Fréttablaðið - 20.06.2019, Blaðsíða 18
Á Snæfellsnesi er gnægð náttúruperlna sem sumar eru heimsþekktar eins og Snæfellsjökull og Kirkjufell. En þarna er líka urmull af stöðum sem eru lítt þekktir og gefa hinum frægari lítið eftir. Einn þeirra er Furudalur upp af
Staðarsveit. Þótt nafnið gefi til kynna að þarna sé
skógur þá er ekki eitt einasta tré í Furudal, hvað þá
fura. Í staðinn umlykja tröllvaxnir tindar dalinn eins
og skeifa, og eru Hólstindur (930 m), Tröllatindar (929
m) og Elliðatindar (824 m) mest áberandi.
Eftir dalnum rennur síðan bergvatnsá, Stóra-Fura,
en í henni er fjöldi fossa, hver öðrum fallegri. Þarna
koma næstum engir sem kemur á óvart því þarna er
boðið upp á sannkallaða fossaveislu með grónum
árbökkum og snarbröttum klettahlíðum. Það er auð-
velt að skoða fossana í Furudal á hálfum degi og er
auðveldast að leggja bílum við bæinn Ölkeldu eftir að
ábúendur hafa gefið til þess leyfi sitt. Þaðan er haldið
í norðaustur upp skriður uns komið er að Stóru-Furu
vestan megin. Henni er síðan fylgt upp dalinn uns
komið er upp í skarð milli Tröllatinda og Elliðatinds.
Sést þá yfir Breiðafjörð, Berserkjahraun og Stykkis-
hólm.
Fyrir vant göngufólk er tilvalið að taka heilan dag
og toppa í leiðinni Hólstind. Er þá gengið beint upp
skriðurnar frá Ölkeldu uns komið er á hrygg sem
liggur í norðvestur á tindinn. Þar býðst gríðarlegt
útsýni yfir á Snæfellsjökul, Helgrindur, Kolgrafafjörð,
Drápuhlíðarfjall og Ljósufjöll. Af Hólstindi má halda
áfram göngunni yfir á Tröllatinda en snúið getur
verið að rekja sig eftir hryggjum þeirra allra endi-
langt. Er því hentugra að halda niður norðurhlíðar
Tröllatinda uns komið er að skarði efst í Furudal og
mun betri leið en að halda niður brattar og lausar
suðurhlíðar þeirra. Stóru-Furu er síðan fylgt eftir og
staldrað við fossana sem skipta tugum. Um Furudal
lá áður gönguleið yfir Snæfellsnesið en af einhverjum
ástæðum féll hún í gleymsku – og er sjálfsagt
að breyta því.
Fossaveisla
í Furudal
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Einn af tugum fossa í Furudal. MYND/DAGNÝ HEIÐDAL
Fossarnir í
Stóru-Furu er
afar fjölbreyttir
og hver öðrum
fallegri. MYND/TG
Elliðatindur séður úr ofanverðum Furudal. MYND/TG
TILVERAN
2 0 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
0
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
0
-A
D
F
8
2
3
4
0
-A
C
B
C
2
3
4
0
-A
B
8
0
2
3
4
0
-A
A
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K