi umhverfismál að undanförnu og hefur Eydís tekið eftir miklum breytingum hjá stórum tísku- fyrirtækjum. „Jafnvel svörtustu sauðirnir eru farnir að leggja meira upp úr því að markaðssetja sig sem siðferðislega þenkjandi og umhverfisvæna. Manni þykir þó vænna um hin fyrirtækin, sem eru að spretta upp með umhverfishugsjónina í fararbroddi, en viðbrögð markaðs- deilda stórfyrirtækjanna sem sjá einungis gróðatækifæri í þess konar markaðssetningu. Svo ekki Þurfum ekki svona mikið Ljóðskáldið Eydís Blöndal telur mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir hvernig iðnaður tískuheimur- inn er. Hún er viss um að allir geti gert aðeins betur til að passa upp á plánetuna okkar. Helsta tískuráð Eydísar er að láta hvorki einn né neinn hafa áhrif á það hverju þú klæðist. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN sé minnst á hversu hræðilega mót- sagnakennt það er – að stærstu aðilarnir í einum af mest meng- andi iðnaði heims markaðssetji sig sem umhverfisvæna, til þess eins að selja meira og þar með menga meira,“ segir Eydís. Veganismi breytti viðhorfi Eydís hefur tileinkað sér þann lífs- stíl að vera vegan. Viðhorf hennar til neyslu á fötum hefur breyst á síðustu misserum. „Ég var komin með nóg af þessu sjálfmiðaða við- horfi; að allt í heiminum sé hér til þess eins að þjónusta okkur, ríka fólkið. Sama hvort það eru dýrin, fátækt fólk, eða náttúruauðlindir. Dýrin eru bara hérna fyrir okkur til að éta eða klappa, fátæka fólkið vinnur þau störf sem við viljum ekki sinna og við borgum því lítið fyrir, ef eitthvað, og náttúran á að skaffa okkur allt sem við þurfum frá henni.“ Einn daginn fékk Eydís nóg af þessu viðhorfi, og þá eigin- lega af nauðsyn. „Ef við viljum halda áfram að lifa á þessari plán- etu þá þurfum við að taka mörg skref til baka frá þessari brjálæðis- legu, úrsérgengnu neysluhyggju. Það er það sem ég er að reyna.“ Eydís telur það vera mikilvægt að vera hreinskilin, bæði við aðra og þá aðallega sjálfa sig. Hún gerir sér grein fyrir því að hún er langt í frá fullkomin í þessum efnum en hún er að leggja sitt af mörkum. „Við erum flest breysk, en reynum eftir fremsta megni að fela breyskleika okkar. Þess vegna, mögulega, þora færri að taka skrefið í átt að því að vera vegan, eða að hætta að kaupa „fast-fash- ion“ föt, eða hvað sem það nú er, því þau vita að þeim muni ekki takast það fullkomlega í fyrstu tilraun og hverfa þess vegna alveg frá því. Ég tel það vera gagnlegra að vera 95% og leitast innilega við að verða 100%, í staðinn fyrir að vilja ekki einu sinni reyna því að það vanti 5% upp á.“ BERNHARÐ LAXDAL Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is skoðið laxdal.is 10%- 70% TIL 26. JÚNí t S Í G I L D K Á P U B Ú Ð FRAMLENGJUM SUMARTILBOÐUM AF ÖLLUM VÖRUM 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 0 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 4 0 -B C C 8 2 3 4 0 -B B 8 C 2 3 4 0 -B A 5 0 2 3 4 0 -B 9 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.