Fréttablaðið - 20.06.2019, Side 21

Fréttablaðið - 20.06.2019, Side 21
Þorvaldur Gylfason Í DAG New York – Við upphaf þess-arar aldar virtist ekkert geta staðið í vegi fyrir áframhald- andi framsókn lýðræðis um heim- inn. Við höfðum séð lýðræði rísa í fjórum bylgjum. Fyrsta bylgjan reis með sjálfstæðisyfirlýsingu Banda- ríkjanna 1776, fyrsta fullburða lýð- ræðisríkisins. Önnur bylgjan reis um miðja 19. öld þegar Evrópuþjóðir risu upp gegn kóngum og keisurum og Íslendingar héldu þjóðfund 1851. Þriðja bylgjan reis þegar lýðræðis- ríkin ásamt Rússum sigruðu fasista og nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Fjórða bylgjan reis 1974 þegar ein- ræðisstjórn Portúgals var steypt af stóli og grísku herforingjastjórninni skömmu síðar. Þessi fjórða bylgja barst því næst til Spánar og áfram 1989-1991 til kommúnistaríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu og Rússlandi og einnig til Suður-Ameríku, Afríku og Asíu. Lýðræðisríki heimsins voru innan við tíu í síðari heimsstyrjöldinni og eru nú tæplega 100. Mjög hefur þó hægt á fjölgun í hópi lýðræðisríkja frá 2006 þar eð lýðræði á nú undir högg að sækja æ víðar um heiminn, einnig þar sem sízt skyldi í Banda- ríkjunum og Evrópu, þ.m.t. Ísland. Um þessa háskalegu þróun birta erlendir stjórnmálafræðingar nú bók eftir bók, nú síðast Larry Diamond prófessor í Stanford-háskóla í Kali- forníu sem var að senda frá sér bók- ina Illviðri(e. Ill Winds). Hagsmunasamtök stjórnmálamanna Vanda lýðræðisins nú virðist mega rekja til tveggja meginróta. Stjórnmálaf lokkar hafa ekki staðið í stykkinu. Þeir hafa í auknum mæli hegðað sér eins og sjálfhverf hagsmunasamtök stjórnmálamanna og með því móti fyrirgert trausti fólksins og því ekki megnað að aftra óvinum lýðræðisins. Hvernig er hægt að taka þýzka Jafnaðar- flokkinn alvarlega þegar Gerhard Schröder, kanslari Þýzkalands 1998- 2005, gerðist að því loknu auðmaður í boði rússneskra orkufyrirtækja og þá um leið Pútíns forseta? Hvernig er hægt að taka brezka Íhaldsflokkinn alvarlega þegar hann er orðinn upp- vís að því að etja Bretum út úr ESB af innanflokksástæðum án nokkurs sýnilegs undirbúnings eða umhugs- unar? Þannig getum við farið land úr landi. Hin meginrót vandans er að markaðsbúskapur án nauðsynlegs mótvægis, aðhalds og eftirlits mylur undir græðgi og siðblindu í við- skiptum og stjórnmálum. Stórþjófar vaða nú víða uppi í stjórnmálum þar eð fyrirstaðan er veik. Einn þessara manna er nú forseti Bandaríkjanna, annar er forseti Rússlands. Þeir eru fleiri. Illa fengið fé Þjófráðar heimsins (e. kleptocrats) fara sínu fram í krafti þess að þeim er hlíft. Bandaríska fjármálaráðu- neytið telur að árlegt innstreymi illa fengins fjár til Bandaríkjanna nemi 2% af landsframleiðslu. Árlegt inn- streymi illa fengins fjár til Bretlands er talið nema 5% af landsframleiðslu. Helmingur auðæfa Rússa er geymd- ur í skattaskjólum líkt og þriðjungur auðæfa Afríkubúa. Ríkisstjórnum Bandaríkjanna og Bretlands væri í lófa lagið að leggjast á sveif með þeim sem eru að reyna að afhjúpa skattaskjólin og loka þeim. Þeim væri einnig í lófa lagið að setja Eignarréttur nær ekki til þýfis nafnlausum skúffufyrirtækjum stólinn fyrir dyrnar og taka fyrir nafnlaus fasteignakaup eins og t.d. þegar maður nokkur keypti sér íbúð í Washington 2006 og greiddi fyrir hana 15 milljónir Bandaríkjadala í reiðufé. Ellefu árum síðar greindi Washington Post frá því að kaupand- inn var rússneski auðkýfingurinn og Íslandsvinurinn Oleg Deripaska. Donald Trump hefur selt margar íbúðir í húsum sínum með líki lagi. Eftirlit með fjárböðun, öðru nafni peningaþvætti, í Bandaríkjunum er svo veikburða að hættan á að upp komist um slík brot er talin vera innan við 5%. Það mega Bretar eiga að þeir settu nýlega lög sem heimila rannsókn á grunsamlegum fast- eignakaupum útlendinga ef þau virðast ekki samrýmast fjárráðum kaupandans. Lögin heimila eigna- upptöku ef féð reynist illa fengið eða kaupandinn getur ekki gert grein fyrir uppruna fjárins. Eignarréttur nær ekki til þýfis. Afvopnum þjófráðana Fram hefur komið tillaga um að stofna þjóðarsjóði handa íbúum Rússlands og annarra þjófræðisríkja, sjóði sem upptekið þýfi væri lagt í og geymt þar til þessi ríki verða að rétt- arríkjum og yrði fénu þá skilað þang- að. Þá þarf að veita uppljóstrurum trygga vernd og styðja við bakið á rannsóknarblaðamönnum og stofn- unum sem fylgjast með spillingu um heiminn eins og t.d. samsteypunni sem afhjúpaði Panama-skjölin 2016. Þar tóku höndum saman 220 blaða- menn og yfir 100 fjölmiðlar frá 80 löndum og lyftu grettistaki. Fjárböðun er eitt helzta vopn þjófráðanna sem ógna nú lýðræð- inu í æ f leiri löndum, láta greipar sópa um auðlindir almennings og ögra mannréttindum. Þeir geyma illa fengið fé að mestu í Ameríku og Evrópu. Stjórnvöldum þar ber að afvopna þjófráðana með því að girða fyrir fjárböðun. Annars er hætt við að áfram muni fjara undan lýðræði. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 2 0 . J Ú N Í 2 0 1 9 2 0 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 4 0 -D 0 8 8 2 3 4 0 -C F 4 C 2 3 4 0 -C E 1 0 2 3 4 0 -C C D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.