Fréttablaðið - 09.08.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 8 3 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9
Roooosalega laaangar pylsur?
Hefur þú smakkað Með Cheddar osti og
karmelluðum
lauk
FERÐAÞJÓNUSTA Um hálfur millj-
arður gæti tapast í norðlenskri
ferðaþjónustu vegna gjaldþrots
ferðaskrifstofunnar Super Break.
Unnið er að því að fá nýja aðila til
að f ljúga til Akureyrar í vetur þar
sem nú þegar er búið að selja um
helming þeirra flugsæta sem voru í
boði. Framkvæmdastjóri Markaðs-
stofu Norðurlands segir um mikla
blóðtöku að ræða.
„Það er búið að leggja peninga í
markaðssetninguna og við erum
að skoða að fá nýja aðila að borð-
inu. Við vorum að fara inn í þriðja
árið með Super Break og því hefur
komið ágætis reynsla á þetta f lug,“
segir Arnheiður Jóhannesdóttir,
framkvæmdastjóri Markaðsstofu
Norðurlands.
„Þetta verður högg fyrir fyrirtæki
á svæðinu. Við reiknum með að
þetta verði um 9.000 gistinætur sem
gætu tapast í febrúar og mars og
vegna árstíðasveif lna í ferðaþjón-
ustu á Norðurlandi er um mikla
veltu að ræða á þessum árstíma.“
Arnheiður vonast hins vegar til að
markaðssetningin hafi skilað sér
til f leiri aðila og að önnur fyrirtæki
séu til í að stökkva á millilandaflug
milli Akureyrar og meginlands Evr-
ópu eða Bretlandseyja.
Guðmundur Baldvin Guðmunds-
son, formaður bæjarráðs Akureyrar,
segir málið í deiglunni á Akureyri
og því verður rætt við ráðamenn
þjóðarinnar um hvað sé hægt að
gera til að fjölga ferðamönnum
norður á Akureyri.
„Við munum funda með þing-
mönnum og fara yfir stöðuna. það
er klárt mál að ef enginn kemur inn
í þetta mun þetta hafa áhrif á ferða-
þjónustuna. Við viljum og munum
ekki gefast upp í þeirri baráttu held-
ur snúa bökum saman,“ segir Guð-
mundur Baldvin. „Einnig höfum við
rætt við Isavia og lagt áherslu á að ef
við ætlum að taka við auknu flugi
þurfi að f lýta uppbyggingu f lug-
stöðvarinnar á Akureyrarflugvelli.“
Málefni Akureyrarf lugvallar
voru rædd á samráðsfundi ríkis-
stjórnarinnar og sveitarstjórna á
svæðinu sem haldinn var í Mývatns-
sveit í gær. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins eru ráðherrar áfram
um að byggja upp ferðaþjónustu
með beinu millilandaf lugi um
Akureyrarflugvöll. – sa
Rúmur hálfur milljarður gæti glatast
Verði ekki flogið til Akureyrar í vetur gætu fyrirtæki á svæðinu tapað rúmum hálfum milljarði króna. Helmingur flugsætanna var
seldur og reiknað er með að níu þúsund gistinætur glatist á tveimur mánuðum. „Mikið högg,“ segir formaður bæjarráðs Akureyrar.
Arnheiður Jó-
hannesdóttir.
Guðmundur
Baldvin Guð-
mundsson.
Málefni Akureyrarflug-
vallar voru rædd á samráðs-
fundi ríkisstjórnarinnar og
sveitarstjórna í gær.
Flugmennirnir Matt Jones og Steve Brooks voru kampakátir eftir erfitt f lug til Reykjavíkur. Þeir eru að f ljúga Spitfire-orrustuvél í kringum hnöttinn og er Ísland fjórði viðkomustaðurinn.
„Þessi vél breytti sögunni. Við eigum frelsi okkar henni að þakka,“ sagði Brooks. Byssurnar voru óþarfar þannig að þeim var skipt út fyrir eldsneytistanka. Sjá síðu 6 FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
0
9
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
8
F
-3
5
0
0
2
3
8
F
-3
3
C
4
2
3
8
F
-3
2
8
8
2
3
8
F
-3
1
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K