Fréttablaðið - 29.08.2019, Síða 29
Þingholt er einn
allra glæsileg-
asti salur lands-
ins. Þar geta 40
manns setið til
borðs og 100
sótt standandi
móttöku.
Hótel Holt er sér á
parti þegar kemur
að íslenskum hótelum óg
við erum stolt af sögu
okkar og listaverkasafni.
Hótelið er Íslendingum
svo sannarlega hjart-
fólgið enda eiga margir
góðar minningar héðan.
Ímyndaðu þér að þú sért kominn í fínustu fötin á leið í þína eigin stórveislu á Hótel Holti. Spenn-
ingurinn fyrir kvöldinu kitlar og
andinn í Þingholtunum er góður
þegar þú keyrir inn Bergstaða-
strætið. Þú finnur auðveldlega
bílastæði beint fyrir utan inn-
ganginn að veislusalnum Þing-
holti og gengur inn í veisluna
þína. Þar bíður þín kurteis og
brosandi þjónn sem býðst til þess
að taka yfirhöfnina þína og um
leið tekur þú eftir þessu kunnug-
lega umhverfi sem hefur verið
hluti af stórum stundum í lífi þínu
og þinna nánustu í gegnum árin.
Þú sérð uppáhalds málverkið þitt
eftir Kjarval í fjarlægð og hlakkar
til að heilsa upp á gamla félaga í
öðrum verkum. Brátt koma fleiri
gestir og eru þau öll glæsileg og kát.
Stemningin er góð en yfirveguð
og innan skamms muntu setjast
niður og njóta glæsilegra veitinga
og sérvalinna vína. Þú færð vatn
í munninn en hlakkar mest til að
sötra koníaksglas í næði í bókaher-
berginu eða Kjarvalsstofunni.
„Svona sé ég fyrir mér að fasta-
kúnnarnir okkar upplifi sínar
ljúfu stundir á Holtinu,“ segir
Ari Thorlacius sem er nýtekinn
við sem hótelstjóri á Hótel Holti.
Hann er jafnframt staðráðinn í
að viðhalda þeim gæðum sem
Íslendingar hafa vanist í gegnum
árin á Holtinu. Ari er réttur maður
á réttum stað. Hann lærði upp-
haflega til þjóns en bætti við sig
háskólamenntun í hótel- og ferða-
málafræði í Barcelona.
„Ég hef alltaf unnið á hótelum
og haft brennandi löngun til þess.
Starfið er svo lifandi og það er
gaman að hitta nýtt fólk á hverjum
degi, af ólíkum þjóðernum og
menningarheimum. Ég hef yndi af
því að kynna land okkar og menn-
ingu fyrir gestum, hvort sem það
er náttúran, maturinn eða listir,“
segir hótel- og veitingastjórinn Ari
sem nýtur þess að blanda saman
hefðbundinni skrifstofuvinnu við
ýmis hótelstörf innanhúss.
„Ég tek til dæmis reglulega
slaginn í morgunverðinum ásamt
þjónum hússins því ég vil gjarnan
hitta gestina sem gista hjá okkur
og ná persónulegu sambandi við
þá. Hótel Holt hefur þannig ávallt
verið þekkt fyrir af bragðs þjón-
ustu og við fáum daglega hrós fyrir
hlýlegar móttökur. Það er enda
virkilega heimilislegt að vera hjá
okkur, hótelið er mjög svo hlýlegur
staður og hægt að setjast niður um
allt hótel til að fá sér drykk og láta
sér líða vel,“ segir Ari.
Fundað í sögufrægum sal
Hótel Holt býður upp á ýmsa
þjónustu fyrir heimamenn jafnt
sem ferðamenn.
„Hér er vinsælt að halda fundi
og ráðstefnur, sem og veislur, í
Þingholti sem er einn fegursti salur
landsins. Þar geta fjörutíu manns
setið til borðs og allt að hundrað
manns í standandi móttökum.
Salurinn hefur yfir sér virðulegt
yfirbragð, býður upp á gott næði
og í salnum er píanó og gott pláss
fyrir ýmis tónlistaratriði,“ segir
Ari um Þingholt sem hentar vel
undir fundi, veisluhöld, brúðkaup,
árshátíðir, bíósýningar, hádegis-
verði, kvöldverði, kynningar, ráð-
stefnur og móttökur.
Inn af Þingholti er Kjarvals-
Heimilislegt
á Holtinu
Hótel Holt geymir sögulegar minn-
ingar um konungsveislur og glaðar
stundir. Þar má upplifa íslenska lista-
sögu, borða dýrindis mat í friðuðu
umhverfi og funda í sögufrægum sal.
Ari Thorlacius er nýtekinn við sem hótel- og veitingastjóri á Hótel Holti.
Það er notalegt og fyllir mann innblæstri að setjast niður í Kjarvalsstofu
sem er nákvæm eftirlíking af vinnustofu listmálarans Jóhannesar Kjarval.
Í Þingholti er hægt að láta fara vel um sig í friðuðum innréttingum.
Maturinn á Hótel Holti er víðfrægur fyrir gæði og metnað. Listaverk gömlu meistaranna skreyta veggi hótelsins.
stofa sem er nákvæm eftirlíking af
vinnustofu hins ástsæla lista-
manns Jóhannesar Kjarval.
„Í Kjarvalsstofu er mikill inn-
blástur. Við erum einkar stolt af
sögunni okkar og listaverkasafni
hótelsins sem samanstendur af
stórfenglegum verkum gömlu
meistaranna þar sem Kjarval er
í stærstu hlutverki. Við viljum
gjarnan deila listaverkunum með
gestum hússins og bjóðum upp
á listagöngur fyrir gesti veitinga-
staðarins, en hópar sem bóka
veislur, fundi eða ráðstefnur geta
einnig óskað eftir listagöngu fyrir
kvöldverðinn eða fundinn,“ upp-
lýsir Ari.
Staður sælla minninga
Hótel Holt er sér á parti þegar
kemur að íslenskum hótelum.
„Holtið er rótgróinn og virðu-
legur staður sem er samofinn sögu
Íslendinga og þeim sannarlega
hjartfólginn, enda eiga margir
héðan góðar minningar. Það er
þekkt fyrir sælkeramatseld, fram-
úrskarandi þjónustu og íðilfagurt
umhverfi en hér hafa kóngafólk og
fyrirmenni gist í gengum tíðina og
verið haldnir konunglegir kvöld-
verðir og móttökur í áranna rás,“
segir Ari innan um glæsilegar inn-
réttingar hótelsins.
„Fyrsta hæð Holtsins er friðuð
og þar verður ekki hróflað við
neinu. Það er mikill sjarmi yfir því
og fólk kann að meta það að koma
í umhverfi sem hefur haldist eins í
áranna rás og staðist tímans tönn
þegar kemur að fallegri hönnun,“
segir Ari og hvetur landsmenn til
að kíkja í kaffi og notalegheit á
Holtinu.
„Margir eru feimnir við að
detta inn í kaffi af götunni en
það er algengur misskilningur að
eingöngu hótelgestir megi njóta
lífsins á hótelinu. Þessa dagana
erum við að setja upp skemmtilega
viðburði á barnum þar sem Högni
Egilsson hefur spilað djass í mikilli
stemningu og Egill Sæbjörnsson
heldur brátt eins dags listahátíð.
Því eru allir hjartanlega velkomnir
og við hlökkum til að taka á móti
fastagestum okkar í haust og vetur
og erum spennt að fá enn fleiri í
fastakúnnahópinn í framtíðinni,“
segir Ari.
Frekari upplýsingar og til að bóka
Þingholt salinn er á holt@holt.is
eða í síma 552-5700
KYNNINGARBLAÐ 3 F I M MT U DAG U R 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 RÁÐSTEFNUR OG VEISLUÞJÓNUSTA
2
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
9
-A
0
2
4
2
3
A
9
-9
E
E
8
2
3
A
9
-9
D
A
C
2
3
A
9
-9
C
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K