Fréttablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 8
mánuðum síðar höfðu safnast 10
milljarðar króna á innlánsreikninga
Kviku banka.
Arion banki bendir á að áformin
samræmist á engan hátt markmiði
reglnanna um að takmarka áhættu
innistæðueigenda og ríkis.
„Reynslan sýnir að gríðarlegt
tjón getur hlotist af fjármálafyrir-
tækjum sem ekki teljast kerfislega
mikilvæg og má í því sambandi
nefna tjón ríkissjóðs af Sparisjóði
Kef lavíkur. Einnig sýnir reynslan
að mikið tjón getur hlotist af keðju-
verkandi áhrifum af falli fjármála-
fyrirtækjanna sem ekki teljast
kerfislega mikilvæg og má þar
nefna Lehman Brothers í Banda-
ríkjunum,“ segir í umsögn bankans.
Íslandsbanki tekur í sama streng
og gerir athugasemdir við að tak-
markanirnar eigi ekki við alla við-
skiptabanka landsins.
„Áformaðar takmarkanir myndu
þannig ekki taka til þess viðskipta-
banka sem í dag höfðar sérstaklega
til neytenda með tilboðum um
háa innlánsvexti og er jafnframt
sá banki sem hefur hlutfallslega
umfangsmestu fjárfestingarbanka-
starfsemina. Er tryggt að sú löggjöf
sem áformum er lýst um tryggi hag
þeirra innlánseigenda nægilega?
Gæti falist í því dulin áhætta fyrir
ríkissjóð?“
Þá kemur fram í umsögn Arion
banka að lögin muni líklega hafa 2,6
milljarðar var virði 1,8
prósenta hlutar Miton
í Arion banka.
6
milljarðar var eigið fé
Helgafells í árslok 2018.
Stóru íslensku viðskiptabankarnir
telja mikilvægt að fyrirhuguð laga-
setning, sem ætlað er að takmarka
áhættu innistæðueigenda og ríkis-
sjóðs af fjárfestingarbankastarfemi,
nái einnig yfir Kviku banka. Kvika
skeri sig úr hvað varðar umfang
f járfestingarbankastarfsemi og
reynslan sýni að gríðarlegt tjón geti
hlotist af fjármálafyrirtækjum sem
ekki teljast kerfislega mikilvæg.
„Það er óhætt að fullyrða að það
sé háskaleikur að skapa slíkt ójafn-
vægi á innlendum fjármálamarkaði,
skekkja samkeppnisstöðu og skapa
um leið nýjan freistnivanda. Slíkt
fyrirkomulag á sér enga fyrirmynd
erlendis frá,“ segir í umsögn Arion
banka um áformin.
Fjármálaráðuneytið hefur birt
áform um ný lög sem byggja á til-
lögu í hvítbók um framtíðarsýn
fyrir fjármálakerfið og bera yfir-
skriftina „Varnarlína um hlutfall
fjárfestingarbankastarfsemi“.
Áformað er að takmarka stöðu-
töku bankanna þannig að eigin-
fjárþörf vegna hennar megi ekki
vera umfram 15 prósent af eiginfjár-
grunni þeirra. Lagasetningunni er
þannig ætlað að takmarka áhættu
innistæðueigenda og ríkissjóðs af
fjárfestingarbankastarfsemi við-
skiptabanka. Samkvæmt áform-
unum yrðu lögin þó takmörkuð
við kerfislega mikilvægar innláns-
stofnanir en Kvika banki fellur ekki
í þann flokk.
„Miðað við kynnt áform mun sá
viðskiptabanki sem sker sig úr hvað
varðar hátt hlutfall fjárfestingar-
starfsemi vera undanskilinn reglun-
um en eins og kunnugt er hefur sá
sami banki verið í mikilli sókn við
söfnun innlána. Skoða þarf vand-
lega hvort ekki sé verið að skapa
nýja áhættu með slíkri nálgun,“
segir í umsögn Arion banka.
Vísar bankinn til þess að á fyrri
hluta árs hóf Kvika að bjóða sparn-
aðarreikninga fyrir einstaklinga
sem þá báru betri vexti en sam-
bærilegir reikningar hjá hinum við-
skiptabönkunum. Rúmum tveimur
Stóru bankarnir vilja að Kvika
banki lúti sömu reglum og þeir
Séríslenskar reglur
rýra verðmæti
bankanna
Á næstunni skilar Bankasýsla
ríkisins ýtarlegri skýrslu um
stöðu á bankamarkaði og tillögu
um söluferli bankanna. Í um-
sögn Arion banka kemur fram
að séríslensk regla um hámarks-
hlutfall geri bankann að lakari
fjárfestingarkosti. Reglurnar
takmarki mikilvæga þjónustu-
þætti og þróun fjármálafyrir-
tækja hér á landi til framtíðar.
„Hætt er við að séríslenskar
reglur muni trufla erlenda fjár-
festa, bæði við lánveitingar og
aðkomu að eignarhaldi. Þannig
geta séríslenskar reglur verið til
trafala við fjármögnun bank-
anna í alþjóðlegu umhverfi.
Bent er á að Arion banki er
skráður á markað í Svíþjóð þar
sem erlendir aðilar geta átt við-
skipti með hlutabréf bankans.
Séríslenskar reglur munu
fyrirsjáanlega gera bankann að
lakari fjárfestingarkosti,“ segir
bankinn.
„Þær erlendu reglur sem til-
lagan virðist vísa til koma frá
löndum sem teljast helstu fjár-
málamiðstöðvar heims, þar sem
alþjóðlegir bankar hafa starfs-
stöðvar sínar. Eru slíka reglur
þannig sniðnar að stærstu
bönkum heims sem starfa á
alþjóðamarkaði. Arion banka
er ekki kunnugt um að nokkurs
staðar í heiminum séu slíkar
reglur í gildi um banka á stærð
við íslensku viðskiptabankana
sem þjóna fyrst og fremst
heimamarkaði. Sem dæmi
má nefna að hvergi á hinum
Norðurlöndunum eru slíkar
reglur í gildi og engin áform eru
þar um slíka lagasetningu.“
Íslensku viðskiptabank-
arnir vilja að fyrirhuguð
lög um stöðutöku
nái einnig yfir Kviku
banka. Kvika sé um-
fangsmikil í fjárfest-
ingarbankastarfsemi og
hafi verið í mikilli sókn
á innlánamarkaði.
Áformin byggja á tillögu úr hvítbókinni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Helgafell eignarhaldsfélag, sem
er í jafnri eigu Ara Fenger, Bjargar
Fenger og Kristínar Vermunds-
dóttur, hagnaðist um 351 milljón
króna í fyrra og dróst hagnaðurinn
saman um rúmlega 1.120 milljónir
frá fyrra ári, samkvæmt nýbirtum
samstæðureikningi fjárfestingar-
félagsins.
Hagnaður Helgafells á síðasta ári
kom einkum til vegna hlutdeildar
félagsins í af komu eignarhalds-
félagsins S121, stærsta hluthafa
Stoða, eins stærsta fjárfestingar-
félags landsins, en hún nam 377
milljónum króna. Á móti var hins
vegar tæplega 200 milljóna króna
tap af verðbréfaeign Helgafells en
í árslok 2018 nam bókfært virði
skráðra verðbréfa félagsins – inn-
lendra og erlendra – samtals um 2,3
milljörðum króna.
Helgafell fer með ríf lega 28 pró-
senta hlut í S121 sem á um 65 pró-
sent í Stoðum. Fjárfestingarfélagið
Stoðir er á meðal stærstu hluthafa
í TM, Símanum og Arion banka.
Eigið fé Helgafells nam rúmlega 6
milljörðum króna í lok síðasta árs
en í lok þess árs voru einu skuldir
félagsins tæplega sex milljóna
króna skammtímaskuldir. Sá sem
stýrir fjárfestingum Helgafells er
Jón Sigurðsson, fjárfestir og stjórn-
arformaður Stoða, en hann er eigin-
maður Bjargar Fenger. – hae
Helgafell
hagnaðist um
350 milljónir
Hagnaður fjárfestingarfélagsins
Íslenskrar fjárfestingar nam 45
milljónum króna á síðasta ári sam-
anborið við 510 milljónir árið 2017
og 1.062 milljónir árið þar á undan.
Hagnaður samstæðunnar fyrir fjár-
magnsliði og afskriftir (EBITDA) var
972 milljónir króna og dróst saman
um 6,5 prósent milli ára.
Í ársskýrslu fjárfestingarfélagsins
segir að árið 2018 hafi verið undir
væntingum. „Helstu skýringar
þess eru að á árinu 2018 var rekstur
stærstu félaganna undir væntingum
auk þess sem nokkur frumkvöðla-
verkefni og þróunarverkefni eru
enn að sanna sig og skila því tapi í
samstæðunni,“ segir í skýrslunni.
„Þó teljum við að mikill óinn-
leystur hagnaður sé væntanlegur
á næstu árum vegna fasteignaverk-
efna sem eru í söluferli eða munu
Íslensk fjárfesting hagnaðist um 45 milljónir króna
Fasteignin að Hverfisgötu 21 er í eignasafni RR hótela. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Beska eignastýringarfyrirtækið
Miton Asset Management, sem
var um miðja síðustu viku einn af
stærstu hluthöfum Arion banka,
hefur á síðustu dögum selt allan
eignarhlut sinn í bankanum, sam-
tals um 1,8 prósent. Sjóðir í stýringu
félagsins seldu þannig í gær, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins,
tæplega 13,8 milljónir hluta á geng-
inu 75,1, eða fyrir samtals um 1.030
milljónir króna. Eftir þau viðskipti
hefur Miton losað um öll bréf sín í
bankanum.
Miton var annar tveggja fjárfest-
ingarsjóða, ásamt breska vogunar-
sjóðnum Landsdowne Partners,
sem skuldbundu sig til að kaupa
samanlagt 3,7 prósenta hlut í hluta-
fjárútboði Arion banka í júní 2018
sem svonefndir hornsteinsfjárfest-
ar. Eignarhlutur Miton í útboðinu
var 1,22 prósent.
Samkvæmt hluthafalista Arion
banka um miðjan þennan mánuð
var Miton þrettándi stærsti hluthafi
bankans með 1,81 prósents hlut,
sem var metinn á um 2,6 milljarða
króna.
Fjárfestingarsjóðir í stýringu
Miton hafa látið til sín taka á
íslenskum hlutabréfamarkaði
undan farin misseri og eru í hópi
stærstu hluthafa í mörgum skráð-
um félögum, þar á meðal í trygg-
ingafélögunum þremur. – hae
Breska félagið
Miton selur allt
í Arion banka
verða seld á næstu árum auk þess
sem nokkur frumkvöðlaverkefni
eru komin í grænar tölur á árinu
2019.“
Á meðal eigna félagsins eru evr-
ópska ferðaþjónustufyrirtækið
Kilroy, hótelfélagið RR hótel sem
rekur hótel í miðbæ Reykjavíkur
og Öldungur sem rekur hjúkrunar-
heimilið Sóltún. Þá er Íslensk fjár-
festing stórtækt í fasteignaþróun í
Reykjavík. Félagið er meðal annars í
stórum verkefnum við Austurbakka
og á Kársnesi.
Íslensk fjárfesting er í jafnri eigu
Arnars Þórissonar og Þóris Kjart-
anssonar en félagið var stofnað árið
1999 í þeim tilgangi að halda utan
um ýmsar fjárfestingar eigendanna.
Eignir þess nema um 19 milljörðum
króna og eigið féð tæplega 3,8 millj-
örðum. – þfh
Reynslan sýnir að
gríðarlegt tjón getur
hlotist af fjármálafyrir-
tækjum sem
ekki eru
kerfislega
mikilvæg og
má nefna tjón
ríkissjóðs af
Sparisjóði Kefla-
víkur.
Benedikt Gíslason, bankastjóri
Arion banka
neikvæð áhrif á verðbréfamarkað
hér á landi til framtíðar. Lögin taki
til stöðu á veltubókum bankanna
sem hafa síðustu árin verið stór
hluti af heildarveltu á verðbréfa-
markaði.
„Til að geta staðið undir hlutverki
sínu þurfa eigin viðskipti banka
að geta tekið stöður og haft svig-
rúm til að losa þær út yfir tíma. Sé
þetta svigrúm skert t.d. vegna ann-
arrar starfsemi, svo sem yfirtöku á
fullnustueignum mun það hafa
verulega neikvæð áhrif fyrir virkan
verðbréfamarkað.“
thorsteinn@frettabladid.is
MARKAÐURINN
2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-B
D
C
4
2
3
A
9
-B
C
8
8
2
3
A
9
-B
B
4
C
2
3
A
9
-B
A
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K