Fréttablaðið - 29.08.2019, Side 28
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Friðrik
Þorgrímsson,
veitingastjóri
Hótels Kea, og
Hrafnhildur
E. Karlsdóttir
hótelstýra segja
haustið líta af-
skaplega vel út.
Við erum búin að vera í þessu í fjöldamörg ár og höfum því góðan grunn og mikla
þekkingu á öllu sem við kemur
ráðstefnu- og fundarhaldi,“ segir
Jón Friðrik Þorgrímsson, veit-
ingastjóri Hótels Kea. Hann segir
haustið líta afskaplega vel út og
að aukinn þungi færist í bókanir
vegna ráðstefnu- og fundarhalda
með hverjum deginum. Á Hótel
Kea eru þrír ráðstefnu- og fundar-
salir, Vaðlaberg, Stuðlaberg og
Hlíðaberg, sem hægt er að sameina
í einn stóran sal. Salirnir eru
tæknilega vel útbúnir til fundar-
og veisluhalda, með aðgengi að
skjávörpum, tjaldi, tölvum, ræðu-
púltum og hljóðnemum. Þá hefur
allur tæknibúnaður verið endur-
nýjaður til að standast nútíma-
kröfur.
Í stærstu útfærslu taka salirnir
170 manns í sitjandi borðhald og
vel yfir þrjú hundruð standandi
gesti ef um er að ræða til dæmis
móttöku. Jón Friðrik leggur
mikla áherslu á það að starfsfólk
veitingasviðs leiti allra leiða til að
verða við óskum viðskiptavina
sinna. „Það eru vart til beiðnir sem
við getum ekki leyst til að við-
burður gangi vel upp. Við vinnum
náið með viðskiptavinum okkar
og erum útsjónarsöm og lausna-
miðuð. Við sjáum það að fyrirtæki
koma hingað ár eftir ár sem hlýtur
að gefa til kynna að þau séu ánægð
með okkar þjónustu.“ Jón Friðrik
segir að á Hótel Kea sé boðið upp á
veglegan veislumatseðil fyrir hópa
og stærri mannfagnaði en einnig
sé tekið á móti séróskum og þá sett
saman hlaðborð eða kvöldverður,
allt eftir óskum viðskiptavinarins.
„Við bjóðum upp á sérsniðna
matseðla fyrir hvert tækifæri,
hvort sem það er fundur, ráð-
stefna, árshátíð eða brúðkaup. Þá
hafa jólahlaðborðin okkar einnig
verið mjög vinsæl meðal stórra
og smárra fyrirtækja sem koma
árlega til okkar á aðventunni.“
Pakkar og tilboð fyrir hópa
Á hótelinu eru 104 herbergi og því
pláss fyrir rúmlega 200 gesti. Enn
fleiri komast fyrir í veitingasal
Það eru vart til
beiðnir sem við
getum ekki leyst til að
viðburður gangi vel upp.
Við vinnum náið með
viðskiptavinum okkar
og erum útsjónarsöm og
lausnamiðuð. Við sjáum
það að fyrirtæki koma
hingað ár eftir ár sem
hlýtur að gefa til kynna
að þau séu ánægð með
okkar þjónustu.
Framhald af forsíðu ➛
hótelsins. „Við getum því tekið á
móti stórum sem smáum hópum
og höfum mikla reynslu í því að
skipuleggja komur hópa í kringum
fundi, ráðstefnur og árshátíðir,“
segir Hrafnhildur E. Karlsdóttir,
hótelstýra á Hótel Kea.
Hótel Kea þjónustar fjöl-
breyttan kúnnahóp með fundi og
ráðstefnur, meðal annars félaga-
samtök, fyrirtæki og stofnanir
og segir Jón Friðrik að gríðarlega
margir fundir séu haldnir hjá þeim
árið um kring. „Við erum meðal
annars með fyrirtæki af höfuð-
borgarsvæðinu sem koma árlega
og önnur sem koma alltaf annað
hvert ár og funda hjá okkur. Þá
eru nokkur fyrirtæki sem eru með
starfsemi víða um land sem velja
að sameinast hér á Akureyri og
hittast. Það þykir gott að koma
hingað norður til að fá fundarfrið
sem kannski gefst ekki eins vel á
höfuðborgarsvæðinu.“ Jón Friðrik
nefnir einnig að ein helsta ástæða
þess að Hótel Kea verði fyrir valinu
hjá fyrirtækjum sé sá möguleiki að
bóka heildarpakka. „Við erum með
góða sali til að funda, við bjóðum
upp á gistingu með morgunverði,
fjölbreyttar veitingar ásamt Múla-
bergi sem er einn glæsilegasti bar
á Norðurlandi og þótt víðar væri
leitað. Við finnum að fyrirtæki eru
í vaxandi mæli að sækja í þessa
þjónustu, til dæmis með tveimur
fundardögum og einni til tveimur
gistinóttum. Þá er oft unnið fyrir
hádegi, hópefli eftir hádegi og svo
kvöldverður og skemmtiatriði um
kvöldið.“
Hluti af þjónustu Hótels Kea
felur í sér aðstoð við skipulagningu
viðburða í heild og Jón Friðrik
bendir á að starfsfólk veitingasviðs
þekki vel til ferðaþjónustuaðila á
svæðinu og geti því veitt ráðlegg-
ingar þegar kemur að styttri og
lengri ferðum frá hótelinu. „Það er
heilmikið sem hægt er að skoða í
kringum Akureyri, til dæmis fara
á Kaldbak eða til Siglufjarðar, í
Bjórböðin eða jafnvel í Kjarnaskóg
til útivistar. Hótel Kea er auk þess
vel staðsett í hjarta Akureyrar í
göngufæri frá Listasafni Akur-
eyrar, Hofi menningarhúsi, Græna
hattinum og Sundlaug Akureyrar
svo eitthvað sé nefnt. Hótelið og
staðsetning þess er tilvalin fyrir
allar tegundir viðburða og fyrir-
tæki bæði stór og smá.“
Jólahlaðborðin sívinsæl
Þá eru jólahlaðborðin á Hótel Kea
mjög vinsæl enda löngu búin að
skapa sér sess meðal landsmanna
og þykja afar glæsileg. „Við höldum
í hefðir en bjóðum alltaf upp á
einhverjar spennandi nýjungar.
Pantanir streyma inn og fólk þarf
að huga að því að panta í tíma því
ákveðnar dagsetningar fara alltaf
f ljótt“ segir Hrafnhildur.
Hótel Kea hefur tekið á móti gestum frá árinu 1944.
Veislusalirnir á Hótel Kea eru einstaklega glæsilegir og henta við hvaða tilefni sem er.
Gisting fyrir tvo í eina nótt með morgunverði
og jólahlaðborði á aðeins 18.200 kr.- á mann
Jólahlaðborð verður allar helgar frá 16. nóv.
Pantanir og fyrirspurnir í síma 460 2000 eða kea@keahotels.is
Gisting og jólahlaðborð
Hótel Kea - Hafnarstræti 87 - 89 - 600 Akureyri - S: 460 2000 - kea@keahotels.is
2 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RRÁÐSTEFNUR OG VEISLUÞJÓNUSTA
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
9
-A
E
F
4
2
3
A
9
-A
D
B
8
2
3
A
9
-A
C
7
C
2
3
A
9
-A
B
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K