Fréttablaðið - 29.08.2019, Page 6
SAMFÉLAG Félagið Ísland-Palestína
hefur sent stjórnvöldum í Palestínu
yfirlýsingu þar sem slæm staða
hinsegin fólks í landinu er hörmuð.
Stjórnarmaður segir að Ísland-Pal-
estína taki ávallt stöðu með mann-
réttindum.
„Allt okkar starf hefur grundvall-
ast á að alþjóðalög séu virt og sam-
stöðu með mannréttindum,“ segir
Einar Steinn Valgarðsson, stjórnar-
maður í félaginu. „Við teljum að
deilur Írasels og Palestínu verði ekki
leystar á réttlátan hátt ef mannrétt-
indi verði ekki höfð að leiðarljósi.“
Félagið hefur sent stjórnvöldum í
Palestínu yfirlýsingu þar sem staða
hinsegin fólks er hörmuð.
Tilefnið var fréttir af því að yfir-
völd á Vesturbakkanum bönnuðu
alla starfsemi samtaka hinsegin
fólks. Þau voru hins vegar gerð
afturreka með bannið eftir þrýsting
frá mannréttindasamtökum víða
um heim.
Einar segir að þó að félag eins og
Ísland-Palestína hafi takmörkuð
áhrif í stóra samhenginu þá sýni
sagan að alþjóðlegur þrýstingur
skipti máli. Því sé mikilvægt að
leggja sitt lóð á vogarskálarnar.
Munur er á lagalegri stöðu hins-
egin fólks í Palestínu. Á Vesturbakk-
anum hefur samkynhneigð ekki
verið bönnuð en á Gasaströndinni
er hún ólögleg að viðlagðri harðri
refsingu. Stjórnvöld á Vesturbakk-
anum hafa hins vegar verið að
herðast í afstöðunni og þann tíma
sem starfsemi hinsegin samtaka var
bönnuð var almenningur hvattur
til að tilkynna brot. „Þetta hefur
kynt undir fordómum gegn hins-
egin fólki og hvatt fólk til að taka
lögin í sínar hendur,“ segir Einar.
„Við höfum aldrei skorast undan
að gagnrýna palestínsk yfirvöld
þegar kemur að mannréttinda-
brotum. En áherslan hefur verið á
Ísrael sem hefur verið stórtækara í
brotum.“ – khg
UPPLIFÐU ÍSLAND Á ALVEG NÝJAN HÁTT!
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL 9 – 21
Fiskislóð 43, 101 Reykjavík
FlyOverIceland.is
B R E T L A N D Ti l k y n n ing Bor is
Johnson, forsætisráðherra Bret-
lands, um að ríkisstjórn hans hefði
óskað eftir því að Bretlandsdrottn-
ing frestaði þingfundum vakti hörð
viðbrögð í gær. Leiðtogar stjórnar-
andstöðuf lokka, Evrópusinnar
í Íhaldsf lokki Johnsons sem og
forseti þingsins sjálfur lýstu yfir
megnri óánægju með útspilið.
Þessi ák vörðun stjórnvalda
þýðir að þingið fer í leyfi í kringum
10. september næstkomandi, sam-
kvæmt Lauru Kuenssberg, stjórn-
málaskýranda breska ríkisútvarps-
ins, en ekki þann 14. eins og áætlað
var. Þótt munurinn sé ef til vill lítill
hefur hann mikla þýðingu, að því
er Kuenssberg skrifar. „Vegna þess
að afleiðingarnar eru þær að þing-
menn hafa minni tíma til að koma í
gegn lögum sem myndu koma í veg
fyrir að Johnson stýrði Bretlandi út
úr Evrópusambandinu samnings-
laust ef samkomulag næst ekki við
Brussel fyrir októberlok.“
Með því að fresta þingfundum
munu öll ókláruð mál fara aftur á
byrjunarreit. Vilji þingmenn festa í
lög að samningslaus útganga standi
ekki til boða þarf það því að gerast
áður en þingfundum er frestað,
skrifaði Jessica Elgot, stjórnmála-
skýrandi The Guardian.
Mikið hafði verið rætt um mögu-
leikann á því að Johnson gæti farið
þessa leið. Þingmenn höfðu lýst yfir
að þeir óttuðust að forsætisráðherr-
ann myndi taka þessa umdeildu
ákvörðun til þess að þröngva samn-
ingslausri útgöngu upp á þingið,
þvert gegn yfirlýstum vilja þess.
Hópi rúmlega sjötíu þingmanna
varð nýverið að ósk sinni þegar
skoskur dómstóll samþykkti að
taka fyrir málsókn þar sem vonast
er til að fá það staðfest að það sé
ólöglegt fyrir forsætisráðherra að
ganga fram hjá þinginu á þennan
hátt. Taka átti málið fyrir þann
6. september en samkvæmt Joanna
Cheery, þingmanni Skoska þjóðar-
flokksins, hófst vinna í gær við að
fá málinu flýtt. Ian Blackford, þing-
flokksformaður flokksins, sagði að
Johnson hagaði sér nú líkt og ein-
ræðisherra. Hann væri umboðslaus
og Skoski þjóðarflokkurinn myndi
gera allt sem hann gæti til að fyrir-
byggja samningslausa útgöngu.
Ekki var minnst á að frestunin
væri hugsuð til þess að ganga fram-
hjá þinginu í bréfi sem Johnson
sendi þingmönnum í gær. Sagði
þar að tími væri til kominn að fresta
þingfundum þar sem núverandi
þing hefur staðið yfir í um tvö ár,
mun lengur en venjulega. Á næsta
þingi myndu stjórnvöld leggja
fram metnaðarfull frumvörp í
heilbrigðismálum, innviðamálum
og svo auðvitað í útgöngumálinu.
Á meðan þingið væri í fríi myndi
ríkisstjórnin halda áfram undir-
búningi sínum fyrir Brexit. „Með
eða án samnings.“ Sagði Johnson
svo við fjölmiðla að það væri fjarri
sannleikanum að ríkisstjórnin væri
að reyna að þvinga fram samnings-
lausa útgöngu.
Þau orð dugðu hins vegar ekki
til þess að lægja öldurnar. Hvergi
nærri. Jeremy Corbyn, leiðtogi
Verkamannaf lokksins, var til að
mynda ekki par sáttur. „Það sem
forsætisráðherra er að gera er að
stela lýðræðinu af okkur í von um
að þvinga fram samningslausa
útgöngu. Hvers vegna er hann svo
hræddur að hann þarf að fresta
þingfundum til þess að koma í veg
fyrir umræðu um málið?“ spurði
stjórnarandstöðuleiðtoginn. Verka-
mannaf lokkurinn mun, að sögn
Corbyns, leggja fram frumvarp
hið snarasta til að koma í veg fyrir
frestunina. Síðan myndi flokkurinn
leggja fram tillögu um vantraust á
ríkisstjórnina.
Dominic Grieve, Evrópusinni og
samf lokksmaður Johnsons, var á
sama máli. Sagði hann ákvörðun
Johnsons reginhneyksli. „Ríkis-
stjórnin mun falla,“ sagði Grieve og
varaði við vantrausti.
Þingforsetinn var ómyrkur í máli.
„Ég hef ekkert frétt frá ríkisstjórn-
inni en ef þessar fregnir reynast
sannar, að hún ætli að fresta þing-
fundum, erum við að horfa upp á
grófa aðför gegn stjórnarskránni,“
sagði hann og hélt áfram:
„Hvernig sem á þetta er litið er
augljóst að tilgangur frestunarinn-
ar er að koma í veg fyrir umræðu
þingsins um Brexit sem og að það
geti sinnt skyldu sinni. Nú, á þess-
um erfiðu tímum í sögu ríkisins, er
mikilvægt að landskjörið þing fái
sitt um málið að segja. Við búum við
þingræði.“ thorgnyr@frettabladid.is
Boris Johnson sagður haga sér
eins og hann sé einræðisherra
Andstæðingar breska forsætisráðherrans eru æfir vegna ákvörðunar hans um að fresta þingfundum.
Þýðir að þingið hefur minni tíma, jafnvel of lítinn, til að koma í gegn löggjöf sem bannar samningslausa
útgöngu. Þingforseti segir þetta aðför að stjórnarskrá. Drottningin samþykkti beiðni forsætisráðherrans.
Elísabet Bretlandsdrottning samþykkti beiðni ríkisstjórnar Johnsons um að fresta þingfundum. NORDICPHOTOS/AFP
UTANRÍKISMÁL Mike Pence, vara-
forseti Bandaríkjanna, ætlar sér
að ræða um „innrás“ Kínverja og
Rússa á norðurslóðir þegar hann
kemur hingað til lands í næstu
viku. Þetta hafði Reuters eftir emb-
ættismanni úr ríkisstjórn Banda-
ríkjanna í gær.
Samkvæmt fréttinni hafa Banda-
ríkjamenn áhyggjur af því að Rússar
sýni nú árásargjarna hegðun á
norðurslóðum þegar aðgengi að
auðlindum hefur aukist vegna
bráðnunar íss. Einnig þykir Banda-
ríkjamönnum þörf á að fylgjast náið
með Kína.
Á ferðalagi sínu mun Pence
einnig ferðast til bæði Bretlands
og Írlands. Hyggst hann ræða við
Boris Johnson, breska forsætisráð-
herrann, um meðal annars hvernig
Bretum gengur að ganga út úr Evr-
ópusambandinu. Á Írlandi stendur
til að funda með Leo Varadkar for-
sætisráðherra og reyndar ferðast
líka til bæjarins Shannon en þangað
getur Pence rakið ættir sínar. – þea
Pence ætlar að
ræða innrás á
norðurslóðir
Mike Pence,
varaforseti
Bandaríkjanna.
Það sem forsætis-
ráðherra er að gera
er að stela lýðræðinu af
okkur í von um að þvinga
fram samningslausa út-
göngu.
Jeremy Corbyn,
leiðtogi Verka-
mannaflokksins
BRASILÍA Jair Bolsonaro, forseti
Brasilíu, tilkynnti í gær að boðað
hefði verið til fundar leiðtoga ríkja
Suður-Ameríku. Það sé gert til þess
að ná samkomulagi um sameigin-
lega stefnu um að koma Amason-
frumskóginum til varnar.
Mikið hefur verið fjallað um
elda í frumskóginum að undan-
för nu . Leiðtogar G7-r íkjanna
ræddu um eldana og sagði Emm-
anuel Macron, forseti Frakklands,
að um algjört neyðarástand væri
að ræða.
G7-leiðtogar buðu Brasilíu-
mönnum 20 milljóna evra neyð-
araðstoðarg jöf en Bolsonaro
mun ekki samþykkja hana nema
Macron biðjist afsökunar fyrst á
meintum móðgunaryrðum.
Brasilíuforsetinn var nýstiginn
út af fundi með Sebastian Pinera,
forseta Síle, þegar hann greindi
frá fundinum í gær. Sagði hann að
öll ríki álfunnar, utan Venesúela,
myndu hittast þann 6. september
í Kólumbíu. – þea
Leiðtogar funda
um Amason
Félagið Ísland-Palestína gagnrýnir
slæma stöðu hinsegin fólks í Palestínu
Hinsegin fólk hefur átt undir högg
að sækja í Palestínu. Einkum á Gasa
ströndinni. NORDICPHOTOS/GETTY
2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-A
A
0
4
2
3
A
9
-A
8
C
8
2
3
A
9
-A
7
8
C
2
3
A
9
-A
6
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K