Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.08.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 09.08.2019, Qupperneq 6
Bónorð á Abbey Road Aðdáendur Bítlanna fylltu gangbrautina fyrir utan Abbey Road-hljóðverið í Lundúnum í gær í tilefni af því að liðin var hálf öld er frá því að Bítlarnir voru myndaðir þar sem þeir gengu í einfaldri röð yfir gangbrautina. Varð sú mynd að einu frægasta plötuumslagi allra tíma. Einn æstur Bítlaaðdáandi notaði tækifærið og bað kærustuna um að giftast sér á miðri gangbrautinni við mikinn fögnuð viðstaddra. NORDICPHOTOS/GETTY ALÞINGI Meirihluti utanríkismála- nefndar hafnaði beiðni Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Miðf lokksins, um að láta vinna skýrslu eða greinargerð um mögu- leg áhrif f jórða orkupakkans á íslensk lög. Gunnar Bragi hafði óskað eftir því að Friðrik Árni Friðriksson Hirst og Stefán Már Stefánsson hefðu aðkomu að verkefninu, en þeir unnu álit um þriðja orku- pakkann að beiðni utanríkisráðu- neytisins. Fjórði orkupakkinn var sam- þykktur síðasta vor af ráðherraráði Evrópusambandsins og tekur gildi um næstu áramót. Er það svo verk- efni sameiginlegu EES-nefndarinn- ar að ákveða hvort innihaldið rati inn í EES-samninginn sem Ísland er aðili að. Gunnar Bragi segir í tilkynningu að meirihlutinn vísi í samkomu- lag um þinglok þar sem komi fram að þingf lokkum sé heimilt að láta framkvæma ákveðna vinnu. Hefur Gunnar Bragi óskað eftir að nefnd- in vísi erindi sínu til utanríkisráðu- neytisins. – ab Höfnuðu beiðni Gunnars Braga Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FLUG Silfurlit Spitfire-vél lenti á Reykjavíkurflugvelli á fimmta tím- anum í gær. Flugmennirnir, hinir bresku Steve Brooks og Matt Jones, voru kátir og virtist létt eftir lend- inguna enda höfðu þeir áður þurft að snúa við vegna veðurs. Brooks og Jones skiptast á að fljúga og með þeim er fylgdarlið sem flýgur í fylgivél. „Við lentum í slæmu veðri í gær og næstum því aftur í dag en náðum að komast fram hjá því. Ég held að það að komast hingað sé erf- iðasti hluti leiðarinnar,“ segir Brooks og hlær dátt. Ísland er fjórði viðkomustaður- inn á leiðinni sem hófst í Bretlandi. „Þetta er búið að vera mjög erfitt en við vissum allan tímann að þessi leggur yrði strembinn. Okkur verður létt þegar við komumst til Kanada. Annar leggur sem við áætlum að verði erfiður er frá Alaska yfir til Rússlands.“ Þrátt fyrir upphafserfiðleika hefur vélin sjálf staðið fyrir sínu. En vegna þess að hún flýgur lágt skipta veður og vindar gríðarlega miklu máli. Þægindi eru lítil í vélinni og rými flugmannsins mjög þröngt. Brooks segir að það að stíga inn í vélina sé eins og að klæða sig í jakka. „Við byggðum vélina af því að það er svo mikill áhugi á Spitfire-vélum um heim allan. Þær voru notaðar í svo mörgum löndum á ákveðnu tímabili. Þetta var tækifæri til þess að leyfa fólki að njóta þess að sjá vél- ina á ný,“ segir Brooks stoltur. „Þessi vél breytti sögunni. Við eigum frelsi okkar henni að þakka.“ Spitfire-vélarnar léku stórt hlut- verk í seinni heimsstyrjöldinni, þá sérstaklega orrustunni um Bret- land árið 1940. Þjóðverjar ætluðu að leggja Bretland undir sig en þurftu að vinna loftrýmið til þess að geta siglt með heraflann yfir Ermarsund. Þjóðverjar notuðu Messerschmidt- orrustuvélar en Bretar vörðust með Spitfire- og Hurricane-vélum og fjöldinn var Bretum mjög í óhag. Á þessari ögurstundu unnu breskir flugmenn kraftaverk og meðfærileiki Spitfire skipti sköpum. Varð vélin upp frá því að tákni um frelsið sjálft. Þó að Spitfire sé frægasta orrustu- flugvél heims þá er sú sem Brooks og Jones fljúga meinlaus því að hún er óvopnuð. „Við tókum byssurnar út og settum eldsneytistanka í staðinn. Vanalega draga vélarnar tæplega 500 kílómetra leið. Þessi dregur rúmlega 1.500 kílómetra á birgðum sínum.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Erfiðasti kaflinn að baki Spitfire-vélin sem flýgur umhverfis jörðina lenti í Reykjavík í gær. Veður hefur leikið flugmennina grátt en vélin stendur fyrir sínu. Þeir skiptu byssunum út fyrir eldsneytistanka sem þrefaldaði flugdrægið. Matt Jones og Steve Brooks við komuna á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI. Spitfire öðlaðist sess sem frelsistákn í seinni heimsstyrjöldinni. SVEITARSTJÓRNIR Drög að þings- ályktunartillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveit- arstjórnarráðherra, um áætlun rík- isins í málefnum sveitarfélaga voru sett inn í samráðsgátt stjórnvalda í gær. Drögin byggja á grænbók um málefni sveitarfélaga sem kynnt var síðastliðið vor. Samráð við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila fór fram í sumar og fundaði starfshópurinn sem vann grænbókina meðal annars með öllum landshlutasamtökum sveitarfélaga. Í skýrslu um samráðið segir að mikill samhljómur hafi verið um nauðsyn þess að efla sveitarstjórn- arstigið. Það verði meðal annars gert með stækkun sveitarfélaga þótt skiptar skoðanir séu á því hvernig það skuli gert. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur boðað til aukalandsþings sem fram fer 6. september næstkomandi þar sem tillögur ráðherra verða ræddar. – sar Kynnir tillögu um sveitarfélög Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 8 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 8 F -6 1 7 0 2 3 8 F -6 0 3 4 2 3 8 F -5 E F 8 2 3 8 F -5 D B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.