Fréttablaðið - 29.08.2019, Page 12
Teitur Guðmundsson
læknir
Það er nokkuð óumdeilt að heil-brigði þeirra sem búa í borgum er tengt við umhverfi þeirra og
möguleika til útivistar. Græn svæði
eru mikilvægur þáttur í því að geta
stundað hreyfingu og slökun, þá
skila þau einnig umtalsvert
miklu til baka í formi fram-
leiðslu súrefnis og með því að
draga úr mengun. Í mörgum
borgum hafa þau áhrif á
hitastig þeirra að hluta
og opna möguleika
borgarbúa á að nýta
sér þau til heilsu-
ef landi þátta hvort
heldur sem er
félagslegra, líkam-
legra og ekki síst
andlegra.
Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin hefur áætlað að allt
að 3% dauðsfalla á heimsvísu
megi rekja til slælegs aðgengis
að grænum svæðum til hreyfingar
og útivistar, það eru ansi háar tölur
og verða yfirvöld að horfa til þess að
svæði sem þessi virðast snar þáttur
í að viðhalda heilsu þeirra sem þar
búa. Við vitum mætavel að þróun
borga og þéttari byggðakjarna í heim-
inum fylgir oft aukin mengun og álag
á umhverfið, í fátækari samfélögum
þar sem vatns- og fráveitukerfi eru
ekki í lagi, loftgæði ónóg og nálægð
fólks veruleg geta skapast miklar
hættur og sjúkdómar sem við erum
blessunarlega að mestu laus við.
Þeir sjúkdómar sem helst er horft
til í tengslum við umhverfi eru
svokallaðir „non communicable
diseases“ eða sjúkdómar sem eru ekki
smitandi. Þar má nefna offitu, hjarta-
og æðasjúkdóma, lungnasjúkdóma
og krabbamein almennt. Umhverfi
hefur áhrif á þróun allra þessara
sjúkdóma og er ljóst að þrátt fyrir að
við gerum okkar besta í skipulagi og
nálgun er það auðvitað ekki nema
hluti af menginu. Hreyfingarleysi
og vestrænn lífsstíll er verulega stór
áhættuþáttur sem hægt er að hafa
áhrif á með því að opna svæði borga
og bæja og gera hreyfingu meira
aðlaðandi fyrir þá sem þar búa. Það
að komast í tengsl við náttúruna er
mjög hollt öllum og hefur fyrirbyggj-
andi áhrif.
Það má skipta þessu að einhverju
leyti niður, en hvort sem það er góður
göngutúr eða skokk, hjólreiðatúr eða
að draga fram línu- eða hjólaskautana
skilar það meiri árangri almennt en
að gera slíkt hið sama innandyra.
Sérstaklega þegar talin eru saman
öll áhrifin, þau líkamlegu, andlegu
sem og félagslegu. Við sem búum á
höfuðborgarsvæðinu og sérstaklega
á Íslandi höfum einstök tækifæri til
útivistar. Útisundlaugar eru víða, það
má synda í sjónum og hita sig svo upp
í kjölfarið í heitum potti, við getum
gengið á fjöll í námunda við byggð,
farið í göngutúr í Laugardalnum eða
nánast í óbyggð í Heiðmörkinni eða
annars staðar. Margvíslegar íþróttir
krefjast útiveru líkt og hjólreiðar,
golf eða skíðamennska hvers konar
svo dæmi séu tekin og þær má stunda
víða um land. Hreyfing, af hvaða
toga sem er, bætir, hressir og kætir og
okkur er því ekki til setunnar boðið.
Allt er vænt sem vel er grænt
Ný rannsókn sem vísindamenn við Á r ó s a h á s k ó l a gerðu leiddi í ljós að börn sem alast upp
í grænu umhverfi eru
í 55% minni hættu á
því að þróa með sér
ýmsar geðraskanir
síðar á lífsleiðinni.
Rannsóknin er stór
en æskuslóðir einn-
ar milljónar Dana
voru skoðaðar og
til þess voru notaðar
gervihnattamyndir
frá árunum 1985-2013.
Þessi gögn voru borin
saman við hættuna á því að
þróa með sér einhverja af 16 geð-
röskunum síðar á ævinni. Niður-
staðan varð þessi sláandi tala, 55%
minni líkur á geðsjúkdómum. Í
niðurstöðunum var tekið tillit til
annarra áhættuþátta eins og til
dæmis félagslegrar stöðu og ef það
var fjölskyldusaga um geðraskanir.
Vitað er að hávaði, mengun, sýk-
ingar og slæm félagsleg staða
eykur hættuna á geðrösk-
unum. Aðrar rannsóknir
hafa sýnt að græn svæði í
nágrenni fólks ýta undir
hreyf ingu og félagsleg
tengsl og að það geti hjálp-
að þroska barna. Þetta eru
allt þættir sem hafa áhrif á
geðheilsu.
Þessi rannsókn sýnir að
það eru sterk tengsl á milli
lýðheilsu og umhverfis. Þegar
börn fá ekki að alast upp í
umhverfi sem hefur góð áhrif
á þau er verið að ala upp heilu
hópana sem líða seinna á lífs-
leiðinni fyrir það að hafa ekki
fengið gott umhverfi í æsku.
Dönsku vísindamennirnir
segja að tengingin milli góðrar
andlegrar heilsu og aðgangs að
grænum svæðum í nærumhverf-
inu sé eitthvað sem þurfi að taka
enn meira tillit til en áður í borgar-
skipulagi til þess að tryggja grænni
og heilbrigðari borgir sem bæta
geðheilsu borgarbúa í framtíðinni.
Japanir hafa vitað árum saman að ganga í skógi
sé góð fyrir líkama og sál en sífellt bætist í
aðdáendahóp skógarbaðsins eins og slík ganga
er kölluð. Katrín hertogaynja af Cambridge er á
meðal aðdáenda en innblásturinn að garðinum
sem hún hannaði ásamt fleirum fyrir blómasýn-
inguna í Chelsea í vor kom frá skógarböðum.
„Shrinrin-yoku“ var þróað á níunda áratug
síðustu aldar í Japan. Japanir höfðu þó farið í slík
skógarböð öldum saman en nýjar rannsóknir
höfðu þá leitt í ljós að núvitundargöngur í skógi
gætu lækkað blóðþrýsting, lækkað kortisól í
blóði og bætt einbeitingu og minni. Efni sem
tré og plöntur gefi frá sér hjálpi jafnframt
ónæmiskerfinu. Með þessi vísindi að baki ákvað
ríkisstjórn Japans að gera skógarböð hluta af
opinberri heilsueflingu. Skógarböð á að stunda í
forvarnarskyni en 80% Japana búa í borgum.
Fyrir fólk sem er mikið inni getur skógar-
bað hjálpað til við streitulosun og falið
í sér kærkomna endurnæringu að
loknum annasömum degi. Þarna
gefst gott tækifæri til að tengja
við náttúruna, hlusta á vindinn
og fylla vitin af skógarilmi. Fyrir
nokkrum áratugum hefði verið
erfitt að stunda skógarböð á
höfuðborgarsvæðinu en
nú eru breyttir tímar og
skógræktarfélög eru með
skemmtileg útivistar-
svæði í nágrenni borgar-
innar með fjölbreyttum
gönguleiðum. Best er að skilja
símann eftir heima og njóta núsins í
slíkum göngum.
Konunglegt skógarbað
Leikur að vatni
Katrín segir að það sé hægt að flétta ýmsum
tæknilegum lausnum inn í borgarhönnun til að
skapa skemmtilegra umhverfi fyrir börn og full-
orðna.
„Með loftslagsbreytingum og aukinni úrkomu-
tíðni eru komnar til tæknilegar lausnir til að
taka á móti regnvatni sem er hægt að flétta inn í
borgarhönnunina,“ segir hún en hönnun eins og
þessi kallast blágrænar regnvatnslausnir.
„Það er hægt að flétta saman skemmtilegri
hönnun, tæknilegum lausnum og í leiðinni skapa
eitthvað frjótt í umhverfinu. Þessar lausnir þjóna
sínum tilgangi en að sama skapi auka á fjölbreyti-
leika í umhverfinu og flétta saman gróður, leik og
nýtingu í borgarumhverfinu.“
Katrín þekkir dæmi um þetta en hún skoð-
aði hverfið Hammarby Sjöstad í Stokkhólmi í
meistaraverkefninu sínu en þar eru mörg dæmi
um að vatnið sé notað á skemmtilegan hátt.
„Ég fór með börnum í göngutúr um hverfið og
bað þau um að sýna mér hvar þau leika sér. Þarna
voru svæði þar sem verið var að nýta ofanvatnið
í litlum rennum og líka gróðursvæði. Þarna voru
regnbeð eins og það er kallað, sem eru beð sér-
staklega byggð til að taka við regnvatni en það
sér það enginn sem ekki veit það, fólk sér bara
fallegt gróðurbeð. Á heitum sumardögum voru
krakkarnir að hlaupa í gegnum í einhvers konar
gosbrunna, sem var bara leikur hjá þeim en það
var samt mikil verkfræðileg lausn á bak við þessa
meðhöndlun á regnvatninu.“
Hún segir að þetta sé eitthvað sem við getum
gert í meira mæli hér.
„Það er hægt að flétta þessa innviðauppbygg-
ingu saman við leik og ákveðið ævintýri, eitthvað
sem allir geta fengið að upplifa. Það verður að
hanna hvernig við ætlum að takast á við lofts-
lagsbreytingarnar inn í umhverfið. Með hærra
hitastigi eigum við eftir að sjá meiri öfgar í veðri,“
segir hún og bætir við að það verði að hanna dag-
legt umhverfi til framtíðar með tilliti til þess.
Græn svæði
minnka líkur á
geðsjúkdómum
Græn svæði í nærum-
hverfi barna þegar þau
eru að alast upp minnka
líkurnar á því að börnin
þrói með sér geðrask-
anir á fullorðinsárum
um 55%. Þetta leiðir
umfangsmikil dönsk
vísindarannsókn í ljós.
Í Hammarby Sjöstad er ofanvatnið nýtt í leik.
55% af íbúum jarð
arinnar búa
í borgum en búist
er við því að
þessi tala verði 68
% árið 2050.
Flestir búa í borgu
m í Norður-Amer-
íku eða 82%. Alls b
úa 74% Evrópubúa
í borgum. Til sama
nburðar búa um
50% Asíubúa á bo
rgarsvæðum og
aðeins 43% í Afrík
u.
Það eru 72 almennings-
garðar/græn svæði í Zürich,
96 í Barcelona, 121 í Ham-
borg, 138 í Lissabon, 240 í
Vancouver, 400 í Sydney og 421 í París.
TILVERAN
2 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-A
5
1
4
2
3
A
9
-A
3
D
8
2
3
A
9
-A
2
9
C
2
3
A
9
-A
1
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K