Fréttablaðið - 09.08.2019, Page 9
Óska eftir að kaupa
230 þús. króna Toyota bíl
Staðgreiðist. Má vera ryðgaður.
Sími: 483 3568.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17
Opið laugardaga kl. 12-16
SUMARTILBOÐSVERÐ:
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford Fiesta
2.300.000
ford.is
FORD FIESTA TITANIUM
1,1 bensín, 85 hestöfl, beinskiptur
Verðlistaverð 2.530.000 kr.
KR.
-230.000 kr.
FORD FIESTA
Einkenni Ford Fiesta eru ríkulegur staðalbúnaður,
frábærir aksturseiginleikar, fimm stjörnu öryggi,
hagstætt verð og lágur rekstrarkostnaður.
• Ökumannspakki 2 sem innifelur:
Umferðaskiltalesara, ökumannsvaka, birtuskynjara fyrir
aðalljós, hraðatakmarkara og 4,2 TFT litaskjá
• Upphitanleg framrúða
• Hljómtækjapakki sem innifelur: 8” snertiskjá, 7 hátalara,
SYNC III raddstýrt samskiptakerfi með neyðarhringingu
• Bluetooth símabúnaður
• Apple CarPlay, Android Auto
• Ford MyKey
• Aksturstölva
• 16“ álfelgur
• LED dagljós að framan
• Nálægðarskynjari að aftan og rafdrifin aðfelling útispegla
• Brekkuaðstoð
• Easy Fuel eldsneytisáfyllingarkerfi án bensínloks
• Vindskeið að aftan
RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR
Á SUMARTILBOÐI
Ford_Fiesta_Sumartilbod_5x15_3_20190624_END.indd 1 05/07/2019 15:58
Í vikunni voru sagðar fréttir af því að búið væri að telja saman hversu margir Danir þjáist af
svokölluðum lífsstílssjúkdómum.
Niðurstaðan er sú að þegar nálgast
miðjan aldur þá þarf vísitölu-
bauninn að búa við 2,7 slíka kvilla.
Flestir þeirra eru varanlegir og
útheimta sífellt pilluát, sem fer
stöðugt vaxandi alveg fram á
grafarbakkann. Danir eru líklega
ein óheilbrigðasta þjóðin í Vestur-
Evrópu. Þar er mikið reykt af
sígarettum, mikill bjór drukkinn
og hjólreiðar stundaðar án hjálma
og hlífðarbúnaðar. Reyndar
telst það síðarnefnda alls ekki
frændum okkar til lasts, heldur
tekna—en það dugir þó illa til að
vega upp á móti ölinu, tóbakinu
og svínafitunni. En þótt Danirnir
séu eflaust verr staddir en margar
aðrar þjóðir þá er öruggt að öll vel-
megandi samfélög Vesturlanda eru
á nákvæmlega sömu leið.
Sums staðar er því spáð að
innan skamms kunni það að verða
algengt að börn deyi á undan
foreldrum sínum—ekki bara að
yngri kynslóðin lifi skemur en
sú eldri, heldur að fleiri falli frá á
undan heilsuhraustari kynslóð
foreldra sinna. Fyrir utan stríðs-
tíma er ólíklegt að þessi veruleiki
hafi áður blasað við.
Veiklaðir Vesturlandabúar
Vesturlandabúar eru sífellt að
veiklast. Þeir hreyfa sig lítið,
borða óhollan mat og mikið af
honum, sofa lítið og illa; og til
að bæta dökkgráu ofan á kol-
svart þá býr fólk við sífellt meiri
streitu, einangrun, einmanaleika,
síþreytu og kulnun í starfi. Þótt
það virðist vera orðið viðkvæmt
að benda á það; þá er hreyfingar-
leysi og offita sannarlega orðin að
heilsufarslegri vá sem taka verður
alvarlega.
Það á enginn að þurfa að
skammast sín fyrir hvernig hann
lítur út og þeir sem glíma við lífs-
stílssjúkdóma á borð við offitu eru
sannarlega fórnarlömb aðstæðna
sem þeir ráða engu um. Það sama
má segja um þá fjölmörgu sem
bera ekki utan á sér einkenni
slíkra kvilla, en þjást engu að
síður bæði líkamlega og andlega,
til dæmis vegna fíknar, geðsjúk-
dóma, of þreytu og þunglyndis.
Gana og Holland
Í fyrirlestri sem ég sá á netinu
tekur hollenskur læknir dæmi
af tveimur einstaklingum og ber
saman heilsufar þeirra. Annars
vegar nefnir hann til sögunnar
68 ára gamlan Hollending og
hins vegar 88 ára mann frá Gana.
Læknirinn fullyrðir að báðir
séu dæmigerðir í sínum hópi; en
þegar heilsufar Hollendinga „á
besta aldri“ er borið saman við
háaldraða Ganverja þá kemur í
ljós að öldungar frá sársnauðum
héruðum Gana eru hraustari
á nær alla mælikvarða. Meðal
þeirra þekkjast varla hjartasjúk-
dómar eða stoðkerfisvandamál.
Munurinn á lífslíkum í löndunum
tveimur er töluverður en skýrist
aðallega af miklu meiri barna-
dauða í Gana. Fyrir þá sem njóta
þeirra forréttinda að þroskast og
eldast þá eru lífslíkurnar sambæri-
legar; en heilsufar Ganverjanna
miklum mun betra.
Er þá þar með sagt að það sé
betra að fæðast í Gana heldur
en í Hollandi eða Danmörku?
Auðvitað ekki. Það er hins vegar
áhugavert að í Gana býður lífsstíll-
inn upp á algjörlega ókeypis lausn
á þeim vanda Vesturlanda sem
bæði einstaklingar og ríkisstjórnir
væru tilbúin að eyða nánast
óþrjótandi fjármunum í að leysa.
Semsagt—hvernig getum við lifað
lengur góðu lífi án þess að þurfa á
rándýrri læknisaðstoð eða lyfjum
að halda?
Tvö vandamál
Á Vesturlöndum horfum við upp
á tvö yfirgnæfandi vandamál.
Annars vegar eru það loftslags- og
umhverfismál þar sem núverandi
eyðsla okkar á náttúruauðlindum
er smám saman að grafa undan
forsendum fyrir lífsgæðum
komandi kynslóða. Hins vegar eru
það lýðfræðilegar áskoranir, sem
felast í því að sífellt hærra hlutfall
fólks verður gamalt og háð dýrri
læknisþjónustu sem samfélögin
geta ekki staðið undir með núver-
andi áframhaldi. Að miklu leyti
tengjast þessi vandamál og eiga sér
svipaðar rætur. Hin mikla neysla á
óþörfum lífsgæðum stuðlar bæði
að óábyrgri nýtingu auðlinda og
auknum lífsstílstengdum kvillum.
Alls staðar eru að koma betur í
ljós afleiðingarnar af þeim lífsstíl
sem Vesturlönd hafa komið sér
upp á undanförnum áratugum
en kannski er enn hægt að gera
eitthvað til þess að bregðast við
hér á landi. Það þarf þá að byrja að
stuðla að raunverulegri hugarfars-
breytingu.
Vesturlönd verða fyrir ofþægindum
Eins og mamma þín segir
Svörin eru öllum ljós, og hafa
alltaf verið það. Við eigum að
borða hollar, sofa betur, hitta vini
okkar, hreyfa okkur meira og gera
almennt meira eins og mamma
okkar segir okkur. En þrátt fyrir
að engra nýrra vísinda sé þörf þá
gengur okkur flestum samt svo
erfiðlega að hlýða allri þessari
skynsemi.
Þótt stjórnmálamenn geti
trauðla farið að segja fólki að
borða fleiri gulrætur, mæta oftar
í líkamsrækt, ganga í vinnuna
eða fara fyrr að sofa á kvöldin þá
hafa pólitískar og skipulagslegar
ákvarðanir veruleg áhrif á það
hversu líklegt það er að fólki takist
að gera jákvæðar breytingar á
lífsstíl sínum. Skipulag í borgum
og bæjum ætti að miða að því að
gera fólki kleift að komast f lestra
sinna erinda fótgangandi og gera
þarf líkamsrækt og holla lifnaðar-
hætti að stærri hluta af heilbrigðis-
kerfinu. Vinnustaðir kyrrsetufólks
ættu að gera göngufundi að venju
og svo mætti áfram telja.
Óþægindi og ofþægindi
Við búum í samfélagi þar sem
það þykir ekki skrýtið að keyra á
bíl í líkamsræktarstöð til þess að
hlaupa þar á kyrrstæðu bretti. Víða
á netinu eru fyndin dæmi af fólki
sem raðar sér í rúllustiga á leiðinni
með töskuna sína í líkamsræktina.
Slíkar myndir undirstrika að hið
raunverulega vandamál er líklega
fólgið í einstaklega djúpstæðum
áhuga okkar á því að komast hjá
öllum mögulegum óþægindum.
Við göngum afskaplega langt til
þess að komast hjá hvers kyns
líkamlegri áreynslu í daglegu lífi
okkar, jafnvel þótt við hömumst
á lóðum og liðamótum nokkrum
sinnum í viku í skyldulíkams-
ræktinni.
Þegar Hollendingarnir vel-
megandi eldast væru líklega flestir
þeirra tilbúnir til þess að gefa allt
sem þeir eiga til þess að vera jafn-
heilsuhraustir og Ganverjarnir
fátæku. Og ósennilegt er að Gan-
verjanum þætti freistandi að láta
borga sér fyrir að taka við lífsstíls-
sjúkdómum Vesturlandabúanna.
Þótt mörg velmegunarþægindi
séu ósköp hugguleg er ekki víst að
þau séu öll þess virði þegar upp er
staðið. Það er freistandi að verða
ofþægindunum að bráð og flestum
okkar væri líklega hollara að gera
almennt meira af því sem mamma
okkar segir okkur, jafnvel þótt það
hafi í för með sér óþægindi. Við
höfum gott af þeim.
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9F Ö S T U D A G U R 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9
0
9
-0
8
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
8
F
-4
D
B
0
2
3
8
F
-4
C
7
4
2
3
8
F
-4
B
3
8
2
3
8
F
-4
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K