Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 4

Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 4
ÁRA5ÁBYRGÐ FIAT ATVINNUBÍLAR FIAT DUCATO Verð frá 4.024.194 án vsk. 4.990.000 m/vsk. FIAT TALENTO L2H1 Verð frá 3.298.387 án vsk. 4.090.000 m/vsk. FIAT DOBLO Verð frá 2.225.806 án vsk. 2.760.000 m/vsk. FIAT FIORINO Verð frá 1.854.032 án vsk. 2.299.000 m/vsk. ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.FIATPROFESSIONAL.IS • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 REYKJAVÍK Mismunandi skilningur er á milli skólastjórnenda og fjár- veitingarvaldsins hjá Reykjavíkur- borg um hversu mikið fjármagn þarf til að reka grunnskóla í borginni. Lítið svigrúm er til hagræðingar innan skólanna og því er helst lagt til að sameina skóla, er þá nefnt sér- staklega að loka Korpu skóla. Þetta kemur fram í skýrslu Innri endur- skoðunar Reykjavíkurborgar, IE, um rekstur grunnskóla sem lögð verður fram á fundi borgarráðs í dag. Fjárúthlutanir til grunnskóla eru um 25 milljarðar króna á ári og eru rúmlega einn fimmti af heildarfjár- úthlutunum borgarinnar. Alls rekur borgin 36 grunnskóla. Í skýrslunni voru þó aðeins teknir fyrir níu skól- ar, þar af 1. til 7. bekkur í tveimur og 8. til 10. bekkur í tveimur. Einnig var rætt við fjölda skólastjórnenda og starfsmenn Skóla- og frístunda- sviðs, SFS. IE setur fram alls 24 ábendingar en vegna engra þeirra er krafist tafar- lausra úrlausna. Helsta niðurstaðan sé að skólastjórnendur og SFS hafi annan skilning á hvað sé nauðsyn- legt fjármagn til að reka grunnskóla en fjárveitingarvald borgarinnar. SFS fær fjármuni úthlutaða frá borg- inni sem er síðan úthlutað á skóla. SFS hefur skorið niður fjármagn og þar af leiðandi fari margir skólar ítrekað fram úr fjárheimildum. „Í raun standa skólarnir almennt Ósammála um þarfir skóla Haustið 2017 voru 67 nemendur í 1. til 7. bekk í Korpuskóla, sem tilheyrir Kelduskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ný skýrsla Innri endur- skoðunar Reykjavíkur- borgar um rekstur grunnskóla verður lögð fram á fundi borgar- ráðs í dag. Í skýrslunni er rætt um ýmsa galla, þar á meðal Excel-skjal sem notað er til fjárút- hlutunar sem aðeins einn starfsmaður kann að vinna með. frammi fyrir því að nánast allir rekstrarliðir fá of knappt fjármagn,“ segir í skýrslunni. Sumir skólar fari ítrekað fram úr fjárheimildum á meðan aðrir skili iðulega afgangi. Í skýrslunni er vikið að sérstöku Excel-vinnuskjali sem hefur verið notað í nær tuttugu ár til að úthluta fjármunum. Er talað um þetta skjal sem „plástrað“ og „úrelt“. „Aðstæður grunnskólanna eru mismunandi að mörgu leyti og það er tæpast hægt að ákvarða fjárhagsramma í Excel- skjali án þess að taka tillit til sér- stakra aðstæðna,“ segir í skýrslunni. Aðeins einn starfsmaður hefur þekkingu til að vinna með skjalið, mun það hafa valdið vandræðum þegar viðkomandi hafi forfallast við úthlutun fjármuna. Í skýrslunni er þó tekið fram að búið sé að skipa vinnuhóp til að skoða málið. Í viðtölum við skólastjórnendur kemur fram að þeir telji sig almennt hafa litla aðkomu að úthlutun fjár- hagsramma. „Sumir kváðust þó reyna að koma sínum sjónarmiðum á framfæri en töldu það raunar skila litlum árangri,“ segir í skýrslunni. Í dag fær skólinn 2 prósent af afgangi og halla milli ára, leggur IE til að þessu verði hætt til að hvetja skóla- stjórnendur til að reka skólana með sem hagkvæmustum hætti. Skóli Bekkir Nemendur Starfsfólk Rekstrark. Seljaskóli 1. - 10. 643 85 981 Langholtsskóli 1. - 10. 641 89 990 Melaskóli 1. - 7. 631 76 990 Norðlingaskóli 1. - 10. 594 83 1.039 Hagaskóli 8. - 10. 546 63 864 Réttarholtsskóli 8. - 10. 400 42 934 Kelduskóli (Vík og Korpa) 1. - 10. 367 55 1.333 Vogaskóli 1. - 10. 316 47 1.019 Hamraskóli 1. - 7. 149 26 1.251 ✿ Skólarnir sem teknir voru fyrir í skýrslunni Fram kemur í skýrslunni að eftir samtöl við skólastjórnendur og skoðun tölulegra gagna séu fá tækifæri til hagræðingar. Helst liggi þeir möguleikar í sameining- um skóla, er þá sérstaklega nefnt að miðað við að kostnaður við hvern nemanda sé minni í skólum sem hafa aðeins nemendur frá 8. til 10. bekkja, þá þurfi færri kenn- ara á hvern nemanda og mögu- leikar opnist á f leiri valgreinum. Aðeins er þó mælt með að einn skóli sameinist á næstunni, Korpu skóli í Grafarvogi verði lagð- ur niður og skólastarfið að fullu sameinað Kelduskóla. Aðeins 67 börn voru í Korpuskóla árið 2017. „Það er verulega óhagkvæmt að reka svo litla starfsstöð þar sem það kallar á aukinn mannaf la og kostnað við rekstur húsnæðis,“ segir í skýrslunni um Korpuskóla. Fram kemur í athugasemd frá SFS og borgarstjórn að þetta sé þegar í skoðun. „Sparnaður af slíkri sameiningu er verulegur,“ segir í athugasemdinni. arib@frettabladid.is 1 Erfitt að sjá hvort var spennt­ara Ótrúlegt myndskeið af því þegar Sophie Turner úr Game of Thrones og Jonathan Van Ness úr Queer Eye hittust í fyrsta sinn hefur vakið heimsathygli. 2 Móðir til kynnti sig til barna­verndar Móðir ellefu ára stúlku í Hafnarfirði tilkynnti sjálfa sig til barnaverndar, í samráði við skólann sem stúlkan gengur í. 3 Biðja að dá endur um að hemja sig eftir að káfað var á klofi Klemensar Aðstandendur aðdáendasíðu Hatara hafa séð sig knúna til að biðja aðdáendur um að hemja sig á tónleikum með sveitinni eftir að káfað var á klofi Klemensar Hannigan. 4 Ey þór vill fóta pressu en Arn mundur stendur við á­ skorunina Eyþór Arnalds segist reiðubúinn til þess að keppa við Arnmund Ernst Backman í fóta- pressu eða hnébeygjum en ekki sjómanni. 5 Kona myrt í Stokkhólmi í nótt Á tján ára kona var skotin til bana í íbúð í Välling by eftir að skotið var inn í í búðina úr garði. K JARAMÁL Samninganefnd Sam- bands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) hefur farið fram á frávísun í máli sem Starfsgreinasambandið (SGS) vísaði til Félagsdóms. Með málinu sem var dómtekið í byrjun vikunn- ar vildi SGS láta reyna á ákvæði frá 2009 um skyldu sveitarfélaga til við- ræðna um jöfnun lífeyrisréttinda. „Þessi einstrengingslega afstaða hjá sambandinu fer verulega illa í okkur. Það eru rosalega mikil von- brigði að þeir vilji ekki bara láta málið ganga strax til efnislegrar umfjöllunar og fá úr því skorið,“ segir Flosi Eiríksson, framkvæmda- stjóri SGS. Lögfræðingar SÍS fengu frest til næsta þriðjudags til að skila grein- argerð um frávísunina. Flosi óttast að málið muni því tefjast mikið, jafnvel þótt frávísun yrði hafnað. Veita þyrfti annan frest til að skila greinargerð um efnisatriði málsins. „Þegar við lýstum því yfir að við ætluðum með málið fyrir félags- dóm var því býsna vel tekið af okkar samningsaðilum. Við litum svo á að það væri leið út úr þessu þrátefli.“ Flosi segir að ákvörðun SÍS liðki ekki fyrir viðræðum. „Allt er þetta hluti af heild og þetta f lýtir ekki fyrir því að klára kjarasamninginn í heild sinni. Ég held að þetta hafi verði býsna vanhugsað skref hjá sambandinu,“ segir Flosi. – sar Telur frávísunarkröfu vanhugsað skref hjá Sambandi sveitarfélaga Flosi Eiríksson. Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is DÝRAVERND „Þetta er sami hvalur- inn og var hér í fyrradag, hann er steindauður,“ segir Sveinn Vilberg Garðarsson, vélamaður hjá Sel- tjarnarnesbæ. Hvalinn, sem af lífaður var og sökkt á mánudaginn, rak aftur á land, en í þetta skipti á Seltjarnar- nesi. Fulltrúi Matvælastofnunar staðfesti að um sama hval væri að ræða. Óvíst er hvort hvalurinn verður urðaður eða sökkt. Sveinn furðar sig á því að ekk- ert virðist hafa verið gert til að sökkva hvalnum. „Það sést að hann hafi verið skotinn en engin önnur ummerki eru á honum.“ Hann segir Reykjavíkurborg eiga að sjá sóma sinn í því að afgreiða málið almennilega. Hræ hvalsins liggur nú við Gróttu. – kdi Rak aftur á land 2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 9 -9 6 4 4 2 3 A 9 -9 5 0 8 2 3 A 9 -9 3 C C 2 3 A 9 -9 2 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.