Fréttablaðið - 31.07.2019, Page 11
Hvers vegna er það svo að
fimmti hver hjúkrunarfræð-
ingur er farinn í önnur störf
fimm árum eftir útskrift?
Nú þegar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar 100 ára afmæli er tíma
bært að líta um öxl og horfa fram
á við. Þegar ég fæddist fyrir rúmri
hálfri öld var móðir mín, sveita
stúlka að norðan, í vanda því ekki
var fæðingarorlof eins og nú tíðk
ast, en hún þurfti til vinnu. Þá var
gott að eiga móðursystur að sem
gat hjálpað til en hjúkrunarkonan
Rósa Guðmundsdóttir sem var hætt
störfum vildi gæta mín, þar duttum
við báðar í lukkupottinn. Rósa var
fædd á Ásgerðarstöðum í Hörgárdal
1899 og f lutti suður til Reykjavíkur
og fékk vinnu á Landspítalanum.
Hana langaði að læra hjúkrun en
það var bara hægt erlendis svo hún
fór að ráðum lækna spítalans og
beið þar til Hjúkrunarskóli Íslands
var stofnaður og útskrifaðist með
fyrsta árgangi þaðan. Hún var ein
stæð og barnlaus en framsýn og
fannst gaman að annast mig sem
barn og við urðum mestu mátar.
Hún keypti saumavél til að sauma
dúkkuföt úr sínum gömlu kjólum,
handa mér, hún kenndi mér að
hjóla en ég efast um að hún hafi
kunnað það sjálf. Við ferðuðumst
með strætó og tókum skiptimiða
til að skoða hverfi borgarinnar þar
sem helstu byggingar voru skoð
aðar og styttur bæjarins kynntar
fyrir mér. Við fórum í messu í
Hallgrímskirkju á sunnudögum
og tókum leigubíl í Grasagarðinn.
Þegar ég var á unglingsaldri var
farið í hringferð um landið sem var
ógleymanleg. Alltaf var hún stolt af
sinni menntun og starfi sínu sem
hjúkrunarkona. Hún lagði mikla
áherslu á hollt mataræði og hreyf
ingu, útvarpsleikfimin og passíu
sálmalestur í Ríkisútvarpinu var
ómissandi í hennar dagskrá.
Þegar ég sjálf f lutti suður til að
nema læknisfræði vildi hún að ég
skildi mikilvægi hjúkrunar og sam
starf þessara mikilvægu stétta heil
brigðiskerfisins. Hún hvatti mig til
dáða við krefjandi nám á sama tíma
og hún útskýrði fyrir mér að fræði
okkar væru stöðugt að breytast og
að ristillinn væri spegill sálarinnar.
Að horfa á heilbrigði mannsins sem
endalausa áskorun þar sem for
varnir skipta öllu. Að skilja og bera
virðingu fyrir endalokum lífsins
sem bíða okkar allra og mikilvægi
hjúkrunar á þeim enda ævinnar er
ekki síður göfugt verkefni. Þegar
hjúkrunarfræðingur var orðið
hennar starfsheiti fussaði hún og
sveiaði og sló sér á lær en á hennar
hurð og legsteini stendur: Rósa
Guðmundsdóttir hjúkrunarkona.
Því er það mikilvægt nú á þessum
tímamótum þar sem saga Félags
hjúkrunarfræðinga er rifjuð upp á
Árbæjarsafni að horfa einnig fram
á við. Á hugann leita margar spurn
ingar sem ég finn að hún frænka
mín spyr einnig: Hvers vegna er það
svo að fimmti hver hjúkrunarfræð
ingur er farinn í önnur störf fimm
árum eftir útskrift? Það hlýtur að
vera eitthvað að fyrst svo stór hluti
háskólamenntaðrar stéttar velur
sér annan starfsvettvang eftir
langt og dýrt nám. Getur verið að
þetta unga fólk hafi valið nám í stað
þess að velja starf ? Getur verið að
við séum ekki að hlúa nógu vel að
jafn mikilvægri stétt og hjúkrunar
fræðingar eru? Góður hjúkrunar
fræðingur þarf að vilja snerta fólk
og hlusta á fólk þar sem það er.
Hvers vegna hafa svo margar af
mínum bestu samstarfskonum
ákveðið að fara af gólfinu og vinna
við verkefnastjórnun og gæðamál?
Vinna dagvinnu við skrif borðið en
hætta að sinna sjúklingum? Verð
um við ekki að bregðast við þessum
atvinnuflótta heillar stéttar? Því er
þriðji hver f lugþjónn með menntun
hjúkrunarfræðings en í f lugi er
líka unnið um nætur og á rauðum
dögum? Hvers vegna fáum við ekki
fólk til vinnu á nýjum hjúkrunar
heimilum, og hvers vegna þurfum
við endalaust að loka rúmum á
háskólasjúkrahúsinu því ekki næst
að manna vaktirnar hjúkrunar
fræðingum? Það eru samkeppnis
próf í hjúkrunarfræði en samt
skilar þetta fólk sér ekki til vinnu
að námi loknu. Er í lagi að eiga yfir
höfði sér dómsmál þegar þú ert að
gera þitt allra besta í vinnu þar sem
vantar alltaf á vaktina? Gæti verið
að álagið sé of mikið og launin of
lág?
Lilja Alfreðsdóttir menntamála
ráðherra hefur nú komið því í gegn
að fimmta árið í námi kennara sé
launað, og þá hefur aðsókn í námið
aukist til muna. En þurfum við
fimm ára háskólanám til að kenna
börnum okkar að lesa og skrifa?
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis
ráðherra hefur nú gefið út heilbrigð
isstefnu sem er gott og gilt þó mjög
margt vanti í það plagg. En við skul
um ekki gleyma því að það verður
ekkert heilbrigðiskerfi á Íslandi án
hjúkrunarfræðinga og lækna. Við
verðum að gera betur og hlúa að
jafn mikilvægri stétt og hjúkrunar
fræðingar eru. Til hamingju með
aldarafmælið, kæru hjúkrunar
fræðingar, án ykkar getum við ekki
eflt íslenskt heilbrigðiskerfi. Þorum
að eiga þetta samtal og leysa þenn
an vanda saman.
Hvar eru hjúkrunarfræðingarnir?
Ebba Margrét
Magnúsdóttir
formaður
læknaráðs
Landspítala
Sterkt og gott
samband
Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki
Eitt símtal
og málið er leyst
Vodafone sinnir tæknilegum
þörfum okkar hratt og örugglega
Að undanförnu hefur verið áberandi kenning um að v ið inn leið ing u þr iðja
orkupakkans verði íslenska ríkið
skuld bundið til að leyfa lagn ingu
sæstrengs sem f lytur raf orku til
ann ars rík is. Þar að auki hefur
verið haldið fram að reyni ís lenska
ríkið að standa í vegi fyr ir því að sæ
streng ur verði lagður muni annað
hvort Eftirlitsstofnun EFTA höfða
samn ings brota mál gegn íslenska
rík inu fyrir EFTAdómstólnum eða
höfðað verði mál fyrir íslenskum
dómstól sem leiti álits EFTAdóm
stólsins um samningsbrot. Það mál
muni tapast og íslenska ríkinu gert
að greiða skaðabætur þar sem orka
hefur verið skil greind sem vara
(síðan fyrsti orkupakkinn var inn
leiddur) og EESsamningurinn ger i
ráð fyr ir frjálsu flæði á vör um inn
an EESsvæðisins. Þessar kenningar
eru firra.
Ekkert í orkupakkanum
Þriðji orkupakkinn fjallar ekki um
skyldu aðildarríkj a EES til að koma
á eða leyfa sam teng ingu um flutn
ing orku sín á milli, m.ö.o. hann
fjallar ekki um sæstrengi sem flytja
raforku. Synjun eða höfnun orku
pakkans hefur því engin bein áhrif á
hvort lagður verði slíkur sæstrengur
eða ekki.
Ein meginstoð EESsamningsins
er frjálst f læði vöru. Þrátt fyrir að
rafmagn sé skilgreint sem vara
leiðir það ekki sjálfkrafa til þess að
sérhvert ríki eða einkaaðili á EES
svæðinu geti lagt sæstreng hingað
til lands og tengst íslenska raforku
kerfinu án þess að íslenska ríkið ráði
neinu þar um.
Túlkunarreglur þjóðaréttar
Í þessu samhengi verður að hafa
í huga að EESsamningurinn er
milliríkjasamningur. Í 31. gr. Vínar
samningsins um milliríkjasamninga
(e. Vienna Convention on the Law of
Treaties) frá árinu 1969 eru að finna
helstu túlkunarreglur þjóðaréttar.
Ísland er ekki aðili að samningnum
en er bundið af umræddu ákvæði
þar sem það telst þjóðréttarvenja.
Í 1. mgr. 31. gr. kemur fram megin
reglan að milliríkjasamningur skuli
túlkaður í góðri trúi í samræmi við
hefðbundna merkingu orðanna sem
koma fyrir í honum í samhengi við
og í ljósi markmiðs og tilgangs hans.
Það er afar langsótt að finna skyldu
til lagningar sæstrengs í hefðbund
inni merkingu þeirra orða sem koma
fyrir í ákvæðum EESsamningsins
um frjálsa vöruflutninga enda ekk
ert minnst á slíka skyldu.
Það sem meiru skiptir hér er að
í c) lið 3. mgr. 31. gr. kemur fram
að við túlkun milliríkjasamninga
verði að taka tillit til hverrar þeirrar
þjóðréttarreglu sem er í gildi á milli
samningsaðila.
Hafréttarsamningur SÞ
Öll aðildarríki EES samn ings
ins (sem og ESB sjálft) eru aðilar
að haf rétt ar samn ingi Sam ein uðu
þjóð anna frá 1982. Taka verður því
tillit til hans í þessu samhengi. Af
311. gr. haf rétt ar samn ingsins leiðir
að almennt skulu ákvæði ann arra
samn inga, sem að ild ar ríki haf rétt
ar samn ings ins eiga aðild að, að vera
í sam ræmi við haf rétt ar samn ing
inn. M.ö.o. hafréttarsamningurinn
trónir á toppnum í alþjóðakerfinu
að því er varðar þær reglur er gilda
á hafinu enda stundum kallaður
stjórnarskrá hafsins.
Sæstrengir
Hafréttarsamningurinn er helsta
réttarheimild þjóðaréttar um
sæstrengi. Í 79., 87. og 112. gr. hans
kemur fram að öllum ríkjum sé
heim ilt að leggja neð an sjáv ar
strengi og leiðsl ur á land grunnið
og á úthaf inu í sam ræmi við nán ar
til greind skil yrði. Það rík ir því tölu
vert frelsi varð andi lagn ingu neð an
sjáv ar leiðslna og strengja. Það eru
yf ir leitt einka að ilar sem not færa sér
þessi rétt indi. Þrátt fyrir orðalag haf
réttarsamningsins um að umrædd
réttindi tilheyri ríkjum þá er litið svo
á að skýra skuli orðalagið á þann veg
að það taki jafnframt til einkaaðila í
viðkomandi ríki. Slíkur skilningur
birtist m.a. í helsta skýringarritinu
við samninginn.
Hafa verður í huga að hið lög fræði
lega land grunns hugtak er annað
en hið nátt úru vís inda lega. Land
grunns hug takið í skiln ingi þjóða
réttar hefst utan land helgi ríkja, þ.e.
oft ast 12 sjó mílum frá svoköll uðum
grunn lín um. Í 4. mgr. 79. gr. haf rétt
ar samn ings ins kemur bein línis fram
að ekk ert, í þeim hluta samn ings ins
sem fjallar um land grunn ið, hafi
áhrif á rétt strand rík is ins til að setja
skil yrði vegna strengja eða leiðslna,
sem ná inn í land eða land helgi þess.
M.ö.o. ríki ræður því hvort lagður er
sæstrengur inn fyrir landhelgi þess.
Þessi regla leiðir af fullveldisrétti
strandríkja í landhelginni.
Engin sæstrengjaskylda
Af túlkunarreglum þjóðaréttar
leiðir að skýra verður ákvæði EES
samningsins um frjálst f læði vöru
til samræmis við ákvæði hafréttar
samningsins. Það þýðir að megin
reglan um frjálst f læði vöru leiðir
ekki til þess að á íslenska ríkinu
hvíli skylda til að heimila lagningu
sæstrengs sem flytur rafmagn hing
að til lands. Íslenska ríkið getur því
ekki orðið skaðabótaskylt af því að
synja rétti sem er ekki til staðar. Það
er útilokað. Að halda öðru fram er
nýlunda í sögu alþjóðasamskipta.
Réttur Íslands til að heimila eða
hafna lagningu sæstrengs inn fyrir
landhelgina stend ur óhagg aður
hvað sem þriðja orku pakk anum eða
öðrum ákvæðum EESsamningsins
líð ur.
Sæstrengjasteypa
Bjarni Már
Magnússon
prófessor við
lagadeild HR og
forstöðumaður
Alþjóða- og
Evrópuréttar-
stofnunar HR
M.ö.o. ríki ræður því hvort
lagður er sæstrengur inn
fyrir landhelgi þess.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 3 1 . J Ú L Í 2 0 1 9
3
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
8
1
-9
C
1
0
2
3
8
1
-9
A
D
4
2
3
8
1
-9
9
9
8
2
3
8
1
-9
8
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K